
Stykkishólmur er ekki frábrugðinn öðrum stórborgum í aðdraganda jóla. Þar eru jólatónleikar og markaðir af ýmsu tagi. Í Stykkishólmskirkju skemmtu söngsveitin Blær og karlakórinn Kári áheyrendum með söng sínum undir stjórn Hólmfríðar Friðjónsdóttur. Það er gaman að segja frá því að söngsveitin Blær flutti meðal annars þekkt lög við texta eftir Hólmarann Ægi Breiðfjörð Jóhannsson.…Lesa meira








