Fréttir

true

Brotist inn í hótelafgreiðslu

Aðfararnótt sunnudagsins síðasta var farið inn í afgreiðslu Hótel Bifrastar og stolið þar nokkrum munum og lítilræði af peningum. Að sögn lögreglu hafðist upp á þjófunum sem reyndust tveir saman. Við yfirheyrslur játuðu þeir verknaðinn. Þýfinu höfðu þeir skipt á milli sín en það fannst á heimilum þeirra og var því komið til skila.Lesa meira

true

Opna samvinnurýmið „Coworking Akranes“ um áramótin

Félagarnir Heiðar Mar Björnsson og Heimir Berg Vilhjálmsson hafa undanfarið unnið hörðum höndum að því að setja upp vinnurými við Ægisbraut 30 á Akranesi. Um er að ræða svokallað samvinnurými þar sem fólk getur leigt sér vinnuaðstöðu í skapandi umhverfi. Báðir eru þeir tiltölulega nýfluttir í bæinn og fannst þeim vanta slíka aðstöðu á Skaganum.…Lesa meira

true

Valdís Þóra í 4.-.6 sæti fyrir lokahringinn

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, lék fjórða hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina, sterkustu mótaröð Evrópu, á 65 höggum eða samtals sjö höggum undir pari. Samanlagt er hún því á ellefu höggum undir pari. Er Valdís í 4.-6. sæti fyrir lokahring mótsins og því því örugg áfram á sem ein þeirra 60 kylfinga…Lesa meira

true

Tvö snæfellsk sjávarútvegsfyrirtæki vinna mál gegn Landsbankanum

Hæstiréttur kvað í dag upp tvo dóma í sambærilegum málum sem snerta snæfellsk sjávarútvegsfyrirtæki. Annars vegar Hraðfrystihús Hellissands í Rifi og hins vegar Guðmund Runólfsson hf. í Grundarfirði. Í báðum tilfellum sneri Hæstiréttur við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. janúar 2016 og dæmdi sjávarútvegsfyrirtækjunum í hag. Landsbankinn var dæmdur til að greiða Hraðfrystihúsi Hellissands 1,16…Lesa meira

true

Tók þátt í teiknisamkeppni þrátt fyrir handleggsbrot

Að venju var góð þátttaka í jólamyndasamkeppni grunnskólanema, sem Skessuhorn heldur á ári hverju. Hundruð teikninga bárust í keppnina frá börnum á aldrinum sex til tólf ára. Á flestum teikninganna má sjá að börnin vanda sig mikið og leggja mörg þeirra mikla vinnu í að skila inn sem flottastri mynd. Sumir eru þó tilbúnir að…Lesa meira

true

Veðrið mun versna síðdegis og í kvöld

Mjög djúp lægð er nú skammt vestur af landinu. Sunnan lægðarmiðjunnar er vindstrengur með vestan stormi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að útlit sé fyrir að vindstrengurinn komi inn á suðvestanvert landið síðdegis og yfir suðvesturhornið með allt að 18-23 m/s með hríðarveðri og á köflum litlu skyggni. Síðdegis færist síðan veðrið norður með vestanverðu…Lesa meira

true

Borgnesingur sigraði í Draumaliðsdeild Azazo

Nýverið kom í ljós að sigurvegari draumaliðsdeildar Azazo 2016 er Óliver Kristján Fjeldsted, ungur Borgnesingur. Fékk hann að launum glæsilegan síma. Önnur verðlaun, sex mánaða áskrift af Sportpakka 365, fóru til Vöndu Sigurgeirsdóttur fyrrverandi landsliðskonu og fjölskyldu hennar en þau mynduðu saman eitt lið. Bjarki Hvannberg hlaut svo gjafabréf í þriðju verðlaun en aðeins örfá…Lesa meira

true

Afmælissýning leikdeildar hengd upp í Hyrnutorgi

Í vor voru gamlir sem nýir félagar í Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms boðaðir á fund til að fá fram hugmyndir um hvernig haldið skyldi upp á 100 ára afmæli leikdeildarinnar á þessu ári. Ákveðið var að halda afmælissýningu á haustdögum þar sem saman yrði dregið starf félagsins þessi 100 ár. Einnig var farið í að safna…Lesa meira

true

„Ljósin hans Gutta“ lýsa í Garðalundi

Falleg ljós sem lýsa upp tré í Garðalundi hafa nú verið kveikt og fá að loga á aðventunni. Ljósin eru kölluð „Ljósin hans Gutta“ og er um að ræða samfélagsverkefni sem Hollvinir Grundaskóla, skólafólk á Akranesi og fleiri standa að í minningu um Guðbjart Hannesson, fyrrverandi skólastjóra Grundaskóla, bæjarfulltrúa, alþingismann og ráðherra. Guðbjartur, eða Gutti…Lesa meira

true

Gefa út blað með frásögn af lífshlaupi snæfellskra kvenna

Þegar 100 ár voru liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt var ákveðið vestur á Snæfellsnesi að líta um öxl og segja sögur nokkurra vel valinna snæfellskra kvenna. Um leið og sagt er frá lífshlaupi þeirra er einnig varpað ljósi á sögu mannlífs á Snæfellsnesi. „Soroptimistasystur skipulögðu verkefnið vel, skipuðu sér í hópa og…Lesa meira