Fréttir

true

Lítið af síld vestan við landið

Ástandið á síldarmiðunum vestan Íslandsstranda er heldur dauft um þessar mundir. Reikna má með því að þeir sem eiga óveiddan kolmunnakvóta snúi sér heldur að kolmunnaveiðum í færeysku lögsögunni og hvíli sig á síldinni á meðan lítið finnst af henni í veiðanlegu magni. Þetta kemur fram í frétt á vef HB Granda í dag. ,,Það…Lesa meira

true

Tölvuhakkarar búa yfir milljónum lykilorða

Eins og kemur fram í frétt RÚV, kom nýlega upp um viðamikinn leka á Netinu þar sem nálgast má milljónir lykilorða og þar af fjölmörg íslensk. „Sænska sjónvarpið SVT hefur fjallað ítarlega um málið en 10 milljónir sænskra lykilorða eru aðgengileg á Netinu. Með aðstoð öflugs tölvuhakkara fundu þáttargerðamenn hjá SVT Dold milljónir lykilorða sem…Lesa meira

true

Fékk verðlaun í vefratleik í tengslum við Forvarnadaginn

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands afhenti nýverið verðlaun og viðurkenningar í tengslum við verkefni Forvarnardagsins. Actavis fékk verðlaun fyrirtækis og nokkur ungmenni að auki  fyrir netratleik Forvarnardagsins sem ætluður er ungmennum sem fædd eru 1999-2002. Athöfnina sóttu auk verðlaunahafa og fjölskyldna þeirra fulltrúar stofnana og samtaka sem að deginum standa. Meðal verðlaunahafa var Grundfirðingurinn Sigurður…Lesa meira

true

Selja kvóta og kýr en auka þess í stað við ferðaþjónustuna

Talsverð breyting verður á hinni landstóru jörð, Steindórsstöðum í Reykholtsdal, um næstu áramót. Á kvótamarkaði 1. nóvember síðastliðinn seldu bændurnir mjólkurkvótann og því mun um næstu áramót leggjast af kúabúskapur á jörðinni, en þar hafa verið kýr svo lengi sem elstu menn muna. Samkvæmt nýjum búvörulögum var þetta síðasti frjálsi markaðurinn með mjólkurkvóta. Á næsta…Lesa meira

true

Engin millilending spóans frá Íslandi til Vestur-Afríku

Nú hefur ráðgátan um flug íslenska spóans verið leyst. Vísindamenn Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi hafa ásamt samstarfsfólki sýnt fram á að spóinn flýgur án viðkomu frá Íslandi alla leið til Vestur-Afríku. Spóinn flýgur í allt að fimm sólarhringa samfellt og leggur að baki hátt á sjötta þúsund kílómetra í beinu flugi. Niðurstöðurnar byggja á…Lesa meira

true

Fagnaður á laugardaginn í tilefni 100 ára afmælis Skallagríms

Ungmennafélagið Skallagrímur í Borgarnesi fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Laugardaginn 3. desember næstkomandi verður íbúum Borgarbyggðar boðið í afmæliskaffi í Hjálmakletti klukkan 14, þar sem þessara tímamóta í sögu Skallagríms verður fagnað. Þar verða rifjaðir upp ýmsir eftirminnilegir þættir úr sögu félagsins og leikdeild Skallagríms slær á létta strengi.  Íbúar eru hvattir til…Lesa meira

true

Aðgæsla nauðsynleg á vettvangi óhappa

Vörubílstjóri sem var að fjarlægja bíl á Holtavörðuheiði, sem hafði farið þar útaf og verið var að ná aftur upp á veginn, kvartaði sáran yfir óaðgæslu og hraðakstri ökumanna.  Sagði maðurinn í samtali við lögreglu að hann hefði verið með öll tilheyrandi blikkljós og aðvörunarljós í gangi en margir ökumenn hefðu ekkert slegið af þegar…Lesa meira

true

Garðar Gunnlaugs og Ólafur Valur framlengja við ÍA

Markahrókurinn Garðar Gunnlaugsson hefur framlengt samning sinn við ÍA um tvö ár og mun því leika með liðinu út leiktímabilið 2018. Garðar gekk til liðs við ÍA á nýjan leik árið 2012 þegar hann sneri heim úr atvinnumennsku.  Hefur hann síðan þá upplifað tímana tvenna með ÍA en undanfarin þrjú ár hefur liðið átt prýðilegu…Lesa meira

true

Talsvert um óhöpp en öll án alvarlega slysa

Alls urðu fimm umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Ökumaður fólksbíls missti bíl sinn útaf veginum í hálku á Bröttubrekku á laugardaginn og valt bíllinn síðan heilan hring og hafnaði á hjólunum. Tvennt var í bílnum og voru bæði í öryggisbeltum. Slapp fólkið með minniháttar skrámur. Þá varð árekstur tveggja bíla á…Lesa meira

true

Berg er ræktunarbú Snæfellings 2016

Uppskeruhátið hestamannafélagsins Snæfellings fór fram í Klifi í Ólafsvík á laugardagskvöldið. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu, bæði í keppni og ræktun. Öll börn, unglingar og ungmenni sem höfðu keppt á árinu fengu viðurkenningu. Hestaíþróttamaður ársins hjá Snæfellingi var Siguroddur Pétursson og Þotuskjöldinn fékk Nadine E. Walter fyrir æskulýðsstarf. Ræktunarbú ársins hjá…Lesa meira