Fréttir

true

Skagamenn töpuðu naumlega fyrir Íslandsmeisturunum

ÍA og FH mættust í annarri umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Leikurinn fór fremur hægt af stað. FH-ingar héldu boltanum en Skagamenn lágu til baka og freistuðu þess að beita skyndisóknum. Heimamenn voru sterkari en komust lítt áleiðis. Varnarmúr Skagamanna hélt þar til á 41. mínútu…Lesa meira

true

N1 heldur áfram að styrkja körfuboltann í Borgarnesi

Nýverið skrifaði Páll Örn Líndal rekstarstjóri þjónustustöðva hjá N1 undir nýjan tveggja ára styrktarsamning við Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi. Það var Arnar Víðir Jónsson formaður deildarinnar sem ritaði undir fyrir hönd deildarinnar. Bæði kvenna- og karlalið Skallagríms hafa eins og kunnugt er öðlast keppnisrétt í Dominosdeildinni í haust og því er mikil þörf á öflugum…Lesa meira

true

Sumaráætlun Strætó hefst á misjöfnum tímum eftir landshlutum

Sumaráætlun Strætó bs hefst á næstunni, en nokkuð misjafnt er eftir landshlutum hvenær hún tekur gildi. Á Vestur- og Norðurlandi hefst hún 5. júní, á Suðurlandi 15. maí, á höfuðborgarsvæðinu 29. maí, á Suðurnesjum 5. júní og á Norður- og Norðausturlandi: 29. maí. Nánari upplýsingar um breytingarnar er að finna á Strætó.is.  Lesa meira

true

Átakið Hjólað í vinnuna er formlega byrjað

  Átakið Hjólað í vinnuna var sett í fjórtánda sinn í liðinni viku. Hjólað í vinnuna er vinnustaðakeppni sem stendur frá 4.- 24. maí. Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá…Lesa meira

true

Hreyfivika hefst hér á landi 23. maí

Hreyfivika Ungmennafélags Íslands fer fram dagana 23. – 29. maí næstkomandi. Hreyfivikan er hluti af samevrópska lýðheilsuátakinu sem hófst árið 2012, þar á meðal á Íslandi, og hefur dreifts um alla Evrópu. Markmið átaksins er að fá fólk til að kynnast kostum þess að hreyfa sig reglulega til heilsubótar og hafa jákvæð áhrif á líkamlega,…Lesa meira

true

Háskólar landsins eru undirfjármagnaðir

„Rektorar allra háskóla á Íslandi lýsa miklum vonbrigðum með að háskólar verði skildir eftir í þeirri sókn í íslensku samfélagi sem fjármálaáætlun ríkisstjórnarninnar fyrir árin 2017–2021 gerir ráð fyrir. Þar er gert ráð fyrir verulegri heildarútgjaldaaukningu sem endurspeglast ekki í fjárveitingum til háskóla- og rannsóknarstarfs,“ segir í ályktun sem félag háskólarektora hefur sent frá sér.…Lesa meira

true

Fráveituframkvæmdir að hefjast við Krókalón

  Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, eru að hefja vinnu við lagningu fráveitulagna og byggingu dælubrunns við Krókalón á Akranesi í þeim tilgangi að veita frárennslinu áleiðis í nýja hreinsistöð við Ægisbraut sem gangsett verður fyrir árslok. Framkvæmdasvæðið er frá Krókatúni 20 að Vesturgötu 105, meðfram grjótgarðinum í fjörunni. Byggður verður staðsteyptur, niðurgrafinn dælubrunnur neðan við…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin með sigur og tap

Svo fór að Vesturlandsliðin Víkingur Ó og ÍA uppskáru afar mismunandi í leikjum annarrar umferðar sem spiluð var í dag. Víkingur Ó bar sigur úr býtum í viðureign gegn Val í leik sem spilaður var í Ólafsvík síðdegis, með tveimur mörkum gegn einu. Skagamenn sóttu hins vegar FH-inga heim í Kaplakrika og töpuðu 2-1.  Víkingur…Lesa meira

true

Aftanákeyrsla í Melasveit

Um eittleytið í dag var bíl ekið aftan á annan á þjóðveginum við vegamótin að Ölveri í Melasveit. Ekki urðu alvarleg slys á fólki, en tvennt var sent með sjúkrabíl til skoðunar á spítala. Bílarnir eru báðir illa farnir og voru fjarlægðir með dráttarbílum. Mikil umferð er um þjóðveg eitt við Hafnarfjall og skapaðist löng…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík styrkir vörnina

Knattspyrnufélagið Víkingur Ólafsvík hefur náð samkomulagi við miðvörðinn Alexis Egea. Hann kemur frá Orihuela CF sem spilar í spænsku 3. deildinni. Alexis er fæddur 1987 og hefur komið víða við. Hann spilaði áður í 2. deildinni í Mexíkó sem og í Guatemala. Alexis kemur til með að fylla skarð Admir Kubat sem sleit krossband fyrr…Lesa meira