Fréttir

true

Loftorka í Borgarnesi seld nýjum eigendum

Eigendur Loftorku í Borgarnesi ehf. hafa samþykkt kauptilboð í allt hlutafé félagsins. Kaupandi er félag sem Pétur Guðmundsson fer fyrir, en hann er alla jafnan kenndur við byggingafélagið Eykt. Seljendur fyrirtækisins eru feðgarnir Óli Jón Gunnarsson og Bergþór Ólason framkvæmdastjóri, en þeir hafa átt fyrirtækið frá því vorið 2012. Bergþór staðfestir þetta í samtali við…Lesa meira

true

Skólabíll vegur salt á vegarbrún

Skólabíll fór útaf í hálku um nónbil í dag skammt frá brúnni yfir Leirá í Hvalfjarðarsveit og mátti engu muna að rútan ylti á hliðina út fyrir veg, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Bílstjórinn var einn í bílnum þegar óhappið varð og komst ómeiddur út. Hann var á leiðinni að sækja börn í…Lesa meira

true

Verdi Requiem í Stykkishólmskirkju

Næstkomandi sunnudag klukkan 17 verður mikið um dýrðir í Stykkishólmskirkju. Óperukórinn í Reykjavík mun þá flytja Verdi Requiem undir stjórn Garðars Cortes. Tónleikarnir eru haldnir til minningar um Jón Stefánsson, orgelleikara og kórstjóra, en hann lést í apríl á þessu ári eftir bílslys í nóvember árið 2015. Komst hann aldrei til meðvitundar eftir slysið. Jón…Lesa meira

true

Einar Kristinn tekur við formennsku í Landssambandi fiskeldisstöðva

Stjórn Landssambands fiskeldisstöðva samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að leggja til við aukaaðalfund LF að Einar Kristinn Guðfinnsson verði kjörinn í stjórn sambandsins og taki þar við formennsku í stjórn þess. Aukaaðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. þessa mánaðar. Einar Kristinn lét af þingmennsku við nýliðnar alþingiskosningar eftir óslitna setu á Alþingi í ríflega…Lesa meira

true

Aðventublað Skessuhorns í næstu viku

Hið árlega Aðventublað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 23. nóvember. Það verður prentað í óvenjulega stóru upplagi og aldreift með Íslandspósti í öll fyrirtæki og heimili á Vesturlandi. Meðal efnis verður sitthvað sem tengist árstímanum, dagskrá í sveitarfélögum og sóknum, en þema blaðsin er ungt og athafnasamt fólk á Vesturlandi. Tillögur um efni,…Lesa meira

true

Grundfirðingar beðnir að fara sparlega með rafmagn

Bilun varð á 66kV flutningslínu Landsnets milli Vegamóta og Vogaskeiðs klukkan 08:33 í dag þegar eldingu laust niður í línuna. Unnið er að viðgerð á línunni, segir í tilkynningu frá Rarki. Rafmagn er nú komið á hluta af Grundarfirði og allan Stykkishólm og nærsveitir með keyrslu á varaafli. Grundfirðingar eru vinsamlega beðnir að fara sparlega…Lesa meira

true

Boðið upp á nýtt meistaranám í viðskiptalögfræði á Bifröst

Eftir áramót mun Háskólinn á Bifröst fara af stað með nýtt meistaranám í viðskiptalögfræði. Námið hentar jafnt þeim sem lokið hafa grunngráðu í lögfræði svo og þeim sem hafa aðra grunnmenntun en vilja styrkja stöðu sína með MBL námi sem stendur fyrir Master in business law. „Nýmælið felst í því að bjóða upp á sérhæft…Lesa meira

true

Kranabíll hélt uppi raflínunni

Rafmagnstruflanir hafa verið á Snæfellsnesi frá því í morgun. Rafmagnslaust er m.a. í Grundarfirði og hluta Stykkishólms. Nemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga hafa verið sendir heim. Orsök bilunarinnar er brotin staurastæða sem leiðir rafstreng yfir Snæfellsnesveg í Eyja- og Miklaholtshreppi, skammt sunnan við Vegamót. Af þeim sökum þurfti að beina umferð um Heydal um tíma í morgun.…Lesa meira

true

Vesturgata og Brekkubraut verða botnlangar

Eins og Skessuhorn greindi frá í lok síðasta mánaðar mun endurgerð Vesturgötu á Akranesi, milli Stillholts og Merkigerðis, hefjast á vormánuðum. Er það öllu seinna en upphaflega var áætlað. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdunum ljúki um mitt næsta ár. Gatan var fræst síðasta vor og ástand steypunnar metið. Kom þá í ljós að…Lesa meira