Fréttir

true

Kynslóðir vinna saman að listsköpun

Á nýafstöðunum Vökudögum á Akranesi mátti finna sýninguna „Umbreyting – Eitthvað verður annað“. Um var að ræða sýningu þar sem nokkrir kennarar og nemendur unnu saman og sýndu verk sín. Þetta var í fjórða sinn sem kennararnir Borghildur Jósúadóttir, Bryndís Siemsen, Eygló Gunnarsdóttir og Steinunn Guðmundsdóttir stóðu fyrir slíku verkefni, þar sem þær vinna náið…Lesa meira

true

Menningarnefnd dregur til baka breytingu varðandi jólatrésskemmtun

„Í ljósi óánægju með auglýst fyrirkomulag á tendrun jólaljósa á jólatré á Akratorgi í ár hefur menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar dregið til baka þá ákvörðun að tendra þau að morgni mánudagsins 28. nóvember. Þess í stað fer tendrun ljósanna fram laugardaginn 26. nóvember kl. 16:00 eins og áður hafði verið ákveðið.“ Þetta kemur fram í…Lesa meira

true

Slæm færð og vont veður víða um landshlutann

Snæfellsnesvegi var um tíma lokað í morgun milli Haffjarðarár og Vegamóta vegna veðurs og færðar. Umferð var á meðan beint um Heydal og Skógarströnd. Klukkan 9:45 var svo opnað fyrir umferð minni bíla. Nú er hvasst nokkuð víða um vestan- og norðanvert landið, hviður nálægt 40 m/sek á sunnanverðu Snæfellsnesi. Á Vesturlandi er víðast hálka…Lesa meira

true

Straumleysi á Snæfellsnesi

Straumlaust er núna í Grundarfirði, Stykkishólmi og nærsveitum á Snævellsnesi vegna bilunar. Í tilkynningu frá Rarik kemur fram að búið er að finna bilunina og verið að undirbúa viðgerð. Verið er að keyra upp varaafl í Stykkishólmi. Nánari upplýsingar veitir Rarik síðar. Rarik biðst jafnframt velvirðingar á þessum truflunum.Lesa meira

true

Jakob Svavar valinn gæðingaknapi ársins

Jakob Svavar Sigurðsson úr Hestamannafélaginu Dreyra var valinn gæðingaknapi ársins á uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga sem fram fór nýverið. Hann var tilnefndur í þremur flokkum; sem gæðingaknapi ársins, kynbótaknapi ársins og íþróttaknapi ársins. Auk þess kom hann til greina sem knapi ársins. Fór svo að hann var valinn gæðingaknapi ársins, sem fyrr segir. „Jakob er þaulvanur…Lesa meira

true

Mötuneyti og færsla leikskóla stærstu verkefnin

Á næsta ári er ráðgert í fjárhagsáætlun að sveitarfélagið Borgarbyggð framkvæmi fyrir 275 milljónir króna. Stærsta einstaka framkvæmdin er viðbygging á fjölnota matsal við Grunnskóla Borgarness en áætlaður kostnaður við bygginguna er um 300 milljónir króna sem dreifist á tvö ár. Framkvæmdir hefjast næsta vor. Næst-stærsta framkvæmdin sem ráðist verður í á næsta ári er…Lesa meira

true

Bókaormar Brekkubæjarskóla 2016

Lokaviðureign spurningakeppninnar Bókaormar Brekkubæjarskóla fór fram í sal skólans föstudaginn 11. nóvember. Þetta er í fjórða skipti sem keppnin er haldin en þetta er spurningakeppni sem byggð er upp á svipaðan hátt og Útsvar og eru spurningarnar úr bókum sem krakkarnir hafa lesið. Það eru nemendur í 4. – 7. bekk sem taka þátt. Úrslitaviðureignin…Lesa meira

true

Bók með greinasafni Ásmundar Ólafssonar

Í þessari viku kemur út hjá bókaútgáfunni MTH bókin “Á Akranesi, þættir um sögu og mannlíf.” Hér er á ferð bók með ýmsum greinum sem Ásmundur Ólafsson hefur skráð og birst hafa áður í ýmsum blöðum og tímaritum, svo sem Skessuhorni, Árbók Akurnesinga, Heima er Bezt og Morgunblaðinu. „Þegar ég fór að taka saman og…Lesa meira

true

100 ára afmælissýning Leikdeildar Skallagríms í Lyngbrekku

“Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera viðstödd frumsýningu 100 ára afmælissýningar Leikdeildar Umf. Skallagríms síðastliðinn fimmtudag. Ég hafði hlakkað til, enda aðdáandi leikdeildarinnar til margra ára og þótti spennandi tilhugsun að fá að sjá bestu brot gamalla sýninga. Lyngbrekka bauð okkur velkomin að vanda og vinalegt viðmót allra sem þar voru. Uppsetningin á salnum…Lesa meira

true

Kór Akraneskirkju með tónleika í upphafi aðventu

Laugardaginn 26. nóvember munu Kór Akraneskirkju og flauelsbarkinn Þór Breiðfjörð tóna inn aðventuna með glæsilegum tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi. Þetta er þriðja árið í röð sem Kór Akraneskirkju heldur tónleika þessa fyrstu helgi í aðventu. Það er því komin ákveðin hefð fyrir tónleikum kórsins á þessum tíma. Góðir gestir hafa komið í heimsókn þessi…Lesa meira