Fréttir

true

Lánasérfræðingar Byggðastofnunar til viðtals víða á Vesturlandi

Byggðastofnun veitir langtímalán til fjárfestinga, hagræðingar og fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja á starfssvæði stofnunarinnar. Er lánastarfsemi Byggðastofnunar ætlað að vera valkostur í fjármögnun og stuðla að hagstæðum lánskjörum og lánsframboði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á landsbyggðinni. Lánasérfræðingar stofnunarinnar verða á ferð um Vesturland eftir helgi og til viðtals víða í landshlutanum í byrjun næstu viku.…Lesa meira

true

Kanna möguleika á smíði loftskrúfubáts

Byggðarráð Borgarbyggðar tók nýverið fyrir á fundi sínum erindi frá Kjartani Ragnarssyni, Björgunarsveitinni Brák og Hollvinasamtökum Borgarness um styrk til nýsköpunarverkefnis. Verkefnið lýtur að því að hanna og smíða flatbotna bát til siglinga á grunnsævi, grynningum og söndum eins og til dæmis er að finna í nágrenni Borgarness. Myndi slíkur bátur nýtast björgunarsveitum við björgunarstörf…Lesa meira

true

Vetrarveðri og slæmri færð spáð áfram í dag

Áframhald verður á ofankomu norðan- og austanlands í dag og spáð mikilli hríð og hvassviðri. Suðvestanlands verður einnig hvasst og blint í skafrenningi á sumum fjallvegum. Hviður verða á sunnanverðu Snæfellsnesi í allan dag og eins á Kjalarnesi þar sem reiknað er með hviðum allt að 40 m/s annað slagið fram á kvöldið.  Nú er…Lesa meira

true

Loftorka í Borgarnesi seld nýjum eigendum

Eigendur Loftorku í Borgarnesi ehf. hafa samþykkt kauptilboð í allt hlutafé félagsins. Kaupandi er félag sem Pétur Guðmundsson fer fyrir, en hann er alla jafnan kenndur við byggingafélagið Eykt. Seljendur fyrirtækisins eru feðgarnir Óli Jón Gunnarsson og Bergþór Ólason framkvæmdastjóri, en þeir hafa átt fyrirtækið frá því vorið 2012. Bergþór staðfestir þetta í samtali við…Lesa meira

true

Skólabíll vegur salt á vegarbrún

Skólabíll fór útaf í hálku um nónbil í dag skammt frá brúnni yfir Leirá í Hvalfjarðarsveit og mátti engu muna að rútan ylti á hliðina út fyrir veg, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Bílstjórinn var einn í bílnum þegar óhappið varð og komst ómeiddur út. Hann var á leiðinni að sækja börn í…Lesa meira

true

Verdi Requiem í Stykkishólmskirkju

Næstkomandi sunnudag klukkan 17 verður mikið um dýrðir í Stykkishólmskirkju. Óperukórinn í Reykjavík mun þá flytja Verdi Requiem undir stjórn Garðars Cortes. Tónleikarnir eru haldnir til minningar um Jón Stefánsson, orgelleikara og kórstjóra, en hann lést í apríl á þessu ári eftir bílslys í nóvember árið 2015. Komst hann aldrei til meðvitundar eftir slysið. Jón…Lesa meira

true

Einar Kristinn tekur við formennsku í Landssambandi fiskeldisstöðva

Stjórn Landssambands fiskeldisstöðva samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að leggja til við aukaaðalfund LF að Einar Kristinn Guðfinnsson verði kjörinn í stjórn sambandsins og taki þar við formennsku í stjórn þess. Aukaaðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. þessa mánaðar. Einar Kristinn lét af þingmennsku við nýliðnar alþingiskosningar eftir óslitna setu á Alþingi í ríflega…Lesa meira

true

Aðventublað Skessuhorns í næstu viku

Hið árlega Aðventublað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 23. nóvember. Það verður prentað í óvenjulega stóru upplagi og aldreift með Íslandspósti í öll fyrirtæki og heimili á Vesturlandi. Meðal efnis verður sitthvað sem tengist árstímanum, dagskrá í sveitarfélögum og sóknum, en þema blaðsin er ungt og athafnasamt fólk á Vesturlandi. Tillögur um efni,…Lesa meira

true

Grundfirðingar beðnir að fara sparlega með rafmagn

Bilun varð á 66kV flutningslínu Landsnets milli Vegamóta og Vogaskeiðs klukkan 08:33 í dag þegar eldingu laust niður í línuna. Unnið er að viðgerð á línunni, segir í tilkynningu frá Rarki. Rafmagn er nú komið á hluta af Grundarfirði og allan Stykkishólm og nærsveitir með keyrslu á varaafli. Grundfirðingar eru vinsamlega beðnir að fara sparlega…Lesa meira