Fréttir

true

Samningar hafa nú náðst við alla sjómenn

Nú hafa öll félög sjómanna og vélstjóra samið við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um nýja kjarasamninga. Öllum verkföllum sjómanna hefur því verið frestað. Kynningar á gerðum kjarasamningum og atkvæðagreiðslur fara nú fram. Verkfalli þeirra sem síðast sömdu lýkur formlega klukkan 14 í dag. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Sjómannafélag Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning í gær…Lesa meira

true

Íslensk heimili efla varnir gegn eldsvoðum

Íslendingar auka eldvarnir á heimilum sínum jafnt og þétt samkvæmt rannsóknum sem Gallup hefur gert fyrir Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Eldvarnabandalagið á undanförnum tíu árum. Nýjasta rannsókn Gallup sýnir að nú eru allt í senn reykskynjarar, eldvarnateppi og slökkvitæki á yfir helmingi íslenskra heimila í fyrsta sinn frá því mælingar hófust. Heimilum sem eiga…Lesa meira

true

Opinn fundur um þjóðlendumál í Borgarnesi

Sem kunnugt er felldi óbyggðanefnd úrskurð sinn í umfjöllun um þjóðlendumál innan Borgarbyggðar í lok septembermánaðar. Nú hefur verið boðað til opins fundar í Borgarnesi um þessa niðurstöðu nefndarinnar. Fer hann fram í Hjálmakletti í kvöld, miðvikudaginn 16. nóvember og hefst kl. 20:00. Til fundarins mæta Friðbjörn Garðarsson lögmaður, en hann fór með þann hluta…Lesa meira

true

Dagur nýsköpunar á Vesturlandi framundan

Dagur nýsköpunar og úthlutunarhátíð Uppbyggingasjóðs Vesturlands verður haldin í Landnámssetrinu í Borgarnesi miðvikudaginn 23. nóvember næstkomandi. Úthlutað verður styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands til nýsköpunar í atvinnulífi, en úthlutað er úr sjóðnum til nýsköpunar tvisvar á ári. Síðast var úthlutað í lok marsmánaðar og er því um seinni úthlutun þessa árs að ræða. Bjarni Már Gylfason…Lesa meira

true

Innlend fataverslun nýtur ekki góðs af vaxandi einkaneyslu

Flestir geirar íslenskrar verslunar njóta góðs af auknum kaupmætti og vaxandi einkaneyslu. Jafnframt er ljóst að aukinn straumur erlendra ferðamanna hefur talsverð áhrif á verslun. Í október síðastliðnum var heildargreiðslukortavelta erlendra ferðamanna 17,5 milljarðar króna sem er 67,1% hærri upphæð en í október í fyrra. En þessara áhrifa gætir ekki á öllum sviðum. Samkvæmt nýrri…Lesa meira

true

Tvímenningsmót hálfnað hjá BB

Aðaltvímenningur Briddsfélags Borgarfjarðar er nú í fullum gangi, en keppnin stendur yfir í fimm vikur og að vanda er spilað á mánudögum í Logalandi. Til leiks mættu 15 pör og er því yfirseta í mótinu en hún reynist mönnum oft á tíðum vel til stigasöfnunar. Sveinn Hallgrímsson hefur farið mikinn í mótinu og leitt það…Lesa meira

true

Dóp fannst við húsleit

Ætlað amfetamín, kannabis og læknadóp fannst við húsleit í kjallaraíbúð á Akranesi um liðna helgi. Fjórir piltar voru handteknir og færðir til yfirheyrslu hjá Lögrelunni á Vesturlandi. Tveir piltanna voru undir lögaldri.Lesa meira

true

Skipaskagi er hrossaræktarbú ársins

Á haustfundi Hrossaræktarsambands Vesturlands voru veittar ýmsar viðurkenningar fyrir kynbótastarf og ræktun. Fremstu verðlaun hvers árs er þó viðurkenning fyrir Hrossaræktarbú Vesturlands. Að þessu sinni er það Skipaskagi, bú hjónanna Sigurveigar Stefánsdóttur og Jóns Árnasonar á Litlu-Fellsöxl. Tvisvar áður hefur búið hlotið þennan heiður en það voru árin 2008 og 2010. Í Skessuhorni í dag…Lesa meira

true

Slitnað upp úr stjórnarmyndun ACD

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur stöðvað viðræður milli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sem staðið hafa yfir frá því í síðustu viku. „Fundir flokkanna að undanförnu hafa leitt í ljós góðan samhljóm um ýmis mál, en áherslumun um útfærslu annarra, enda stefna flokkanna ólík á ýmsum sviðum,“ segir í tilkynningu. „Ég tel að samtöl undanfarinna…Lesa meira

true

Gekk í skrokk á konu sinni

Í vikunni sem leið fékk Lögreglan á Vesturlandi tilkynningu um mann sem hefði gengið í skrokk á sambýliskonu sinni þar sem þau dvöldu í orlofsbústað í Borgarfirði ásamt börnum sínum. Lögreglan fór á staðinn ásamt fulltrúum barnaverndarnefndar Borgarbyggðar.  Var maðurinn handtekinn og fluttur á lögreglustöð til yfirheyrslu og konan var flutt á heilsugæslustöð til aðhlynningar.…Lesa meira