Fréttir

true

Ragnheiður vann brons

Hópur ungra og efnilegra sundmanna úr Sundfélagi Akraness hélt utan um liðna helgi. Keppt var á Farum Cup, sem haldið er í bænum Farum á Sjálandi í Danmörku. Krakkarnir stóðu sig allir með prýði og syntu vel. Bestum árangri náði Ragnheiður Karen Ólafsdóttir sem hafnaði í þriðja sæti í 200m bringusundi meyja á nýju Akranesmeti.Lesa meira

true

Vesturlands- og Borgarfjarðarmeistarar í bridds

Í síðustu viku lauk Opna Borgarfjarðarmótinu í bridds með þátttöku 16 para frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði. Mótið var jafnframt Vesturlandsmót í tvímenningi og því keppt um tvo titla í senn. Spilað var einu sinni í Logalandi en tvö síðari keppniskvöldin fóru fram á Akranesi. Keppni efstu liða var nokkuð jöfn og skiptust þrjú þeirra…Lesa meira

true

Dagur umhverfisins í Hvalfjarðarsveit

Degi umhverfisins voru gerð góð skil í skólum Hvalfjarðarsveitar; Skýjaborg og Heiðarskóla. Skólarnir eru grænfánaskólar og leggja mikla áherslu á umhverfismennt en á degi umhverfisins nýttu báðir skólarnir tækifærið og veðurblíðuna til útivistar og hreinsunar á umhverfinu. Eldri deild leikskólans Skýjaborgar fór í gönguferð um Melahverfið með það fyrir augum að tína rusl og gera…Lesa meira

true

Skólameistarinn sýndi fordæmi og hvatti aðra til blóðgjafar

Blóðbankabíllinn kemur reglulega á Vesturland eins og lesendur Skessuhorns hafa orðið varir við. Í þessum ferðum er safnað blóði úr landsmönnum og komið til móts við þá sem ekki hafa tök á að heimsækja höfuðstöðvar Blóðbankans í Reykjavík. Bíllinn var staddur í Grundarfirði í síðustu viku til blóðsöfnunar eins og hann gerir tvisvar á ári.…Lesa meira

true

„Það er ekki hægt að bogna undir svona stuðningi“

Snæfell vann síðastliðinn þriðjudag sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í röð eftir frækinn sigur á Haukum. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari segir upplifunina alltaf jafn ánægjulega. „Það er alltaf gaman að vinna og ég mun aldrei venjast því. Þegar sú tilfinning verður orðinn sjálfsagður hlutur, bara venjulegur dagur á skrifstofunni, þá hætti ég,“ segir Ingi. „Þetta er aldrei…Lesa meira

true

Stóðu sig vel í Pangea stærðfræðikeppninni

        Um liðna helgi fór fram Pangea stærðfræðikeppni fyrir 8. og 9. bekk grunnskóla í landinu. Frá Akranesi komust fjórir krakkar í úrslit keppninnar, þar sem 35 krakkar úr hvorum árgangi unnu sér inn þátttökurétt. Þetta voru þau Aron Kristjánsson frá Brekkubæjarskóla en hann hlaut 42 stig og í hafnaði í 11.…Lesa meira

true

Níu björgunarlykkjur væntanlegar á Vesturland

Eins og fram kom í Skessuhorni í síðustu viku hefur Landsbjörg í samráði við Vegagerðina og Sjóvá ákveðið að standa að uppsetningu og kynningu björgunarlykkju, svokölluðu Björgvinsbelti, við áfangastaði þar sem hætta getur verið á drukknun, svo sem við sjó, vötn og ár. Í fyrsta áfanga verða björgunarlykkjur settar upp á 100 stöðum víðsvegar um…Lesa meira

true

Dimmisjón í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Væntanlegir útskriftarnemar í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fögnuðu því í dag að senn líður að útskrift og kennslu er formlega lokið. Á dimmisjón er hefð fyrir því að nemendur klæðist í búninga og í þetta skipti klæddu þeir sig upp sem annaðhvort Bangsímon eða Eyrnaslapi. Útskriftarhópurinn bauð samnemendum sínum og kennurum upp á létt spaug í…Lesa meira

true

Birna tekur við formennsku í Björgunarfélagi Akraness

Aðalfundur Björgunarfélags Akraness var haldinn síðastliðinn fimmtudag í húsi sveitarinnar við Kalmansvelli. Kosið var í stjórn félagsins á fundinum. Tveir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, en það voru þeir Þór Bínó Friðriksson fráfarandi formaður og Gísli Sigurjón Þráinsson fráfarandi varaformaður. Báðir hafa þeir verið í forsvari fyrir félagið um árabil. Á fundinum…Lesa meira

true

Fögnuður með úrvalsdeildarsætið

Það var glaðbeittur hópur Borgnesinga og annarra stuðningsmanna sem tók fagnandi á móti karlaliði Skallagríms þegar það mætti í Englendingavík seint í gærkvöldi. Liðið vann eins og áður hefur komið fram sigur á Fjölni í Oddaleik sem spilaður var í Dalhúsum í Grafarvogi. Þar með er ljóst að bæði karla- og kvennalið Skallagríms spila í…Lesa meira