Fréttir

true

Hvalfjarðargöng lokuð í þrjár nætur

Hvalfjarðargöng verða lokuð þrjár nætur í næstu viku vegna árlegra þrifa og viðhalds. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Næturnar sem um ræðir eru aðfaranótt þriðjudagsins 25., miðvikudagsins 26. og fimmtudagsins 27. október næstkomandi. Lokunin stendur yfir frá miðnætti og verða göngin lokuð til klukkan sex að morgni.Lesa meira

true

Dregið í bikarkeppni KKÍ

Í hádeginu í dag var dregið í bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands, auk þess sem sambandið kynnti nýjan samstarfsaðila, Ölgerðina. Mun bikarkeppni KKÍ bera nafnið Maltbikarinn næstu þrjú árin. Dregið var í 32-liða úrslitum karla, þar sem 31 lið erskráð til leiks. Því var dregið í 15 viðureignir en eitt lið situr hjá og fer beint í…Lesa meira

true

Viðreisn boðar til fundar á Akranesi

Viðreisn heldur opinn fund á Akranesi mánudaginn 24. október kl. 20:00 í Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11. Frambjóðendur flokksins munu halda örerindi um sín kærustu hugðarefni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, oddviti í Suðvesturkjördæmi. Þorsteinn Víglundsson, oddviti í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hanna Katrín Friðriksson, oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Gylfi Ólafsson, oddviti í Norðvesturkjördæmi. Jóhannes Finnur Halldórsson sem skipar heiðurssæti…Lesa meira

true

Snæfellsbær kaupir fasteign

Snæfellsbær hefur fest kaup á helmingi efri hæðarinnar að Kirkjutúni 2 í Ólafsvík. Á neðri hæð hússins er Átthagastofa Snæfellsbæjar og var hæðin áður í eigu Landsbankans og þar á undan í eigu Tölvuverks. Snæfellsbær á nú allt húsið. Í frétt á Facebook síðu sveitarfélagsins kemur fram að hugsunin á bak við þessi kaup sé…Lesa meira

true

Axel kosinn formaður Félags smábátaeigenda

Á aðalfundi Landssambands smábáteigenda í síðustu viku var Axel Helgason kosinn nýr formaður félagsins. Kosið var á milli hans og Þórðar Birgissonar. Axel hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir bát sinn Sunnu Rós SH-123, sem hann kom fyrir í búnaði til makríl- og grásleppuveiða. Á Sjávarútvegssýningunni 2016 hlaut hann verðlaun sem trillukarl ársins, en athygli hefur…Lesa meira

true

Þunnskipaðir Skagamenn töpuðu mjög stórt fyrir austan

Leikmenn ÍA lögðu land undir fót og mættu Hetti austur á Egilsstöðum í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Skagamenn voru fámennir í gær, aðeins sjö leikmenn á skýrslu og setti það mark sitt á leikinn því Derek Shouse og Áskell Jónsson spiluðu nánast hverja einustu mínútu. Þunnskipaðir og þreyttir Skagamenn áttu aldrei séns…Lesa meira

true

Slæmur síðari hálfleikur varð Snæfelli að falli

Snæfell heimsótti Keflavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Hólmarar létu finna fyrir sér í fyrri hálfleik en heimaenn fundu fjölina sína í þeim síðari og unnu að lokum 29 stiga sigur, 111-82. Keflvíkingar byrjuðu betur í leiknum og höfðu yfirhöndina fyrstu mínúturnar. Eftir það hrukku leikmenn Snæfells í gang. Þeir jöfnuðu metin,…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Skallagríms í hús

Skallagrímsmenn gerðu góða ferð norður yfir heiðar í gær þegar þeir sigruðu Þór Ak. í nýliðaslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Skallagrímur var sterkara liðið á vellinum, leiddi bróðurpart leiksins og sigraði að lokum með 90 stigum gegn 81. Borgnesingar mætti ákveðnir til leiks og náðu ellefu stiga forskoti eftir aðeins sjö mínútna leik. Þá…Lesa meira

true

Styrktarsamningur undirritaður

Forsvarsmenn körfuknattleiksdeildar Skallagríms í Borgarnesi og Límtrés Vírnets ehf. hafa ritað undir styrktarsamning þess efnis að fyrirtækið styrki rekstur körfuknattleiksdeildarinnar í vetur. Samningurinn var undirritaður fyrir síðasta heimaleik Skallagríms í Domino’s deild kvenna þegar liðið tók á móti Grindavík.  „Rekstur deildarinnar væri ekki mögulegur nema með dyggum stuðningi heimamanna,“ segir í tilkynningu á Facebook síðu…Lesa meira

true

Sex fyrirtæki fengu Ljósberann 2016

Viðurkenningin Ljósberi var afhent á Sauðamessu sem fram fór í Borgarnesi 1. október sl.  Viðurkenningin er afhent þeim fyrirtækjum og stofnunum í Borgarbyggð sem veita einstaklingum með fötlun atvinnu. Að þessu sinni fengu Leikskólinn Klettaborg, Leikskólinn Ugluklettur, Grunnskólinn í Borgarnesi, Safnahúsið, Hjúkrunarheimilið Brákarhlíð og N1 viðurkenninguna fyrir að veita störf allt árið og Golfklúbbur Borgarness…Lesa meira