Fréttir

true

Miklir vatnavextir í Ólafsvík

Eins og víða á norðanverðu Snæfellsnesi og Vesturlandi öllu er úrhellisrigning og rok í Ólafsvík þessa stundina. Þar hefur vindhraði verið milli 20 og 25 m/s síðustu klukkustundirnar og uppsöfnuð úrkoma á hverjum klukkutíma allt að 15 millimetrar síðan klukkan 10 í morgun. Mikið vatn hefur því safnast saman og hefur úrkoman meðal annars valdið því…Lesa meira

true

Fimm sinnum ekið á skepnur

Aðeins varð einn eiginlegur árekstur milli bíla í umdæminu í sl. viku og hann var auk þess minniháttar. En hins vegar var ekið fimm sinnum á skepnur í umdæminu í sl. viku, þar af einu sinni á hross. Ekið var á hrossið á Innnesvegi undir Akrafjalli um miðnættið aðfaranótt sl. laugardags. Bíllinn tjónaðist mikið og…Lesa meira

true

Fundi björgunarsveitarmanna frestað

Fundi sem halda átti í kvöld í húsnæði Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi um fatamál félagsins og Taiga hefur verið frestað vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Stefnt er að því að finna fundinum nýjan tíma fljótlega og verður það þá auglýst síðar.Lesa meira

true

„Ein peysan er í alvöru geðveik“

Harpa Hreinsdóttir handverkskona á Akranesi og Bjarni Þór Bjarnason listamaður ætla að efna til samsýningar á menningarhátíðinni Vökudögum, sem framundan er í bænum dagana 27. október til 6. nóvember næstkomandi. Sýna þau undir yfirskriftinni „Geggjaðar peysur“. Verða nokkrar af prjónapeysum Hörpu til sýnis innan um málverk Bjarna Þórs þar sem efnistökin eru peysur eða fólk…Lesa meira

true

Skora á bæjaryfirvöld að auka niðurgreiðslur

Valgerði Janusdóttur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs hjá Akraneskaupstað var í vikunni færður færðu undirskriftalisti, þar sem hópur Akurnesinga skorar á stjórnendur sveitarfélagsins að auka niðurgreiðslur vegna barna hjá dagforeldrum og rýmka reglur um aldur þeirra við innritun í leikskóla. Í áskoruninni var meðal annars bent á að niðurgreiðslan hjá Akraneskaupstað væri töluvert lægri en í…Lesa meira

true

Uppfærð frétt: Hvessir enn frekar með kvöldinu – Ófært á Snæfellsnesi

Djúp lægð er núna suðvestur af landinu og stjórnar hún veðrinu í dag. Hvasst er orðið víða á Vesturlandi, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi og undir Hafnarfjalli og víða rigning. Vindhviður eru víða milli 30 og 35 m/s á Snæfellsnesinu norðanverðu. Undir Hafnarfjalli fóru hviður yfir 40 m/s um áttaleytið í morgun en eru nú um…Lesa meira

true

Aron Baldursson, nýráðinn framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands, segir tækifærin líka vera úti á landi

Aron Baldursson er uppalinn í Rifi á Snæfellsnesi en hann tók nýverið við sem framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands. Aron er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík, en áður hafði hann lokið útvegsrekstrarfræði frá Tækniskólanum og þriðja stigs skipstjórnarprófi frá Stýrimannskóla Íslands. Aron og Karitas sambýliskona hans festu nýverið kaup á einbýlishúsi í Rifi og eru að…Lesa meira

true

Fjölmenningarhátíð var haldin í Rifi

Fjölmenni mætti í Frystiklefann í Rifi á laugardaginn þegar fjölmenningarhátíðin var haldin. Að vanda var margt í boði og meðal annars mörg tónitaratriði og kynningar á nokkrum þjóðlöndum. Gestir fengu að smakka þjóðarrétti frá ýmsum löndum en alls eru erlendir ríkisborgarar frá 16 löndum búsettir í Snæfellsbæ og eru þeir jafnframt um 16% íbúa. Kári…Lesa meira

true

Vill færa byggðamálin undir forsætisráðuneytið

Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hélt erindi á haustfundi SSV sem nýverið fór fram í Stykkishólmi. Hann hóf mál sitt á því að segja að hann væri einnig ráðherra byggðamála, því þau heyrðu undir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Hann hefði þó talað fyrir því að færa þennan málaflokk undir forsætisráðuneytið. „Ég tel að svona þverfaglegur málaflokkur eigi…Lesa meira

true

Óvenjuleg hornalögun

Flekkóttu lömbin á þessari mynd hafa óvenjulega hornagerð. Á gimbrinni vaxa hornin fram en hrúturinn til hægri hefur útstæð og klofin horn líkt og svarti og hvíti liturinn vilji ekki eiga samleið. En vafalítið eiga systkini þessi ættir að rekja til ferhyrnds fjár. Lömbin eru í eigu hjónanna Bærings Ingvarssonar og Mundhildar B. Guðmundsdóttur á…Lesa meira