Fréttir

true

Fjölmenningarhátíð var haldin í Rifi

Fjölmenni mætti í Frystiklefann í Rifi á laugardaginn þegar fjölmenningarhátíðin var haldin. Að vanda var margt í boði og meðal annars mörg tónitaratriði og kynningar á nokkrum þjóðlöndum. Gestir fengu að smakka þjóðarrétti frá ýmsum löndum en alls eru erlendir ríkisborgarar frá 16 löndum búsettir í Snæfellsbæ og eru þeir jafnframt um 16% íbúa. Kári…Lesa meira

true

Vill færa byggðamálin undir forsætisráðuneytið

Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hélt erindi á haustfundi SSV sem nýverið fór fram í Stykkishólmi. Hann hóf mál sitt á því að segja að hann væri einnig ráðherra byggðamála, því þau heyrðu undir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Hann hefði þó talað fyrir því að færa þennan málaflokk undir forsætisráðuneytið. „Ég tel að svona þverfaglegur málaflokkur eigi…Lesa meira

true

Óvenjuleg hornalögun

Flekkóttu lömbin á þessari mynd hafa óvenjulega hornagerð. Á gimbrinni vaxa hornin fram en hrúturinn til hægri hefur útstæð og klofin horn líkt og svarti og hvíti liturinn vilji ekki eiga samleið. En vafalítið eiga systkini þessi ættir að rekja til ferhyrnds fjár. Lömbin eru í eigu hjónanna Bærings Ingvarssonar og Mundhildar B. Guðmundsdóttur á…Lesa meira

true

Varasamar aðstæður gætu myndast á vegum á morgun

Því er spáð að hvessi af suðaustri í fyrramálið. Fljótlega upp úr klukkan 6:00 og til klukkan 8:00 má reikna með vindhviðum allt að 30-35 m/s undir Hafnarfjalli, á norðanverðu Snæfellsnesi og á Reykjanesbraut. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Lægir lítið eitt eftir hádegi en hvessir aftur síðdegis. Stormur eða rok annað kvöld,…Lesa meira

true

Færðu Grettislaug gjafir

Reynir Þór Róbertsson og Ása Fossdal, kaupmenn í Hólabúð á Reykhólum, komu færandi hendi á skrifstofu Reykhólahrepps á dögunum með gjafir til sundlaugarinnar Grettislaugar. Frá þessu er greint á Reykhólavefnum. Um er að ræða sundboli og -skýlur auk alls kyns hluta sem nýtast til sundæfinga. „Við þökkum innilega fyrir okkur,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir á…Lesa meira

true

Áttu bestu lambhrútana í öllum flokkum

Það sannaðist svo ekki verður um villst að féð í Hægindi í Reykholtsdal ber af öðru fé í Borgarfirði. Á hrútasýningu sem nýverið fór fram á Hesti í Andakíl voru hrútar frá Hægindi í efstu sætum í öllum flokkum, þ.e. í flokki hyrndra, kollóttra og mislitra lambhrúta. Ármann bóndi á Kjalvararstöðum átti síðan besta veturgamla hrútinn.…Lesa meira

true

Mögulega atvinnuráðgjafi á Akranes

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi, varpaði fram á haustfundi SSV, sem nýverið var haldinn, fyrirspurn til Páls S Brynjarssonar vegna stöðu atvinnuráðgjafa og hvort stæði til að dreifa ráðgjöfunum betur um landshlutann en verið hefur. Páll sagði að slíkt hefði ekki verið ákveðið, en samtökin hafi verið að kanna möguleika þess að setja upp aðstöðu…Lesa meira

true

Nýlegar iðrasýkingar af völdum salmonellu

Frá því í ágúst síðatliðnum hafa 12 einstaklingar greinst með iðrasýkingu af völdum Salmonella Typhimurium hér á landi. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að þessi fjöldi er talsvert umfram það sem búast má við af þessari tegund salmonellu. Flestir einstaklinganna hafa greinst á suðvesturhorni landsins en einn á Austurlandi. Þessar bakteríur virðast vera af…Lesa meira

true

Almenningssamgöngur færðar í sérstakt félag

Félagið NVB hefur verið stofnað til að reka almenningssamgöngur á Vesturlandi, en ábyrgðin verður eftir sem áður hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Framvegis verða almenningssamgöngur því ekki hluti ársreiknings SSV heldur verður reksturinn gerður upp sérstaklega. Á haustfundi SSV sem nýverið fór fram í Stykkishólmi kom fram í máli Páls S Brynjarssonar framkvæmdastjóra að tekjur…Lesa meira

true

Lagfærðu veginn yfir Fróðárheiði fyrir veturinn

Í liðinni viku unnu starfsmenn Stafnafells fyrir Vegagerðina að því að minnka skeringuna í Rjúpnaborgabrekkunni á Fróðárheiði. Var efninu mokað til hliðar við veginn til að auka öryggi vegfarenda því hátt er niður. Einnig er möguleiki nú fyrir þá sem þekkja vel til að aka utan vegar á þessum kafla ef mikill snjór safnast í…Lesa meira