Fréttir

true

Söngstund á bókasafninu

Í gær gekkst Bókasafn Akraness fyrir fjölskyldusöngstund á safninu. Þá komu börn og foreldrar saman, áttu notalega stund og sungu saman ýmis lög sem flestir könnuðust við. Yngri hópur Skólakórs Grundaskóla leiddi sönginn undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur.Lesa meira

true

Skákin er komin til að vera í Grunnskóla Grundarfjarðar

Hálfgert skákæði hefur gripið um sig meðal nemenda í unglingadeild Grunnskóla Grundafjarðar. Á síðasta ári var boðið upp á valáfangann „Tafl og spil“ þar sem nemendur lærðu meðal annars mannganginn. Áfanginn er ekki í boði nú en komið var fyrir taflborði í setustofu nemenda og þar hafa unglingarnir setið við tafl nú á haustmánuðum. Áhugi…Lesa meira

true

3,6 milljón lítra greiðslumark í mjólk seldist á síðasta opna markaðinum

Í gær kynnti Matvælastofnun tilboð sem bárust í greiðslumark í mjólk. Alls bárust 114 gild tilboð um kaup og sölu. Markaðurinn að þessu sinni var sá stærsti frá upphafi markaðar fyrir greiðslumark mjólkur, en jafnframt sá síðasti þar sem með nýjum búvörulögum verður hann lagður niður. Frá næstu áramótum tekur við innlausnarskylda ríkisins. Framvegis mun…Lesa meira

true

Borgarbyggð keppir í Útsvari á föstudag

Lið Borgarbyggðar hefur leik í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, föstudaginn 4. nóvember næstkomandi. Þá mæta Borgfirðingar liði Grindavíkur. Útsvarslið Borgarbyggðar skipa að þessu sinni þau Bryndís Geirsdóttir, Edda Arinbjarnar og Heiðar Lind Hansson. Borgarbyggð tók síðast þátt í Útsvari veturinn 2014-2015 þar sem þáverandi keppnislið komst alla lið í 16 liða úrslit en féll…Lesa meira

true

Sjósettu nýjan björgunarbát

Jón Gunnlaugsson, nýuppgerður björgunarbátur Björgunarfélags Akraness, var sjósettur í liðinni viku. Í Skessuhorni sem kom út í dag er sagt frá því að báturinn var keyptur frá Bretlandi fyrir rétt tæpum tveimur árum, en hann var upphaflega smíðaður af breska sjóhernum árið 1996. Þar var hann notaður við sjómælingar og sem hafnsögubátur. Allar götur frá…Lesa meira

true

Asíubúar í ógöngum í umferðinni

Alls urðu sjö umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Flest þessara óhappa voru minniháttar nudd á bílastæðum. Betur fór en á horfðist þegar asískur ökumaður missti stjórn á bílaleigubíl sínum í snjó og krapa á Vesturlandsvegi sl. laugardag.  Hann var á ferðalagi með kunningja sínum og upp undir Holtavörðuheiðinni lenti hann í…Lesa meira

true

Egilssaga brátt á hvíta tjaldið

Dagur Kári Pétursson og Benedikt Erlingsson leikstjóri eru nú í Kaupmannahöfn í þeim tilgangi að ganga frá samningum um kvikmyndina Egils saga Skallagrímssonar. Frá þessu greinir Benedikt á Facebook síðu sinni. Aðalframleiðandi myndarinnar verður fyrirtæki Benedikts, Gulldrengurinn ehf, en handrit skrifar hann sjálfur. Hér er um risastórt verkefni að ræða sem mun teigja anga sína…Lesa meira

true

Neyðarkall ársins er óveðurskall

Fjáröflunarátakið Neyðarkall björgunarsveita fer fram dagana 3. til 5. nóvember næstkomandi. Um er að ræða eina mikilvægustu fjáröflun björgunarsveitanna í landinu. Neyðarkallinn er lyklakippa með áföstum björgunarsveitamanni sem í ár er óveðurskall. Kallinn er vopnaður skóflu og kaðli sem er nauðsynlegur búnaður óðveðurskallsins sem er klár í íslenska óveðrið og ófærðina sem því fylgir. Á hverju ári…Lesa meira

true

Miklar skipulagsbreytingar framundan á Höfða

Stjórn hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hefur samþykkt tillögu að skipulagsbreytingum til að spara í rekstrarkostnaði. Tillagan felur í sér að eldhús Höfða verði lokað eftir kl. 16 á daginn og lögð verði niður störf í eldhúsi, samtals 4,55 stöðugildi. Eftir verða 3,5 stöðugildi. Þá verði lögð niður störf í býtibúrum heimilisins, samtals 2,76…Lesa meira

true

Leik Skallagríms flýtt um einn dag

Viðureign Skallagríms og Njarðvíkur í Domino‘s deild karla í körfuknattleik sem fara átti fram föstudaginn hefur verið flýtt um einn sólarhring. Fer hún því fram á fimmtudaginn, 3. nóvember næstkomandi. Leikurinn verður leikinn í Njarðvík og hefst kl. 19:15.Lesa meira