Fréttir

true

Ók utan í tvo kyrrstæða bíla

Umferðaróhapp varð á Skagabraut á Akranesi eftir hádegi í dag. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hann ók utan í tvo kyrrstæða og mannlausa bíla sem lagt hafði verið í götunni. Tildrög óhappsins eru ókunn og ekki urðu slys á fólki. Ökumanninum, sem var einn í bílnum, var þó komið undir læknishendur…Lesa meira

true

Skagamenn komnir á blað í 1. deildinni

Á föstudag mættust ÍA og Ármann í botnslag 1. deildar karla í körfuknattleik. Fyrir leikinn var hvorugt lið komið á blað í deildinni. Skagamenn höfðu tapað fyrstu fjórum leikjunum í vetur en Ármenningar fyrstu fimm leikjum sínum. Fór að lokum svo að Skagamenn sigruðu 65-88 og nældu sér í fyrstu stig tímabilsins. Jafnt var á…Lesa meira

true

Sefton með stórleik í tapi Snæfells

Snæfell mætti Þór Þorlákshöfn í Domino‘s deild karla síðastliðinn föstudag. Leikið var í Þorlákshöfn og voru það heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 110-85 og Snæfell því enn án sigurs í vetur. Strax í upphafi leiks var ljóst í hvað stefndi. Leikmenn Þórs byrjuðu af miklum krafti, náðu snemma forystunni og létu hana aldrei…Lesa meira

true

Héldu Hrekkjavökumót ÍA í klifri

Klifurfélag ÍA hélt Hrekkjavökumót fyrir iðkendur sína í dýflissunni á Vesturgötu um liðna helgi. Mótið var tvískipt; annars vegar klifruðu 1.-3. bekkingur saman fyrr um daginn og 4.-6. bekkingar saman síðar um daginn. Alls tóku 25 klifrarar þátt og áhorfendastúkan var þéttsetin. Framundan hjá ÍA er mót fyrir klifrara í Reykjavík 20. nóvember og í…Lesa meira

true

Forysta ASÍ einróma endurkjörin

Engin mótframboð bárust þegar forseta- og varforsetakjör fór fram á þingi Alþýðusambandsins í síðustu viku. Forsetarnir voru því endurkjörnir með dynjandi lófaklappi tæplega 300 þingfulltrúa. Gylfi Arnbjörnsson er því réttkjörinn forseti ASÍ til næstu tveggja ára en hann hefur gegnt embættinu frá haustinu 2008. Gylfi var því endurkjörinn forseti Alþýðusambandsins í fjórða skipti. Ólafía B.…Lesa meira

true

Allir skólarnir jafnir að stigum í West Side

Nemendur þriggja framhaldsskóla á Vesturlandi komu í síðustu viku saman í Borgarnesi og héldu West Side, árlegan samhristing nemenda. Menntaskóli Borgarfjarðar var gestgjafinn og bauð til sín nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Á West Side hittast nemendur skólanna, keppa í ýmsum greinum en dagskránni lýkur með dansleik. Á West Side að þessu sinni var…Lesa meira

true

Tónlistarkennarar samningslausir í ár

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir þungum áhyggjum af stöðunni sem uppi er í kjaradeilu Félags kennara og stjórnenda tónlistarskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kjarasamningar tónlistarskólakennara hafa verið lausir í nærfellt heilt ár eða frá 1. nóvember 2015, eða í rétt ár. „Staða tónlistarskólakennara er með þeim hætti að nýliðun er lítil sem engin innan stéttarinnar og…Lesa meira

true

Tvö tilboð bárust í sorphirðu og eru bæði langt yfir áætlun

Í lok ágústmánaðar óskuðu Akraneskaupstaður og Borgarbyggð sameiginlega eftir tilboðum í sorphirðu fyrir heimili í þéttbýli og dreifbýli, umsjón grenndarstöðva, rekstur móttökustöðva og flutning sorps. Verktími er frá 1. desember næstkomandi til 30. nóvember 2021. Opnun tilboða fór fram 11. október síðastliðinn og bárust tvö tilboð í verkið. Annars vegar frá Íslenska gámafélaginu ehf. upp…Lesa meira

true

Takmarkaður fjöldi tíðnirása fyrir útvarp

Póst- og fjarskiptastofnun hefur synjað beiðni Útvarps Sögu að nota áfram útvarpstíðnina 102,1 MHz. Stofnunin heimilaði SagaNet ehf. á árinu 2015 að nota tíðnina 102,1 MHz tímabundið, í þeim tilgangi að prófa hvort hún hentaði betur til útvarpsdreifingar á höfuðborgarsvæðinu, heldur en tíðnin 99,4 MHz sem útvarpsstöðin hefur heimild til að nota. Í apríl síðastliðnum…Lesa meira

true

Fá nú bifreiðastyrk þótt þeir hafi ekki bílpróf

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, setti í liðinni viku reglugerð sem heimilar að veita hreyfihömluðum styrki og uppbætur vegna bifreiða þótt þeir hafi ekki bílpróf ef þeir búa í sjálfstæðri búsetu og eru með persónulegan aðstoðarmann samkvæmt samningi við viðkomandi sveitarfélag. Fram til þessa hafa hreyfihamlaðir einungis átt rétt á styrkjum og uppbótum vegna bifreiðakaupa…Lesa meira