Fréttir

true

Búist við éljum á fjallvegum – göngin lokuð næstu nótt

Í dag kólnar nokkuð í veðri, einkum um landið vestan- og norðvestanvert. Seint í kvöld og í nótt frystir almennt ofan 200-300 metrum yfir sjó og má þá reikna með éljum á Hellisheiði, Mosfellsheiði, Snæfellsnesi, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Þá er minnt á að vegna þrifa og viðhalds í Hvalfjarðargöngum verða göngin lokuð lokuð næstu nótt…Lesa meira

true

Vökudagar hefjast á Akranesi á morgun

Menningarhátíðin Vökudagar hefst á Akranesi á morgun, fimmtudag. Um er að ræða árlegan viðburð en hátíðin hefur verið haldin undanfarin ár í bænum og orðin að föstum lið í menningarlífi Akurnesinga. Að sögn Ellu Maríu Gunnarsdóttur, forstöðumanns menningar- og safnamála á Akranesi, verður þó þjófstart í kvöld þegar svokallaður Upptaktur að Vökudögum verður haldinn á…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við Norðurkant Rifshafnar

Þessa dagana er verið að hefja framkvæmdir í Rifshöfn á Snæfellsnesi. Endurbyggja á stálþilið við Norðurkantinn en þilið sem er fyrir er orðið 52 ára og ástand þess lélegt. Tæring er komin í það og leka fyllingarefni út um göt á því. Rekið verður niður nýtt stálþil 207 metra langt fyrir framan gamla þilið. Þekjan…Lesa meira

true

Einna helst að kríungar forðist rauða vegamálningu

Eins og sagt var frá fyrr á þessu ári fór í sumar fram tilraunaverkefni á vegarkafla í kríuvarpinu á milli Rifs og Hellissands. Tilraunaverkefnið fólst í því að nokkrir stuttir vegarkaflar voru málaðir í nokkrum litum til að athuga hvort það myndi koma í veg fyrir að ungarnir settust á veginn en kríuungadauði er mjög…Lesa meira

true

Húsbíllinn lagðist á hliðina

Sex umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Allir hlutaðeigandi sluppu án teljandi meiðsla frá þessum óhöppum, að því best er vitað, enda fólkið með öryggisbeltin spennt. Í dagbók lögreglu kemur m.a. fram að erlend hjón, sem voru á húsbíl, leituðu skjóls undir Brekkufjalli í Borgarfirði í óveðrinu sl. föstudag. Fengu þau…Lesa meira

true

Sumargotssíldin fannst djúpt vestur af Reykjanesi

Fyrsta íslenska sumargotssíldin á vertíðinni veiddist í síðustu viku eftir að skipin fundu síldina loks djúpt vestur af Reykjanesi og Faxaflóa. Að sögn Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Víkingi AK, er síldin mjög dreifð á stóru svæði en hún virðist vera vel haldin og meðalvigtin er um 300 grömm. Um hádegisbilið í dag sagði Albert að…Lesa meira

true

Blóðbankinn kallar eftir blóði í O flokkum vegna hópslyss

Blóðbankinn hefur sett sig í samband við fólk í O-flokki og beðið það um að gefa blóð vegna rútuslyssins sem varð á Mosfellsheiði í morgun. 41 ferðamaður var í rútunni og tveir Íslendingar. Samkvæmt frétt á RUV eru að minnsta kosti fimm alvarlega slasaðir og fjórir voru fluttir á Landspítalann við Hrinbraut, minna slasaðir. Samkvæmt…Lesa meira

true

Hálkublettir á vegum

Hálkublettir eru nú á veginum við Hafnarfjall og í Borgarfirði og hálka er á Holtavörðuheiði, Vatnaleið og Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Hálkublettir eru einnig á Bröttubrekku, Laxárdalsheiði sem og á einhverjum fjallvegum á Vestfjörðum.Lesa meira

true

Íbúafundir um ljósleiðaramál

Í gærkvöldi hélt Borgarbyggð fyrri íbúafund sinn af tveimur um ljósleiðaravæðingu í sveitarfélaginu. Eins og fram hefur komið í fréttum er nú unnið að frumhönnun og kostnaðarmati á ljósleiðaravæðingu, en verkefnið er stórt þar sem Borgarbyggð er með landstærri sveitarfélögum landsins. Fundurinn í gær var haldinn í Brúarási í Hálsasveit og var fjölsóttur og góður,…Lesa meira

true

Endurnýjun raforkusamnings felur ekki í sér ríkisaðstoð

Það er mat Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, að endurnýjun raforkusamnings Norðuráls við Landsvirkjun feli ekki í sér ríkisaðstoð. Þetta segir í niðurstöðu stofnunarinnar sem gefin var út á mánudag. Stjórnvöld tilkynntu ESA um þriðju endurnýjun samnings Landsvirkjunar, um sölu raforku til álvers Norðuráls á Grundartanga í Hvalfirði, í maí síðastliðnum. Að lokinni forskoðun hjá ESA var…Lesa meira