
Bíll valt á Laxárdalsheiði í Dölum í morgun. Tvennt var í bílnum og slasaðist annar, hlaut meðal annars áverka á höfði. Hinn var minna slasaður. Beita þurfti klippum á bílinn til að ná öðrum manninum úr bílnum. Slysið varð á vegarkafla þar sem nýverið er búið að leggja klæðningu. Fréttavefurinn Mbl.is greindi frá.Lesa meira








