Fréttir

true

Kjarasamningarnir höfðu mikil áhrif á rekstur fyrirtækja

Í nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins meðal aðildarfyrirtækja sinna kemur fram að síðustu kjarasamningar hafi haft mikil áhrif á rekstur ríflega 80% fyrirtækjanna, óháð því hvort þau starfa á útflutningsmarkaði eða heimamarkaði. Af fyrirtækjunum gripu 43% til almennrar hagræðingar í rekstri og 18% sögðu upp fólki vegna áhrifa kjarasamninganna. Algengast var að fækkunin næmi 1-4 starfsmönnum,…Lesa meira

true

Grunnskólanemendur þreyta fyrstu rafrænu könnunarprófin

Tímamót verða í íslensku skólastarfi þegar samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir á rafrænu formi í þessari viku og þeirri næstu. Dagana 22. og 23. september munu nemendur í 7. bekk grunnskóla þreyta rafræn próf og í næstu viku, 29. og 30. september, er röðin komin að nemendum í 4. bekk. „Rafræn…Lesa meira

true

Leit lokið – lík mannsins fundið

„Leitinni að Guðmundi L Sverrissyni, sem staðið hefur yfir frá því í gærmorgun, er lokið. Guðmundur fannst látinn í flæðarmálinu í Örlygshöfn nú rétt fyrir hádegið í dag,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vestfjörðum. Rannsókn á tildrögum andlátsins er í höndum lögreglunnar sem segir ekki tímabært að gefa út frekari upplýsingar um málið. „Lögreglan…Lesa meira

true

Gekk fyrstur yfir Borgarfjörðinn – tímamóta í brúargerð minnst

Á fyrri hluta ársins 1980 var síðasta opinu í fyllingunni að Borgarfjarðarbrúnni lokað og hægt að ganga þar yfir þurrum fótum. Þótti við hæfi að Halldór E. Sigurðsson tæki fyrstu skrefin yfir þegar búið var að fylla upp í síðasta haftið á fyllingunni að brúnni. Framkvæmdir hófust þegar hann var samgönguráðherra árið 1975. Halldór hafði…Lesa meira

true

Siggi Jóns þjálfar áfram hjá ÍA

Sigurður Jónsson hefur skrifað undir nýjan samning um að þjálfa áfram hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Gildir samningurinn til eins árs. Frá þessu er greint á vef KFÍA. Hann mun þjálfa 2. og 4. flokk karla auk þess að sinna afreksæfingum í 2., 3., og 4., flokki bæði karla og kvenna. Siggi Jóns kom til starfa hjá…Lesa meira

true

Vestlenskt björgunarsveitafólk tók þátt í leit

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum og Vesturlandi voru kallaðar út í gær til að leita karlmanns á miðjum aldri sem sást síðast á Patreksfirði í fyrrinótt. TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flutti auk þess leitarfólk frá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu til að leggja lið leitarfólkinu fyrir vestan. Með í för var þjálfaður sporhundur. Yfir 50 björgunarsveitarmenn tóku í…Lesa meira

true

Hlaut nýsköpunarverðlaun sjávarklasans

Einar Þór Lárusson hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslenska sjávarklasans sem afhent verða við opnun Sjávarútvegssýningarinnar í næstu viku, miðvikudaginn 28. september. Einar hefur verið ötull liðsmaður og forystumaður um meiri og betri nýtingu íslenskra auðlinda. Í dag starfar hann hjá Akraborg á Akranesi, Ísam, ORA og Lýsi. Einar á langa og merka sögu í nýsköpun tengdri íslenskum matvælaiðnaði…Lesa meira

true

Haustlægð gengur yfir – hvasst á sunnanverðu Snæfellsnesi í kvöld

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er bent á að síðar í dag hvessir vegna haustlægðar sem kemur hratt upp að landinu suðaustanverðu. Reikna má með hviðum í Öræfum, allt að 30-35 m/s frá því síðdegis. Í kvöld og nótt er spáð norðanátt á sunnanverðu Snæfellsnesi og má gera ráð fyrir sterkum vindhviðum því samhliða.Lesa meira

true

Krefjast þess að Alþingi og ríkisstjórn vakni af Þyrnirósarsvefni

Eins og greint er frá í Skessuhorni vikunnar hafa um eða yfir 30 óhöpp eða slys orðið á Skógarstrandarvegi, 60 km löngum malarvegi sem liggur milli Hörðudals og Stykkishólmsvegar. Þrettán sinnum hefur lögregla og sjúkralið mætt á vettvang vegna slysa á fólki og milli 15 og 20 manns hafa þurft að leita sér læknishjálpar, að…Lesa meira

true

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi

Stjórn Viðreisnar hefur staðfest framboðslista flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 29. október næstkomandi. Fyrir um hálfum mánuði voru kynnt nöfn þriggja efstu á listanum. Listinn í heild er þannig:   Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur, Ísafirði Lee Ann Maginnis, verkefnastjóri, Blönduósi Sturla Rafn Guðmundsson, svæðisstjóri RARIK á Vesturlandi Lísbet Harðardóttir, málari, Ísafirði Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, lögfræðingur, Blönduósi…Lesa meira