Fréttir

true

Segja að auðlindagjöld styðji uppbyggingu innviða á landsbyggðinni

Skessuhorn mun í þeim tölublöðum sem koma út fram að kosningum til Alþingis 29. október næstkomandi eiga samtal við fulltrúa þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram lista í Norðvesturkjördæmi. Enn eiga nokkrir listar eftir að líta dagsins ljós og sumir eru hálfskapaðir. Þá liggur ekki nákvæmlega fyrir hversu mörg framboðin verða. Fyrst til leiks kynnum við…Lesa meira

true

Með skrifstofu í vitanum

Líkt og fram hefur komið í Skessuhorni stendur Hilmar Sigvaldason vaktina í Akranesvita allt árið um kring og sinnir nú einnig upplýsingagjöf til ferðamanna á Akranesi úr vitanum. Sett hefur verið upp aðstaða fyrir Hilmar á fyrstu hæð vitans en upplýsingamiðlun til ferðamanna á Akranesi er nú einungis í Akranesvita. Standar með bæklingum verða þó…Lesa meira

true

Nafn mannsins sem lést

Banaslys varð á Útnesvegi skammt austan við Arnarstapa á Snæfellsnesi aðfararnótt sunnudags þegar jeppabifreið valt. Karlmaður lést en kona sem einnig var í bílnum var flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún liggur á gjörgæsludeild. Maðurinn hét Oddur Haraldsson. Hann var búsettur að Litla-Kambi í Snæfellsbæ. Oddur var 38 ára að…Lesa meira

true

Breyting á reglum um merkingar búfjár

Matvælastofnun vekur athygli á breytingarreglugerð um merkingar búfjár sem tók gildi 19. ágúst síðastliðinn. Í reglugerðinni er gerð breyting á 6. gr. sem fjallar um merkingar nautgripa. Hér eftir er tekin upp skylda að merkja alla kálfa, einnig þá sem slátrað er innan 20 daga, með forprentuðu plötumerki í bæðu eyru. Ekki er lengur leyfilegt…Lesa meira

true

Kirkjugarður Akraness hækkaður

Framkvæmdir við hækkun kirkjugarðsins á Akranesi eru hafnar. Í fyrra kom í ljós að hluti garðsins reyndist ekki grafartækur þegar dýptarmæling var gerð á svæðinu sem sýndi hæðarlegu klappar miðað við núverandi land. Í ljós kom að klöppin var það ofarlega að ekki myndi nást nauðsynleg grafardýpt og er því nú verið að bæta jarðvegi…Lesa meira

true

Hlynur Gauti ráðinn skógræktarráðgjafi á Vesturlandi

Skógræktin hefur ráðið Hlyn Gauta Sigurðsson í stöðu skógræktarráðgjafa á Vesturlandi. Hlynur Gauti er með BS próf í umhverfisskipulagi frá Landbúnaðarháskóla Íslands, diplómu í borgarskógrækt frá sænska Landbúnaðarháskólanum og danska Landbúnaðarháskólanum sem var. Þá hefur hann einnig lokið meistaragráðu í landslagsarkitektúr frá Kaupmannahafnarháskóla. Hlynur Gauti starfaði um árabil sem verkefnastjóri við ráðgjöf og áætlanagerð hjá…Lesa meira

true

Honda Classic mótið fór fram á Garðavelli

Honda Classic mót Eimskipsmótaraðarinnar í golfi var leikið á Garðavelli um síðustu helgi. Vallaraðstæður voru nokkuð breytilegar á fyrsta hring mótsins þar sem gekk á með miklum vindi og rigningu. Aðstæður voru síðan mun betri á öðrum keppnisdegi og lokahringnum en á fyrsta degi mótsins. Úrslit mótsins urðu þau að Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbi…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu þrátt fyrir óskabyrjun

Í gær mættust ÍA og Stjarnan í 20. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Garðabænum og máttu Skagamenn sætta sig við 3-1 tap. Skagamenn fengu óskabyrjun því þeir komust yfir strax á 3. mínútu leiksins. Darren Lough átti fyrirgjöf frá vinstri. Boltinn fór af varnarmanni, þaðan í stöngina og í þann mund…Lesa meira

true

Víkingur Ó. enn í fallbaráttu eftir jafntefli við Þrótt

Í gærkvöldi mættust Víkingur Ó. og botnlið Þróttar í 20. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Niðurstaða leiksins var jafntefli þar sem hvort lið skoraði eitt mark. Leikmenn Víkings voru frískari á upphafsmínútum leiksins en Þróttarar voru smá tíma að taka við sér. Eftir það var jafnræði með liðunum en heimamenn sköpuðu sér þó hættulegri…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær hefur tekið nýja heimasíðu í notkun

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að uppsetningu nýrrar heimasíðu fyrir sveitarfélagið Stykkishólmsbæ. Hefur það verkefni verið í höndum Hermanns Hermannssonar, ritara bæjarstjóra, með faglegri ráðgjöf Önnu Melsteð hjá Anok margmiðlun ehf. Endurgerð hýsing vefsins www.stykkisholmur.is var unnin af hugbúnaðarfyrirtækinu Advania, sem átti hagstæðasta tilboðið í þann hluta verkefnisins. Þetta kemur fram í tilkynningu Sturlu…Lesa meira