Fréttir

true

„Skattaumhverfið stendur litlum fyrirtækjum fyrir þrifum“

G Valdimar Valdemarsson skipar oddvitasæti Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar. „Ég er fæddur og uppalinn á Skagaströnd og er kvæntur Sigurlínu H. Steinarsdóttur frá Borgarnesi. Saman eigum við eina dóttur en Sigurlína átti tvær fyrir. Nú erum við orðin afi og amma og að rifna úr stolti,“ segir G. Valdimar í samtali við…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan heimasigur á Grindavík

Skallagrímur tók á móti Grindavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi, Skallagrímskonur höfðu þó yfirhöndina allan tímann en náðu aldrei að hrista Grindvíkinga af sér. En að lokum fór svo að Borgnesingar unnu góðan sigur með 80 stigum gegn 72. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur leiksins og eftir…Lesa meira

true

Fögnuðu 35 ára afmæli Grundaskóla

Fimmtudaginn 6. október var haldið upp á 35 afmæli Grundaskóla á Akranesi með ýmsum hætti. Farið var í skrúðgöngu um morguninn frá skólanum og í íþróttahúsið að Jaðarsbökkum þar sem fram fór samsöngur hjá öllum bekkjardeildum skólans. Þá var starfsfólki boðið í afmæliskaffi en í Safnaskálanum í Görðum var opnuð leikmunasýning úr söngleikjum skólans. Það…Lesa meira

true

Endurreisn heilbrigðiskerfisins er mikilvægasta verkefnið

Inga Björk Bjarnadóttir skipar annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar. Hún er alin upp í Borgarnesi en býr í Reykjavík eins og er, þar sem hún stundar meistaranám í listfræði við Háskóla Íslands. „Það var frábært að alast upp í Borgarnesi. Maður kann kannski ekki að meta heimabæinn sinn þegar maður…Lesa meira

true

Urð og grjót átti eina boðið

Nýverið voru opnuð hjá Vegagerðinni tilboð í dýpkun smábátahafnarinnar á Skarðsstöð í Dölum. Dýpka á höfnina um tvo metra og gert ráð fyrir að fjarlægja þurfi 240 rúmmetra efnis. Koma á fyrir um 1200 rúmmetra fyllingu og grjótvörn við steinbryggjuna. Verkinu skal lokið fyrir 1. desember nk. Eitt tilboð barst í verkið og var það…Lesa meira

true

Nýtt fjós tekið í notkun á Gunnlaugsstöðum

Miðvikudaginn 28. september voru kýrnar á Gunnlaugsstöðum í Stafholtstungum mjólkaðar í fyrsta skipti í nýju og glæsilegu fjósi. Á Þverárréttardag fyrir rúmu ári var mælt fyrir sökkli og byggingingarframkvæmdir hófust í kjölfarið. Áætlanir gerðu ráð fyrir að fjósið yrði tilbúið síðasta vor, en tafir af ýmsum orsökum urðu á verkinu um hálft ár. Það eru…Lesa meira

true

Hótelþvottur brátt opnaður á Bifröst

Nú er unnið að stofnun nýs fyrirtækis sem verður til húsa á Bifröst í Borgarfirði. Nefnist það Hótelþvottur ehf. Eins og nafnið gefur til kynna er um rekstur þvottahúss fyrir hótel að ræða. Að fyritækinu standa Inger Helgadóttir í Borgarnesi ásamt hjónunum Ásdísi Sigurðardóttur og Guðjóni Guðvarðarsyni. Hótelþvottur verður í hluta húsnæðis sem Samkaup rak…Lesa meira

true

Hvessir í kvöld við fjöll á vestanverðu landinu

Það hvessir heldur í kvöld frá því sem verið hefur og reikna má með snörpum hviðum, eða 30-35 m/s, frá því um klukkan 19-21 á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi.  Dregur aftur úr vindi í nótt. „Ágætt er líka að hafa í huga að veggrip er mun lakara á umræddum vegum í því…Lesa meira

true

Fundað með frambjóðendum um ferðamál

„Ætla stjórnmálin að sitja hjá?“ er yfirskrift opins fundar með stjórnmálamönnum í Norðvesturkjördæmi þar sem fjallað verður um ferðaþjónustu. Fundurinn verður í Hjálmakletti í Borgarnesi annað kvöld, fimmtudaginn 13. október klukkan 20. Bein útsending frá fundinum verður á sjónvarpsstöðinni N4 og á saf.is „Í aðdraganda alþingiskosninga standa Samtök ferðaþjónustunnar fyrir opnum fundum um stöðu ferðaþjónustunnar…Lesa meira

true

Frambjóðendur sátu fyrir svörum í FVA

Frambjóðendur átta stjórnmálaflokka í Norðvesturkjördæmi sátu í morgun fyrir svörum í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þrátt fyrir að Alþingi sé enn starfandi standa framboðsfundir nú sem hæst enda styttist óðum í kosningar. Á fundinum á sal FVA voru fulltrúar frá Bjartri framtíð, Dögun, Framsóknarflokki, Pírötum, Samfylkingu, Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Vinstri grænum. Fundurinn byrjaði á að flokkarnir kynntu…Lesa meira