Fréttir

true

Dagskrá Vökudaga fjölbreytt og skemmtileg

Nú líður að menningarhátíðinni Vökudögum sem haldin er á hverju hausti á Akranesi. Hátíðin mun að þessu sinni standa yfir í ellefu daga, hefjast fimmtudaginn 27. október og standa til sunnudagsins 6. nóvember. „Það hefur myndast hefð fyrir því að vera með upptaktsatriði daginn áður en hátíðin er formlega sett og í ár verða íslenskir…Lesa meira

true

Ferðamál voru til umræðu í pallborði á Haustþingi SSV

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem fram fór í Stykkishólmi í síðustu viku, fóru fram pallborðsumræður undir stjórn Gísla Einarssonar fréttamanns. Fjallað var um ferðaþjónustu og hlutverk sveitarfélaga í uppbyggingu hennar. Þátttakendur í pallborðinu voru Hrafnhildur Víglundsdóttir verkefnastjóri Ferðamálastofu Íslands, Skapti Ólafsson upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri í Landnámssetrinu í Borgarnesi, Guðjón…Lesa meira

true

Stoltir nemendur með fjörutíu kílóa uppskeru

Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar á Hellissandi nýttu sér góða veðrið í lok september til að sinna haustverkum en í vor settu þau niður kartöflur í matjurtargarð skólans. Verkefnið er hluti af átthagafræðinámi skólans en þau létu kartöflurnar spíra í vor og með aðstoð kennara og starfsfólks stungu þau upp garðinn og settu kartöflurnar…Lesa meira

true

Ríkið eignast afrétti, jökla og úthaga víða í Borgarfirði

Óbyggðanefnd kvað í dag upp úrskurði í ágreiningsmálum um þjóðlendur í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu auk Langjökuls, að undanskildum fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Þetta svæði kallar nefndin 8B og er það hið tíunda sem nefndin úrskurðar um á landinu. Á næsta ári er að vænta úrskurðar í kröfum ríkisins í Dalasýslu og þá hefur ráðherra ekki enn lýst…Lesa meira

true

Hafró leggur til að óbreyttu verði loðnuveiðar ekki stundaðar

Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins fóru fram á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundsyni dagana 9. september – 5. október. Rannsóknasvæðið náði frá landgrunninu við Austur Grænland og suðvestur með landgrunnskanti Grænlands, en auk þess til Grænlandssunds, Íslandshafs og Norðurmiða. „Ungloðna, sem myndar hrygningar- og veiðistofninn á vertíðinni 2017/2018, var vestast og sunnantil á svæðinu. Magn…Lesa meira

true

Varað við vindhviðum á norðanverðu Snæfellsnesi

Með vatnsveðri sem gengur yfir sunnan- og vestanvert landið mun einnig ná að hvessa, einkum vestantil á landinu. Þannig er hætt við vindhviðum, allt að 30-35 m/s, þvert á veg á norðanverðu Snæfellsnesi í nótt og framan af morgundeginum. Vindáttin verður sunnan- og suðaustanstæð.Lesa meira

true

Fá óhöpp í umferðinni

Aðeins urðu fjögur umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku og telst það að sögn lögreglu vel sloppið miðað við fjölda óhappa undanfarnar vikur. Tveir erlendir ferðamenn lentu útaf á bílaleigubílnum sínum á afleggjaranum sem liggur að Hótel Hafnarfjalli um liðna helgi. Bíllinn hélst á réttum kili en fólkið fékk högg á sig…Lesa meira

true

Úrhellisrigningu spáð næstu tvo daga

Veðurstofa Íslands varar við óvenju mikilli úrkomu á öllu sunnan- og vestanverðu landinu í nótt og fram á fimmtudag. Gert er ráð fyrir meira en 500 millimetra afrennsli af Eyjafjallajökli og almannavarnir eru í viðbragðsstöðu, einkum vegna flóða á Suðurlandi. Í fréttum RUV er haft eftir Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðingi að ekki hefði sést svo…Lesa meira

true

Rarik skiptir um spenni

Það vakti athygli föstudaginn 7. október sms tilkynning frá Rarik þar sem varað var við rafmagnstruflunum í Grundarfirði. Ástæða tilkynningarinnar var að vinna stóð yfir við að skipta um spenni í spennustöð bæjarins en á meðan var sett upp færanleg spennustöð sem keyrði rafmagn á bæinn á meðan vinnan stóð yfir. Ný spennustöð er í…Lesa meira

true

Bjarthegri á ferð við Breiðafjörð

Bjarthegri (Egretta garzetta) hefur að undanförnu verið á ferð við Stykkishólm. Þetta er fremur sjaldgæfur flækingsfugl hér við land. Hann er mjög ljós og með mikinn skúf aftan á höfði. Meðfylgjandi mynd tók Sumarliði Ásgeirsson.Lesa meira