Fréttir

true

Hlutu umhverfisverðlaun Borgarbyggðar

Á Sauðamessu sem fram fór í Borgarnesi síðastliðinn laugardag voru árlegar umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar afhentar. Kallað var eftir tilnefningum og er það umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefnd sem annast framkvæmdina. Jónína Erna Arnardóttir formaður nefndarinnar afhenti verðlaunin ásamt Gunnlaugi A Júlíussyni sveitarstjóra. Að þessu sinni var snyrtilegasta bændabýlið Ölvaldsstaðir 4 í Borgarbyggð þar sem Guðrún Fjeldsted býr…Lesa meira

true

Bókaloftið styrkir barnastarf Umf. Íslendings

Á lofti Halldórsfjóss á Hvanneyri er Bókaloftið rekið en það er góðgerðamarkaður með notaðar bækur. Frumkvöðullinn að verkefninu og umsjónamaður þess er Ásdís B. Geirdal, einnig þekkt sem Dísa í Lækjartúni. Þann 17. september síðastliðinn átti Bókaloftið eins árs afmæli og af því tilefni gaf Dísa allan ágóða síðasta árs, 120.000 krónur, til Ungmennafélagsins Íslendings.…Lesa meira

true

Átta slys og óhöpp í umferðinni á einni viku

Samtals urðu átta umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í síðustu viku. Á föstudsag var harður árekstur þegar sjúkrabíll í forgangsakstri lenti á jeppling á Vesturlandsvegi á móts við Gufuá. Þar voru allir í öryggisbeltum og því fór mun betur en á horfðist í fyrstu, að sögn lögreglu. Tveir erlendir ferðamenn slösuðust minniháttar er bílaleigubíll þeirra fór…Lesa meira

true

Vilja ná niður umferðarhraða um Engihlíð

Í sumar þegar Engihlíðin í Ólafsvík var malbikuð voru hraðahindranir teknar.  Í þessari götu þarf hins vegar að ná hraðanum niður vegna þess að þarna er mikil umferð gangandi fólks og sérstaklega er mikið af skólabörnum. Í gær voru settar þrengingar í þeirri von að ökumenn sjái að sér og dragi úr hraða. Þarna er um…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir fyrirhugaðar á Grundartanga

Á næsta ári er ráðgert að verja um 550 milljónum króna til framkvæmda á Grundartangasvæðinu og felst meginverkefnið í gatnagerð og aðgerðum í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu Silicor. Þetta segir Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna. „Þær framkvæmdir eru hins vegar háðar því að Silicor ljúki sínum undirbúningi og fjármögnun verkefnisins. Þá verður unnið að endurbótum á…Lesa meira

true

Ármann Smári er leikmaður ársins

Ármann Smári Björnsson, fyrirliði ÍA, hefur verið kjörinn leikmaður ársins 2016 hjá Morgunblaðinu í Pepsi deild karla í knattspyrnu. Hann varð efstur í einkunnagjöf íþróttafréttamanna blaðsins sem gefa leikmönnum einkunn fyrir frammistöðu sína í hverjum einasta leik sem þeir taka þátt í á tímabilinu. Fyrirliðinn missti af síðustu þremur leikjum tímabilsins eftir að hann sleit…Lesa meira

true

Kartöflusýning og fræðslufundur um kartöflufræ

Á morgun, miðvikudaginn 5. október kl. 19:30, verður kartöflusýning og fræðslufundur í sal Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1 í Reykjavík. Flutt verður stutt erindi um kartöflurækt af fræi, frækartöflur í flestum litum regnbogans verða til sýnis og gestum gefst kostur á að spyrja og spjalla. Undanfarin ár hafa nokkrir félagar í Garðyrkjufélagi Íslands fengist við að rækta…Lesa meira

true

Krakkasport í Stykkishólmi

Íþróttaskólinn Krakkasport í Stykkishólmi er nú vaknaður af sumardvala og kominn á fullt skrið.  Um skólann sjá þær Sigga og María sem báðar eru menntaðar íþrótta- og heilsufræðingar frá Háskóla Íslands.  Skólinn er ætlaður börnum á aldrinum 2-5 ára sem mæta ásamt foreldrum eða forráðamönnum í íþróttahúsið í Stykkishólmi á laugardagsmorgnum þar sem gleðin tekur…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið, Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 4. október frá kl. 10:00-17:00. Í tilkynningu kemur fram að allir sem mega og geta gefið blóð eru hvattir til að mæta. Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag til að viðhalda lágmarks birgðum.Lesa meira

true

Kanadískur framherji í Snæfell

Kanadamaðurinn Sefton Barrett mun leika með Snæfelli á komandi vetri í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Sefton er reynslumikill leikmaður, fæddur árið 1983. Hann er 196 sentímetrar á hæð og leikur stöðu framherja. Hann lék með Central Michigan háskólanum í bandaríska háskólaboltanum áður en hann hélt í atvinnumennsku. Á síðasta vetri lék hann með liði…Lesa meira