Fréttir

true

Krakkasport í Stykkishólmi

Íþróttaskólinn Krakkasport í Stykkishólmi er nú vaknaður af sumardvala og kominn á fullt skrið.  Um skólann sjá þær Sigga og María sem báðar eru menntaðar íþrótta- og heilsufræðingar frá Háskóla Íslands.  Skólinn er ætlaður börnum á aldrinum 2-5 ára sem mæta ásamt foreldrum eða forráðamönnum í íþróttahúsið í Stykkishólmi á laugardagsmorgnum þar sem gleðin tekur…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið, Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 4. október frá kl. 10:00-17:00. Í tilkynningu kemur fram að allir sem mega og geta gefið blóð eru hvattir til að mæta. Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag til að viðhalda lágmarks birgðum.Lesa meira

true

Kanadískur framherji í Snæfell

Kanadamaðurinn Sefton Barrett mun leika með Snæfelli á komandi vetri í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Sefton er reynslumikill leikmaður, fæddur árið 1983. Hann er 196 sentímetrar á hæð og leikur stöðu framherja. Hann lék með Central Michigan háskólanum í bandaríska háskólaboltanum áður en hann hélt í atvinnumennsku. Á síðasta vetri lék hann með liði…Lesa meira

true

900 landsleiksmiðar fara í sölu þriðjudaginn 4. október

KSÍ hefur gefið það út að miðasala á landsleik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM 2018 fari fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is og hefjist kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 4. október. Um er að ræða miða, um 900 talsins, sem teknir voru frá fyrir stuðningsmenn Tyrkja en verða ekki notaðir.  Miðarnir sem fara í…Lesa meira

true

Vesturlandsliðunum spáð tveimur efstu sætunum

Spá formanna, þjálfara og fyrirliða í Domino‘s deildum og 1. deildum karla og kvenna fyrir tímabilið 2016-2017 var kynnt á blaðamannafundi í hádeginu í dag. Ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Snæfells í körfuknattleik kvenna er spáð efsta sæti deildarinnar nokkuð afgerandi. Hlaut liðið 186 stig í kosningunni og hlýtur að teljast sigurstranglegt sem ríkjandi Íslandsmeistari. Athygli…Lesa meira

true

Skagamenn í fimmta sæti í Bikarkeppni SÍ

Um liðna helgi var Bikarmót Sundsambands Íslands haldin í Reykjanesbæ. Margir af sterkustu sundmönnum Íslands syntu á mótinu. Sundfélag Akraness sendi bæði kvenna- og karlalið og var gengi þeirra framar vonum en bæði liðin urðu í fimmta sæti. Hvað stigafjölda varðar er árangurinn á mótinu  í ár sá besti síðastliðin átta ár. Margir sundmennirnir bættu…Lesa meira

true

Grátlegt tap í lokaleiknum

ÍA tók á móti KR í lokaleik Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu síðasta föstudag. Skagakonur áttu ekki möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en hefðu með sigri getað tekið KR með sér niður í 1. deild. Sú varð hins vegar ekki raunin því eftir æsispennandi leik tókst gestunum að tryggja sér nauman sigur…Lesa meira

true

Arion banki eignast tryggingafélagið Vörð

Arion banki hefur eignast 100% hlutafjár í tryggingafélaginu Verði. Í október á síðasta ári sömdu Arion banki og BankNordik um kaupin. Samningurinn var skilyrtur og meðal annars háður samþykki opinberra aðila. Öll skilyrði samingsins hafa verið uppfyllt. „Það er ánægjulegt að kaupin hafi nú gengið í gegn en það tók lengri tíma en við væntum…Lesa meira

true

Snæfell sigraði keppnina um Meistara meistaranna

Íslands- og bikarmeistarar Snæfells í körfuknattleik kvenna sigruðu Grindavík þegar leikið var um Meistara meistaranna í gær. Í þeim leik mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs, en þar sem Stykkishólmsliðið hampaði báðum titlunum var liðið úr úrslitum bikarkeppninnar fengið til að etja kappi við Snæfell. Nokkur haustbragur var á leik beggja liða framan af og…Lesa meira

true

Fjórtán skólar fá styrki til að efla forritunarþekkingu

Úthlutað hefur verið styrkjum úr sjóðnum „Forritarar framtíðarinnar“ fyrir árið 2016. Sjóðnum bárust um 30 umsóknir í þessari úthlutun, flestar frá grunnskólum. Virði styrkjanna er samtals tæplega tólf milljónir króna, en þeir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunarkennslu fyrir nemendur. Að þessu sinni fengu fjórtán grunnskólar úthlutað og eru þrír þeirra á…Lesa meira