Fréttir

true

SamVest keppti í Bikarkeppni FRÍ um helgina

Sunnudaginn síðastliðinn, 21. ágúst, fór fram Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands í frjálsum íþróttum utanhúss fimmtán ára og yngri. Um er að ræða liðakeppni og sendi Vesturlandsliðið SamVest öflugt lið til keppni sem náði að manna allar keppnisgreinarnar en hver keppandi má aðeins taka þátt í tveimur greinum. SamVest stóð sig með stakri prýði og endaði með…Lesa meira

true

Samantekt um starf allra leikskóla á Vesturlandi

Fyrr í ágústmánuði voru allir leikskólar á Vesturlandi opnaðir að nýju eftir sumarlokanir. Nýir nemendur hafa nú flestir stigið sín fyrstu skref á sínu fyrsta skólastigi, aðlögun að hefjast eða henni jafnvel að ljúka og hefðbundið skólastarf að fara í gang. Skessuhorn heyrði í stjórnendum allra 16 leikskólanna á Vesturlandi og fékk helstu upplýsingar frá hverjum…Lesa meira

true

Þórður Þorsteinn valinn í U-21 árs landsliðið

Eyjólfur Sverrisson þjálfari U-21 árs landsliðsins í knattspyrnu og aðstoðarmaður hans Tómas Ingi Tómasson hafa nú tilkynnt landsliðshópinn sem mun taka þátt í tveimur útileikjum í undankeppni fyrir EM 2017. Leikirnir sem um ræðir eru gegn Norður-Írlandi 2. september og Frakklandi 6. september. Skagamaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson var valinn í hópinn að þessu sinni og…Lesa meira

true

„Sjávarútvegur mikilvægasta atvinnugreinin sem ber að greiða hærra veiðileyfagjald“

Komin er út bókin „Íslenskur sjávarútvegur í alþjóðlegu samhengi,“ eftir Ágúst Einarsson prófessor. Þetta er fyrsta bók sinnar tegundar á íslensku sem kemur út hérlendis. Fjallað er um sjávarútveg frá fjölmörgum sjónarhornum og er bókin tæpar 400 blaðstíður að lengd. „Sjávarútvegur hefur staðið undir mikilli breytingu lífskjara hér á landi í rúma öld og getið…Lesa meira

true

Aðgát skal höfð við akstur lyftara

Ýmsir sem aka lyftara eru gjarnir á að hlaða körum framan á lyftara sína, eins og sést á meðfylgjandi mynd sem tekin var í Rifi á Snæfellsnesi, og aka síðan áfram. Þá er útsýni fram á við ekkert, eða í það minnsta mjög skert. Við slíkar aðstæður á að bakka lyftaranum, ekki síst ef þvera…Lesa meira

true

Vilhjálmur harðorður vegna ákvörðunar um að lögreglunám fari á Akureyri

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hefur ákveðið að Háskólinn á Akureyri taki að sér háskólanám í lögreglufræði, en ákvörðun þar að lútandi var kynnt í gær. Gert er ráð fyrir að kennsla hefjist á næstu vikum og að jafnaði muni 40 manns stunda háskólanám í lögreglufræðum. Fjórir háskólar sóttu um að taka námið að sér. Auk HA…Lesa meira

true

Tónleikar á Hvalfjarðarströnd og í Stykkishólmi

Sunnudaginn 28. ágúst kl. 14:00 verða fluttir söngtónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ og þriðjudaginn 30. ágúst kl. 20:00 í Stykkishólmskirkju. Flytjendur verða Alexandra Chernyshova sópransöngkona, Lubov Molina kontraalt og Valeria Petrova sem spilar undir á píanó. Flutt verður tónverkið Stabat Mater eftir G. Pergolesi sem skrifað var fyrir sópran og alt kvenraddir. Verkið samdi tónskáldið…Lesa meira

true

Víkingur Ó. spilar um laust sæti í úrvalsdeild

Víkingur Ó. mætti liði liði Skínanda í þrettándu umferð A- riðils í fyrstu deild kvenna í fótbolta fimmtudaginn 18. ágúst síðastliðinn. Leiknum lauk með 2-0 sigri Víkings en mörkin skoruðu þær Freydís Bjarnadóttir og Samira Suleman. Með sigrinum tryggði Víkingur sér þriðja sæti A-riðils og þar með umspilsrétt um sæti í úrvalsdeild kvenna að ári.…Lesa meira

true

Víða straumleysi aðfararnótt föstudags

Rafmagnslaust verður norðan Skarðheiðar aðfarranótt föstudagsins 26. ágúst frá kl. 01:00 til kl. 06:00 vegna vinnu Landsnets í aðveitustöð við Vatnshamra í Andakíl. Um er að ræða allt svæðið norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borgarfjörð, Mýrasýslu og þar með talið alla þéttbýlisstaði, svo sem Borgarnes, Bifröst og Hvanneyri. Rarik bendi einnig raforkunotendum á Snæfellsnesi á að varavélar…Lesa meira

true

Skagamenn semja við nýjan Bandaríkjamann

Nú um helgina náðist samkomulag milli Körfuknattleiksfélags ÍA og Bandaríkjamannsins Derek Dan Shouse um að Derek muni leika með félaginu á komandi leiktíð. Derek er 22ja ára bakvörður sem er 185 cm á hæð og getur leyst stöðu leikstjórnanda og skotbakvarðar. Derek er að stíga sín fyrstu spor sem leikmaður utan Bandaríkjanna en til gamans…Lesa meira