
Eldvörnum í leiguhúsnæði á Akranesi er að jafnaði ábótavant, samkvæmt könnun sem Akraneskaupstaður gerði í samvinnu við Eldvarnabandalagið. Vel ríflega helmingur svarenda sagðist aðeins vera með einn reykskynjara eða jafnvel engan. Innan við þriðjungur er með allt í senn; reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi eins og Eldvarnabandalagið mælir með. Sambærilegt hlutfall á landsvísu er um 45%.…Lesa meira








