
Síðar í þessum mánuði verður frumflutt sýning í Landnámssetri Íslands um athafnamanninn og frumkvöðulinn Thor Jensen. Það er rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson sem mun segja sögu Thors, en Thor Jensen var langafi Guðmundar Andra. „Ég rek sögu Thors frá því að hann er ungur piltur í Kaupmannahöfn og kemur svo hingað 14 ára gamall og allslaus.…Lesa meira








