
Leikið var í 19. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í dag. Á Akranesvelli tóku heimamenn í ÍA á móti erkifjendunum úr KR. Urðu Skagamenn að þessu sinni að sætta sig við tap með einu marki gegn engu í fremur tíðindalitlum leik. Völlurinn var rennandi blautur eftir rigningardag og setti það svip sinn á leikinn.…Lesa meira








