Fréttir

true

Nýr verkefnisstjóri umhverfisvottunar

Náttúrustofa Vesturlands hefur ráðið nýjan starfsmann til að sinna EarthCheck umhverfisvottunarverkefni sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi. Það er líffræðingurinn Birna Heide Reynisdóttir, sem undanfarið hefur unnið sem sérfræðingur í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og er í meistaranámi í umhverfisstjórnun meðfram starfi. Hún flyst til Stykkishólms og mun hefja störf á Náttúrustofunni 1. október nk. Valið stóð á milli…Lesa meira

true

Biðla til bænda að finna bilaðan dróna

Erlendur ferðamaður tapaði „Phantom 4“ dróna á Bröttubrekku um síðustu helgi. Hafði maðurinn verið að fljúga drónanum þegar tækið gaf merki um að rafhlaðan væri að verða tóm. Voru honum þá send boð um að „koma heim“ en hann skilaði sér ekki þrátt fyrir það. Ferðamaðurinn leitaði árangurslaust í um fimm klukkustundir og fór síðan…Lesa meira

true

Bændur mótmæla verðskrá

Á stjórnarfundi Búnaðarsamtaka Vesturlands 29. ágúst síðastliðinn var samþykkt ályktun til að mótmæla verðskrá sláturleyfishafa: „Stjórn Búnaðarsamtaka Vesturlands lýsir yfir vonbrigðum með framkomnar verðskrár frá sláturleyfishöfum fyrir sauðfjárafurðir nú í haust, þar sem boðaðar eru umtalsverðar verðlækkanir. Búnaðarsamtök Vesturlands styður sauðfjárbændur og samtök þeirra í baráttu þeirra við að fá þessum verðlækkunum hnekkt og skorar…Lesa meira

true

Söfnuðu nítján þúsund dósum og flöskum

Eitt af verkefnum björgunarsveitarinnar Lífsbjargar og unglingadeildarinnar Drekans í Snæfellsbæ er dósasöfnun. Farið er reglulega í dósasöfnun á Hellissandi og í Rifi og safnast alltaf vel. Einnig hafa staðið gámar við verslanir á svæðinu og tjaldsvæðin sem vel hefur safnast í. Um mikilvæga fjáröflun sveitarinnar er að ræða og er ágóðinn af dósasöfnunum nýttur í…Lesa meira

true

FVA hlýtur veglegan styrk vegna umhverfisverkefnis

Fjölbrautaskóli Vesturlands fékk nýverið úthlutað 15 milljóna króna styrk til umhverfisverkefnis sem nefnist ,,Think, Act, Work Sustainable.“ Kemur styrkurinn úr menntahluta Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlun ESB. Samstarfsskólar FVA í verkefninu eru frá Ítalíu, Spáni, Þýskalandi og Frakklandi. „Markmiðið með verkefninu er að auka umhverfisvitund nemenda og hvetja til betri nýtingar hráefna og sjálfbærni á sem…Lesa meira

true

Kynningarfundir í dag um íslenska matvælaframleiðslu

Kynningarfundir um íslenska matvælaframleiðslu, þróun stöðu og horfur með áherslu á landbúnað, verða haldnir í dag í Borgarnesi og í Búðardal á vegum Arion banka. Á fundunum verður fjallað um nýútgefna úttekt greiningardeildar Arion banka um íslenska matvælaframleiðslu. Konráð S. Guðjónsson og Erna Björg Sverrisdóttir sérfræðingar hjá greiningardeild kynna úttektina. „Í úttektinni eru dregnar fram…Lesa meira

true

Sáttir að afloknum slætti

„Auðvitað segjum við allt gott, hvernig ætti annað að vera hægt eftir svona frábært sumar,“ sögðu bændurnir og nágrannarnir Guðjón Kjartansson á Síðumúlaveggjum og Gunnar Bjarnason á Hurðarbaki í Borgarfirði þegar ljósmyndari Skessuhorns hitti þá á bökkum Hvítár fyrir helgina. Með þeim var einnig Jónas sonur Guðjóns. Þá höfðu þeir nýlokið við að ná heyrúllu…Lesa meira

true

Mæðgur og Magazín er ný verslun í Stykkishólmi

Verslunin Heimahornið í Stykkishólmi hefur kvatt Hólmara og aðra viðskiptavini en versluninni var lokað síðastliðinn miðvikudag. Á föstudeginum opnuðu svo nýir eigendur dyrnar undir nafninu Mæðgur og Magazín. Mæðgurnar Linda Bergmann og Brynhildur Inga Níelsdóttir standa nú vaktina og heilsa viðskiptavinum með brosi á vör. Verslunin verður með svipuðu sniði og Heimahornið, segir Linda „Við…Lesa meira

true

Mikill áhugi fyrir ljósleiðaratengingu í Borgarbyggð

Rétt rúmlega 88% þeirra sem eiga íbúðarhúsnæði í dreifbýli Borgarbyggðar, þar með taldir sumarhúsaeigendur, hafa áhuga á að fá ljósleiðaratengingu. Frá þessu er greint á vef Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Þar af hafa 91,5% mjög eða frekar mikinn áhuga. Um helmingur kveðst hafa áhuga á ljósleiðara vegna atvinnutengdra verkefna en 94% af persónulegum ástæðum. Alls…Lesa meira

true

Grunnskólakennarar felldu nýjan kjarasamning

Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara felldi nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í atkvæðagreiðslu sem stóð dagana 31. ágúst til 5. september. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var sú að 39,67% vildu samþykkja samninginn en 57,46% voru á móti. Tæp 3% atkvæðaseðla voru auðir. Á kjörskrá voru 4513 en 3028 greiddu atkvæði, eða 67,1% félagsmanna.Lesa meira