Fréttir

true

Söfnuðu nítján þúsund dósum og flöskum

Eitt af verkefnum björgunarsveitarinnar Lífsbjargar og unglingadeildarinnar Drekans í Snæfellsbæ er dósasöfnun. Farið er reglulega í dósasöfnun á Hellissandi og í Rifi og safnast alltaf vel. Einnig hafa staðið gámar við verslanir á svæðinu og tjaldsvæðin sem vel hefur safnast í. Um mikilvæga fjáröflun sveitarinnar er að ræða og er ágóðinn af dósasöfnunum nýttur í…Lesa meira

true

FVA hlýtur veglegan styrk vegna umhverfisverkefnis

Fjölbrautaskóli Vesturlands fékk nýverið úthlutað 15 milljóna króna styrk til umhverfisverkefnis sem nefnist ,,Think, Act, Work Sustainable.“ Kemur styrkurinn úr menntahluta Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlun ESB. Samstarfsskólar FVA í verkefninu eru frá Ítalíu, Spáni, Þýskalandi og Frakklandi. „Markmiðið með verkefninu er að auka umhverfisvitund nemenda og hvetja til betri nýtingar hráefna og sjálfbærni á sem…Lesa meira

true

Kynningarfundir í dag um íslenska matvælaframleiðslu

Kynningarfundir um íslenska matvælaframleiðslu, þróun stöðu og horfur með áherslu á landbúnað, verða haldnir í dag í Borgarnesi og í Búðardal á vegum Arion banka. Á fundunum verður fjallað um nýútgefna úttekt greiningardeildar Arion banka um íslenska matvælaframleiðslu. Konráð S. Guðjónsson og Erna Björg Sverrisdóttir sérfræðingar hjá greiningardeild kynna úttektina. „Í úttektinni eru dregnar fram…Lesa meira

true

Sáttir að afloknum slætti

„Auðvitað segjum við allt gott, hvernig ætti annað að vera hægt eftir svona frábært sumar,“ sögðu bændurnir og nágrannarnir Guðjón Kjartansson á Síðumúlaveggjum og Gunnar Bjarnason á Hurðarbaki í Borgarfirði þegar ljósmyndari Skessuhorns hitti þá á bökkum Hvítár fyrir helgina. Með þeim var einnig Jónas sonur Guðjóns. Þá höfðu þeir nýlokið við að ná heyrúllu…Lesa meira

true

Mæðgur og Magazín er ný verslun í Stykkishólmi

Verslunin Heimahornið í Stykkishólmi hefur kvatt Hólmara og aðra viðskiptavini en versluninni var lokað síðastliðinn miðvikudag. Á föstudeginum opnuðu svo nýir eigendur dyrnar undir nafninu Mæðgur og Magazín. Mæðgurnar Linda Bergmann og Brynhildur Inga Níelsdóttir standa nú vaktina og heilsa viðskiptavinum með brosi á vör. Verslunin verður með svipuðu sniði og Heimahornið, segir Linda „Við…Lesa meira

true

Mikill áhugi fyrir ljósleiðaratengingu í Borgarbyggð

Rétt rúmlega 88% þeirra sem eiga íbúðarhúsnæði í dreifbýli Borgarbyggðar, þar með taldir sumarhúsaeigendur, hafa áhuga á að fá ljósleiðaratengingu. Frá þessu er greint á vef Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Þar af hafa 91,5% mjög eða frekar mikinn áhuga. Um helmingur kveðst hafa áhuga á ljósleiðara vegna atvinnutengdra verkefna en 94% af persónulegum ástæðum. Alls…Lesa meira

true

Grunnskólakennarar felldu nýjan kjarasamning

Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara felldi nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í atkvæðagreiðslu sem stóð dagana 31. ágúst til 5. september. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var sú að 39,67% vildu samþykkja samninginn en 57,46% voru á móti. Tæp 3% atkvæðaseðla voru auðir. Á kjörskrá voru 4513 en 3028 greiddu atkvæði, eða 67,1% félagsmanna.Lesa meira

true

Norðurál og Landsvirkjun undirrita raforkusamning

Eins og greint var frá í maí síðastliðnum náðu Landsvirkjun og Norðurál samkomulagi um endurnýjun raforkusamnings fyrirtækjanna sem upphaflega var gerður árið 1997, á kjörum sem tengt verður markaðsverði í Norður-Evrópu. Var samningurinn sendur til forskoðunar hjá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, en undirritun beið þess að forskoðun lyki. Henni er nú lokið með jákvæðri niðurstöðu ESA…Lesa meira

true

Píratar felldu listann og kjósa nú aftur

Endurtektarkosning fyrir röðun á framboðslista Pírata í Norðvesturkjördæmi hófst á miðnætti og stendur þar til á hádegi á miðvikudag. Ellefu frambjóðendur gefa áfram kost á sér en bæði Þórður Guðsteinn Pétursson, sem kosinn var efstur á lista í prófkjörinu, og Halldóra Sigrún Ásgeirsdóttir, kapteinn Pírata á Vestfjörðum, hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér…Lesa meira

true

Vinafélag Barmahlíðar gefur tíu bekki

Í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir á stórum hluta opins svæðis á Reykhólum í grennd við dvalar- og hjúkrunarheimilisið Barmahlíð, eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni. Jarðvinnu er lokið fyrir knattspyrnuvöll milli skólans og dvalarheimilisins, steyptir hafa verið göngustígar og gert torg þangað sem minnismerkið um Jón Thoroddsen hefur verið fært. Framkvæmdum…Lesa meira