Fréttir

true

Skipafans í Stykkishólmshöfn

Breiðafjarðarferjan Baldur og skemmtiferðaskipið Ocean Dimond voru bæði í höfn í Stykkishólmi um helgina. Þegar tvö svo stór skip eru í höfninni í einu skilja þau ekki mikið pláss eftir. Hér má sjá þegar farþegabátnum Særúnu er siglt milli skipanna með farþega á laugardaginn. Veðrið var einstaklega kyrrt og fallegt og þess nutu farþegar Særúnar í…Lesa meira

true

Víkingur Ó. fékk skell í fyrsta leik úrslitakeppninnar

Úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu hófst laugardaginn 3. september síðastliðinn. Víkingur Ó. hafnaði sem kunnugt er í þriðja sæti B riðils og mætti því liði Grindvíkinga, sem lauk riðlakeppninni í efsta sæti B riðils. Leikið var á Ólafsvíkurvelli. Víkingskonur áttu á brattann að sækja stærstan hluta leiksins gegn sterku liði Grindvíkinga. Gestirnir komust yfir…Lesa meira

true

Skipt um eldsneytistanka við Olís í Stykkishólmi

Þessa dagana standa yfir framkvæmdir við afgreiðslustöð Olís við Aðalgötu í Stykkishólmi. Þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni nýverið blasti við beltagrafa á planinu við suðurenda stöðvarinnar. Þar hafði steypt planið verið brotið upp, djúp hola grafin og til hliðar sást að hífður hafði verið upp olíutankur. Þær upplýsingar fengust í afgreiðslu að verið væri…Lesa meira

true

Telur að ná megi betri árangri í nautakjötsframleiðslu

Nýverið var tekið í notkun nýtt nautaeldisfjós í Hvítanesi í Hvalfjarðarsveit. Af því tilefni var opið hús á Hvalfjarðardögum. Skessuhorn ræddi við Jón Þór Marinósson, bónda í Hvítanesi, um byggingu fjóssins og fleira. Hann var að vonum ánægður og sagði að framkvæmdir hefðu gengið afskaplega vel. „Þetta gekk eiginlega bara lyginni líkast. Fyrsta skóflustungan var tekin…Lesa meira

true

Píratar reyna hópfjármögnun til að safna í kosningasjóð

Píratar hafa kynnt til sögunnar samstarf við Karolinafund vegna fjármögnunar kosningabaráttu flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Frá því um áramót hafa Píratar mælst einn stærsti stjórnmálaflokkur landsins og málefni Pírata hafa notið hjómgrunns hjá hluta þjóðarinnar. Á stefnumótunarfundi Pírata um helgina, þar sem efstu fimm frambjóðendur á listum Pírata voru, var ákveðið að fjáröflun fyrir kosningasjóð yrði hleypt…Lesa meira

true

Býr til varning úr ljósmyndum sem hann tekur

Finnur Andrésson áhugaljósmyndari á Akranesi hefur verið mikið á ferðinni með myndavélina síðustu árin og framleiðir auk þess minjagripi þar sem hann notar myndefnið. „Ég er nú að framleiða dagatal þriðja árið í röð. Allar myndirnar á því eru norðurljósamyndir eftir mig sem teknar eru á Vesturlandi. Það er prentað á ljósmyndapappír og fá myndirnar…Lesa meira

true

Helena tekur við meistaraflokki kvenna hjá ÍA

Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna fyrir næsta tímabil hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Helena mun því taka við liðinu af þeim Kristni Guðbrandssyni og Steindóru Steinsdóttur sem eins og áður hefur verið greint frá munu klára tímabilið með liðið í Pepsi deild. Kristinn og Steindóra munu áfram vera í baklandi meistaraflokks kvenna auk þess…Lesa meira

true

Haraldur og Þórdís Kolbrún sigurvegarar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fór fram í gær. Atkvæði voru talin í morgun í Valhöll í Reykjavík. Niðurstaða prófkjörsins er sú að Haraldur Benediktsson alþingismaður og bóndi varð í fyrsta sæti, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir skipar annað sætið og Teitur Björn Einarsson þriðja. Hafdís Gunnarsdóttir er í fjórða sæti, Jónína Erna Arnardóttir í fimmta og Aðalsteinn Orri…Lesa meira

true

Flaggaði í hálfa stöng eftir að kjötverð KS lá fyrir

„Jæja í gær gat ég flaggað fyrir fallegum degi en í dag dreg ég fánann í hálfa stöng því að í dag kom út afurðaverðskrá hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Þeir boða 8% verðlækkun á lambakjöti og 30% verðlækkun á ærkjöti,“ skrifaði Þóra Sif Kópsdóttir sauðfjárbóndi á Ystu-Görðum í Kolbeinsstaðarhreppi á Facebook síðu sína í gær. „Þessir…Lesa meira

true

Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi völdu lista

Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi stendur nú yfir á Bifröst í Borgarfirði. Uppstillingarnefnd kynnti í gær tillögu sína um framboðslista og var hún samþykkt. Gunnar Bragi Sveinsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra frá Sauðárkróki leiðir listann líkt og í kosningunum 2013. Í öðru sæti er Elsa Lára Arnardóttir á Akranesi sem færist upp um eitt sæti. Í þriðja sæti…Lesa meira