Fréttir

true

Kraftar eldgoss og kvenna sameinast í listinni

Myndlistarkonan Michelle Bird í Borgarnesi er nú að vinna að myndaröð sem tengir saman eldgos og konur. Hún tók upp pensilinn og málaði mynd daginn sem byrjaði að gjósa í Geldingadölum og úr varð málverk af konu syndandi í rauðu hafi. „Það kom upp þessi tilfinning hjá mér frá krafti náttúruaflanna svo ég byrjaði bara…Lesa meira

true

Kynna tillögu að friðlýsingu Borgarvogs

Umhverfisstofnun hefur nú lagt fram tillögu að friðlýsingu Borgarvogs í Borgarnesi. Ef tillagan verður samþykkt verður Borgarvogur friðland í samræmi við málsmeðferðarreglur laga um náttúruvernd. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 14. júlí næstkomandi. Ábendingum og athugasemdum skal skila með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar. „Tillagan…Lesa meira

true

Steinbítsmok á miðunum út af Blakknesi

Línubáturinn Kristinn HU, sem rær frá Ólafsvík, lenti heldur betur í steinbítsmoki út af Blakknesi á Barðaströnd nú í vikunni. Aflinn var 29 tonn á 60 bala sem er 483 kíló á hvern bala. Bárður Guðmundsson útgerðarmaður segir í samtali við fréttaritara Skessuhorns að Kristinn hafi verið ásamt öðrum bátum út af Látrabjargi þar sem…Lesa meira

true

Mikil eftirspurn eftir nýjum lóðum og húsum í Húsafelli

Framkvæmdir eru hafnar við nýtt fjörutíu húsa hverfi í Húsafelli í Borgarfirði. Skessuhorn greindi ítarlega frá þessu verkefni í nóvember síðastliðnum, en síðan hefur verið haldið áfram með undirbúning að verkefninu þannig að menn yrðu „klárir í bátana,“ þegar formleg kynning hæfist. Um nýliðin mánaðamót hófst svo formleg markaðssetning húsa og lóða og óhætt að…Lesa meira

true

Pfizer flýtir afhendingu bóluefna

Framkvæmdastjóri Evrópusambandins tilkynnti í morgun að bóluefnaframleiðandinn Pfizer muni afhenda um 50 milljónum fleiri bóluefnaskammta til Evrópuþjóða en áður hafði verið reiknað með á öðrum ársfjórðungi. Þetta þýðir að Ísland mun fá samtals rúmlega 192 þúsund bóluefnaskammta frá Pfizer fyrir lok júní sem dugir til að bólusetja um 96 þúsund einstaklinga.Lesa meira

true

Allt að hundrað áhorfendur mega mæta á íþróttaleiki

Heilbrigðisráðuneytið gerði breytingu í gærdag á áður kynntum reglum um áhorfendur á íþróttakappleikjum. Í fyrstu tilkynningu um reglugerð ráðherra kom fram að áhorfendur yrðu ekki leyfðir frá og með morgundeginum 15. apríl, en nú hefur ráðuneytið ákveðið að leyfi verði gefið fyrir allt að 100 áhorfendum á leiki, en þeir þurfa að sitja í númeruðum…Lesa meira

true

Fiskur fyrir 27 milljarða í mars

Útflutningsverðmæti sjávarafurða frá landinu nam 26,9 milljörðum króna í mars samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í gærmorgun. Það er rúmlega 4% aukning í krónum talið miðað við mars í fyrra, en rúm 2% mælt í erlendri mynt. Þetta er nokkuð stór mánuður miðað við sama mánuð undanfarinn áratug, sér í lagi í útflutningi á ferskum…Lesa meira

true

Aprílúthlutun Mæðrastyrksnefndar í næstu viku

Aprílúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram þriðjudaginn 20. apríl í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25a frá kl. 12-16:30. Tekið er á móti umsóknum 15. og 16. apríl frá kl. 11-13 í síma 859-3000 eða 859-3200. Einnig má sækja um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com. Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn búsetuvottorði og staðgreiðsluskrá, segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Tilboð Borgarbyggðar í hús Arion banka samþykkt

Arion banki hefur gengið að kauptilboði Borgarbyggðar í húsnæði bankans við Digranesgötu 2 í Borgarnesi. Þetta staðfesti Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, í samtali við Skessuhorn í gær. „Það eru þó fyrirvarar á tilboðinu eins og um ástandsskoðun á húsinu en við vonum að þetta komi allt vel út,“ segir Þórdís. Þá segir hún Borgarbyggð…Lesa meira

true

Óvissa um framhald skólastarfs í Laugargerði

Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps á Snæfellsnesi glímir þessa dagana við fjölþætt vandamál. Snúa þau m.a. að samskiptavanda, þungum rekstri sveitarsjóðs og rakavandamálum í grunn- og leikskólanum í Laugargerði. Rakavandamál hafa orsakað slæm loftgæði í skólahúsinu. Mygla hefur þó ekki verið staðfest með óyggjandi hætti eftir sýnatöku Verkís á staðnum, en einkenna engu að síður orðið…Lesa meira