Fréttir

true

Fiskur fyrir 27 milljarða í mars

Útflutningsverðmæti sjávarafurða frá landinu nam 26,9 milljörðum króna í mars samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í gærmorgun. Það er rúmlega 4% aukning í krónum talið miðað við mars í fyrra, en rúm 2% mælt í erlendri mynt. Þetta er nokkuð stór mánuður miðað við sama mánuð undanfarinn áratug, sér í lagi í útflutningi á ferskum…Lesa meira

true

Aprílúthlutun Mæðrastyrksnefndar í næstu viku

Aprílúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram þriðjudaginn 20. apríl í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25a frá kl. 12-16:30. Tekið er á móti umsóknum 15. og 16. apríl frá kl. 11-13 í síma 859-3000 eða 859-3200. Einnig má sækja um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com. Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn búsetuvottorði og staðgreiðsluskrá, segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Tilboð Borgarbyggðar í hús Arion banka samþykkt

Arion banki hefur gengið að kauptilboði Borgarbyggðar í húsnæði bankans við Digranesgötu 2 í Borgarnesi. Þetta staðfesti Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, í samtali við Skessuhorn í gær. „Það eru þó fyrirvarar á tilboðinu eins og um ástandsskoðun á húsinu en við vonum að þetta komi allt vel út,“ segir Þórdís. Þá segir hún Borgarbyggð…Lesa meira

true

Óvissa um framhald skólastarfs í Laugargerði

Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps á Snæfellsnesi glímir þessa dagana við fjölþætt vandamál. Snúa þau m.a. að samskiptavanda, þungum rekstri sveitarsjóðs og rakavandamálum í grunn- og leikskólanum í Laugargerði. Rakavandamál hafa orsakað slæm loftgæði í skólahúsinu. Mygla hefur þó ekki verið staðfest með óyggjandi hætti eftir sýnatöku Verkís á staðnum, en einkenna engu að síður orðið…Lesa meira

true

160 fermetra húsi stolið

Lögreglunni á Vesturlandi barst nýlega tilkynning um að 160 fermetra ósamsettu stálgrindarhúsi hefði verið stolið frá Galtarholti í Borgarbyggð. Ljóst er að talsvert öflug tæki hefur þurft til verknaðarins en eigandi hins stolna húss gat ekki tímasett þjófnaðinn nánar en frá tímabilinu september 2020 til tilkynningardags. Lögregla rannsakar málið.Lesa meira

true

Baldur í slipp í maí

Ákveðið hefur verið að Breiðafjarðarferjan Baldur fari í slipp í byrjun maí. Í tilkynningu frá Sæferðum kemur fram að um sé að ræða hefðbundna og reglulega slipptöku sem framkvæmd er annað hvert ár. Baldur verður tekinn í slipp 3. maí og verður í tvær vikur. Áætlað er að siglingar hefjist svo að nýju 17. maí.…Lesa meira

true

Iðnaðarhúsnæði innsiglað

Leigutakar við Brákarbraut 25-27 í Borgarnesi urðu eins og kunnugt er að hætta starfsemi í húsnæðinu í Brákarey eftir að alvarlegar athugasemdir byggingafulltrúa og eldvarnaeftirlits Borgarbyggðar um ágalla á brunavörnum lágu fyrir í byrjun febrúar. Það var gert til að tryggja öryggi og heilsu þeirra sem hingað til hafa haft starfsemi þar. Var leigutökum gert…Lesa meira

true

Slakað verður á samkomutakmörkunum á fimmtudaginn

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur greint frá tilslökunum á samkomutakmörkunum og í skólastarfi sem taka gildi frá og með fimmtudeginum 15. apríl. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir skilaði inn tillögum til ráðherra í gær. Helstu breytingar eru þær að almennar fjöldatakmarkanir fara úr tíu í tuttugu manns. Sundstaðir og heilsu- og líkamsræktarstöðvar mega opna að nýju með takmörkunum…Lesa meira

true

Umdeilt frumvarp um lífeyrismál

Í síðustu viku lagði fjármálaráðherra fram frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign. Óhætt er að segja að afar skiptar skoðanir séu um frumvarpið og meðal annarra hafa verkalýðsforingjarnir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, brugðist harkalega við og mótmælt því…Lesa meira

true

Þrír í einangrun á Vesturlandi

Þrír voru greindir með kórónuveiruna innanlands í gær og voru þeir allir utan sóttkvíar. Samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is eru nú þrír í einangrun á Vesturlandi; tveir í Borgarnesi og einn á Akranesi. Í gær voru aðeins tveir í einangrun í landshlutanum. Þá hefur einnig fjölgað í sóttkví í landshlutanum og eru nú 25 í…Lesa meira