
Línubáturinn Kristinn HU, sem rær frá Ólafsvík, lenti heldur betur í steinbítsmoki út af Blakknesi á Barðaströnd nú í vikunni. Aflinn var 29 tonn á 60 bala sem er 483 kíló á hvern bala. Bárður Guðmundsson útgerðarmaður segir í samtali við fréttaritara Skessuhorns að Kristinn hafi verið ásamt öðrum bátum út af Látrabjargi þar sem…Lesa meira








