Fréttir

true

Einn kominn í einangrun og annar í sóttkví

Samkvæmt yfirliti Lögreglunnar á Vesturlandi er nú einn kominn í einangrun með Covid-19 og annar er í sóttkví á svæði heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi. Töluvert er síðan veiran var síðast staðfest í landshlutanum, en það var 12. febrúar. Í gær voru sex manns greindir með veiruna á landsvísu og voru fimm þeirra ekki í sóttkví fyrir…Lesa meira

true

Þórður Þorsteinn aftur á Skagann

Knattspyrnumaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson er genginn til liðs við Skagamenn á nýjan leik. Þórður Þorsteinn sem er 26 ára gamall og gekk til liðs við FH um mitt sumar 2019, en hann var lánaður til HK síðari hluta sumars í fyrra. Hann hefur leikið 84 leiki í efstu deild og skorað í þeim átta mörk…Lesa meira

true

Breytingar á ýmsum lögum um málefni sveitarfélaga í tilefni af Covid-19

Alþingi samþykkti á föstudaginn var frumvarp samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um breytingar á ýmsum lögum um málefni sveitarfélaga í tilefni af Covid-19 faraldrinum. Með lögunum er m.a. tryggt að sveitarfélög hafi svigrúm til að ráðast í auknar fjárfestingar og mæta aðsteðjandi vanda í rekstri vegna þeirra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft á íslenskt efnahagslíf og búskap…Lesa meira

true

Reglur um skólastarf eftir páskafrí

Staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi gildir frá 1. apríl til og með 15. apríl. Reglurnar eru svohljóðandi: Leikskólar Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri. Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn…Lesa meira

true

Fékk ung brennandi áhuga á pólitík

Nýverið lá ljóst fyrir hvernig röðun efstu manna yrði á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar í haust. Framsóknarflokkurinn reið á vaðið og stóð fyrstur stjórnmálaflokkanna fyrir póstkosningu þar sem tæplega 1200 félagsmenn greiddu atkvæði. Síðan hafa línur tekist að skýrast, meðal annars hjá Samfylkingunni og Pírötum hér í Norðvesturkjördæmi. Í fyrsta sæti á lista…Lesa meira

true

Ráðleggja að hámark grásleppuveiða verði 9040 tonn

Hafrannsóknastofnunar ráðleggur að veiðar á grásleppu á nýhöfnu fiskveiðiári verði ekki meiri en 9.040 tonn. Er það um 74% hækkun ráðgjafar frá síðasta ári. Þá leggur stofnunin til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2021/2022 verði 3.174 tonn. „Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2021 en hún var sú hæsta frá upphafi mælinga…Lesa meira

true

Íslands stendur efst í kynjajafnrétti tólfta árið í röð

Ísland mælist í efsta sæti á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins, (e; World Economic Forum) tólfta árið í röð. Skýrslan kemur nú út í fimmtánda skiptið og tekur til 156 ríkja. Mælikvarðarnir taka til fjögurra meginsviða kynjajafnréttis: Stjórnmála, menntunar, atvinnu og heilbrigðis. Í skýrslunni fá ríkin einkunn þar sem 100 stig tákna fullkomið jafnrétti. Ísland fær 89,2% stig…Lesa meira

true

Setja upp myndlistarsýningu á Ströndum, Dölum og Vestfjörðum

Myndlistarsýningin „Nr. 4 Umhverfing“ verður sett upp á Vestfjörðum, Ströndum og í Dalabyggð sumarið 2022. Um er að ræða fjórðu sýninguna í sýningaröð staðbundinna myndlistarsýninga um land allt. Sumarið 2019 var sýningin „Nr. 3 Umhverfing“ sett upp víðsvegar um Snæfellsnes þar sem 72 mismunandi listamenn sýndu verk sín og stefnir í að enn fleiri taki…Lesa meira

true

Nýtt laugarhús tekið að rísa við Hreppslaug

Byrjað var að reisa nýtt laugarhús við Hreppslaug í Skorradal á mánudagsmorgun, 29. mars. Auk þess er búið að steypa nýja potta við laugina. Ungmennafélagið Íslendingur stendur að byggingu hússins en Skorradalshreppur styrkti félagið fyrir framkvæmdunum og Borgarbyggð einnig. „Þetta er 160 fermetra hús, sem er töluvert stærra en það gamla sem var rifið síðasta…Lesa meira

true

Lífsins ljós til stuðnings Krabbameinsfélagsinu

Fyrirtækið Stúdíó Kast er í eigu Kristjáns R. Guðnasonar og Garðars Viðarssonar en þeir gáfu nýverið út lagið Lífsins ljós til stuðnings starfi Krabbameinsfélagsins. Hlutverk Krabbameinsfélagsins er m.a. að beita sér fyrir því að efla krabbameinsrannsóknir, stuðla að þekkingu og menntun um krabbamein, beita sér fyrir stuðningi við krabbameinssjúklinga og aðstandendur og vera málsvari krabbameinssjúklinga…Lesa meira