Fréttir

true

Kynna veislutertur og gefa vænar sneiðar

„Það eru um það bil allar geymslur hjá okkur, bæði frystar og kælar, fullar af kökum sem við vorum búin að framleiða í aðdraganda ferminga á Pálmasunnudag og núna um páskana. Þessar kökur eru ýmist fullskreyttar eða tilbúnar fyrir skreytingu. Nánast öllum fermingarveislum var í síðustu viku frestað vegna samkomutakmarkana og sitjum við uppi með…Lesa meira

true

Opna í vor nýtt skrifstofu- og frumkvöðlasetur í Stykkishólmi

Einkahlutafélagið Suðureyjar ehf. var stofnað á síðasta ári. Það það markmið að auðvelda frumkvöðlastarf og tækifæri til fjarvinnu, óháð aðsetri vinnuveitanda og stuðla að því að fjölga íbúum Stykkishólms. Félagið hefur tekið á leigu gamla Búnaðarbankahúsið við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Þar verður boðið upp á snyrtilega starfsaðstöðu, eins konar fyrirtækjahótel, með aðgangi að ljósleiðaratengingu…Lesa meira

true

Einn kominn í einangrun og annar í sóttkví

Samkvæmt yfirliti Lögreglunnar á Vesturlandi er nú einn kominn í einangrun með Covid-19 og annar er í sóttkví á svæði heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi. Töluvert er síðan veiran var síðast staðfest í landshlutanum, en það var 12. febrúar. Í gær voru sex manns greindir með veiruna á landsvísu og voru fimm þeirra ekki í sóttkví fyrir…Lesa meira

true

Þórður Þorsteinn aftur á Skagann

Knattspyrnumaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson er genginn til liðs við Skagamenn á nýjan leik. Þórður Þorsteinn sem er 26 ára gamall og gekk til liðs við FH um mitt sumar 2019, en hann var lánaður til HK síðari hluta sumars í fyrra. Hann hefur leikið 84 leiki í efstu deild og skorað í þeim átta mörk…Lesa meira

true

Breytingar á ýmsum lögum um málefni sveitarfélaga í tilefni af Covid-19

Alþingi samþykkti á föstudaginn var frumvarp samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um breytingar á ýmsum lögum um málefni sveitarfélaga í tilefni af Covid-19 faraldrinum. Með lögunum er m.a. tryggt að sveitarfélög hafi svigrúm til að ráðast í auknar fjárfestingar og mæta aðsteðjandi vanda í rekstri vegna þeirra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft á íslenskt efnahagslíf og búskap…Lesa meira

true

Reglur um skólastarf eftir páskafrí

Staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi gildir frá 1. apríl til og með 15. apríl. Reglurnar eru svohljóðandi: Leikskólar Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri. Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn…Lesa meira

true

Fékk ung brennandi áhuga á pólitík

Nýverið lá ljóst fyrir hvernig röðun efstu manna yrði á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar í haust. Framsóknarflokkurinn reið á vaðið og stóð fyrstur stjórnmálaflokkanna fyrir póstkosningu þar sem tæplega 1200 félagsmenn greiddu atkvæði. Síðan hafa línur tekist að skýrast, meðal annars hjá Samfylkingunni og Pírötum hér í Norðvesturkjördæmi. Í fyrsta sæti á lista…Lesa meira

true

Ráðleggja að hámark grásleppuveiða verði 9040 tonn

Hafrannsóknastofnunar ráðleggur að veiðar á grásleppu á nýhöfnu fiskveiðiári verði ekki meiri en 9.040 tonn. Er það um 74% hækkun ráðgjafar frá síðasta ári. Þá leggur stofnunin til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2021/2022 verði 3.174 tonn. „Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2021 en hún var sú hæsta frá upphafi mælinga…Lesa meira

true

Íslands stendur efst í kynjajafnrétti tólfta árið í röð

Ísland mælist í efsta sæti á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins, (e; World Economic Forum) tólfta árið í röð. Skýrslan kemur nú út í fimmtánda skiptið og tekur til 156 ríkja. Mælikvarðarnir taka til fjögurra meginsviða kynjajafnréttis: Stjórnmála, menntunar, atvinnu og heilbrigðis. Í skýrslunni fá ríkin einkunn þar sem 100 stig tákna fullkomið jafnrétti. Ísland fær 89,2% stig…Lesa meira

true

Setja upp myndlistarsýningu á Ströndum, Dölum og Vestfjörðum

Myndlistarsýningin „Nr. 4 Umhverfing“ verður sett upp á Vestfjörðum, Ströndum og í Dalabyggð sumarið 2022. Um er að ræða fjórðu sýninguna í sýningaröð staðbundinna myndlistarsýninga um land allt. Sumarið 2019 var sýningin „Nr. 3 Umhverfing“ sett upp víðsvegar um Snæfellsnes þar sem 72 mismunandi listamenn sýndu verk sín og stefnir í að enn fleiri taki…Lesa meira