
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Tekur hækkunin gildi 1. apríl. Lágmarksverð fyrir 1. flokk mjólkur til bænda hækkar um 3,77%, fer úr 97,84 kr./ltr í 101,53 kr./ltr. Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 3,47%, nema smjör sem hækkar…Lesa meira








