Fréttir

true

Fengu styrk til endurbóta á Sindra á safninu á Reykhólum

Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum fékk nýverið úthlutað tveggja milljóna króna styrk úr Fornminjasjóði. Styrkinn fær FÁBBR til að framkvæma endurbætur á Sindra sem er rúmlega sjö metra langur súðbyrðingur smíðaður árið 1936 í Hvallátrum á Breiðafirði. „Svona styrkur er ómetanlegur stuðningur við okkar starf við að vernda breiðfirska bátaarfinn og kunnum Fornminjasjóði og Minjastofnun bestu…Lesa meira

true

Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út vegna elds í bíl

Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út síðdegis í gær vegna bruna í bíl á bænum Mið-Görðum á Snæfellsnesi. Engin slys urðu á fólki, að sögn Heiðars Arnar Jónssonar, varaslökkviliðsstjóra. Eigandi bílsins var að sækja varahluti í bílinn þegar eldur kom upp í teppi í bílnum. Lögreglan kom á staðinn og var búin að slökkva eldinn þegar…Lesa meira

true

Slökkvilið kallað út vegna sprengingar

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út um klukkan ellefu í gærkvöldi þegar sprenging varð í ofni í verksmiðju Elkem á Grundartanga. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar, slökkviliðsstjóra, var enginn eldur þegar slökkvilið bar að garði og engin slys urðu á fólki eða skemmdir á búnaði. „Við erum hluti að viðbragðsáætlun og förum þarna til…Lesa meira

true

HÁ bílar er nýtt bifreiðaverkstæði á Akranesi

„Ég tel að það sé alveg nægur markaður fyrir nýtt bifreiðaverkstæði á Akranesi og er bjartsýnn á framhaldið,” segir Viktor Sigurgeirsson bifvélavirki sem er nú eftir páska að opna nýtt bifreiðaverkstæði að Dalbraut 16 á Akranesi. Nefnist það HÁ bílar. Verður starfsemin í hluta þess húsnæðis sem áður hýsti bifreiðaverkstæðið Brautina. Viktor var að koma…Lesa meira

true

Aukin framleiðslugeta og hraðari afhending bóluefna í Evrópu

Lyfjastofnun Evrópu (EMA) á í stöðugum samræðum við markaðsleyfishafa bóluefna gegn Covdi-19 með aukna framleiðslugetu fyrir Evrópu að leiðarljósi. Stofnunin birti í gær frétt þess efnis að tilteknar aðgerðir og ákvarðanir stuðli að aukinni framleiðslugetu og hraðari afhendingu bóluefna í Evrópu. Í frétt Lyfjastofnunar Íslands segir að þetta eigi við um öll þrjú bóluefnin sem…Lesa meira

true

Gera þarf úrbætur á lögreglunámi í HA

Gæðaráð íslenskra háskóla hefur birt niðurstöður úttektar sinnar á lögreglunámi við Háskólann á Akureyri. Lögreglunámi var komið á fót við skólann haustið 2016 og er úttektin unnin samkvæmt samningi milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og HA um námið. Í úttekt gæðaráðsins eru gerðar töluverðar athugasemdir við þætti sem nauðsynlegt þykir að bæta. Þar á meðal að…Lesa meira

true

Valgarður Lyngdal er nýr oddviti Samfylkingar í NV kjördæmi

Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi var haldið í dag. Á dagskrá þingsins var kosning um þrjú efstu sætin á framboðslistanum en raðað var eftir paralista fyrirkomulagi. Eins og kunnugt er hafði Guðjón S Brjánsson þingmaður flokksins í kjördæminu gefið það út að hann sæktist ekki eftir endurkjöri fyrir kosningarnar í haust. Alls greiddu 94 atkvæði í…Lesa meira

true

Mælst til að leikskólabörn verði heima fram að páskum

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að vegna sóttvarnaraðgerða yfirvalda vegna Covid-19, mæltist bæjarfélagið til þess að þeir foreldrar leikskólabarna sem ættu þess nokkurn kost, héldu börnum sínum heima og kæmu ekki með þau í leikskólana meðan hertar samkomutakmarkanir gilda fram að páskum. „Foreldrum verða endurgreidd leikskólagjöld sbr. framangreint hafi viðkomandi tilkynnt leikskólanum…Lesa meira

true

Vökvi úr riðusmituðum hræjum skvettist á þjóðveg í Borgarfirði

Í vikunni fór fram síðari hluti niðurskurðar á riðusmituðu fé á bænum Vatnshóli í Húnavatnssýslu. Í frétt Matvælastofnunar kemur fram að óhapp hafi orðið við flutning hræja úr fyrri niðurskurði á bænum þegar ekið var til brennslu í Kölku á Reykjanesi. „Matvælastofnun barst fyrr í þessari viku ábending um að vökvi hafi slest upp úr…Lesa meira

true

Styrkur til að bæta aðgengi að gosstöðvunum

Í ráðuneyti ferðamála hefur verið ákveðið að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggi allt að tíu milljónir króna til að bæta aðgengi fyrir þá sem vilja skoða jarðeldana í Geldingadölum á Reykjanesi. Útbúin hefur verið ætlun í samvinnu við Grindavíkurbæ um það sem til stendur að gera. Styrkurinn er veittur til Grindavíkurbæjar en sveitarfélagið munu halda utan um…Lesa meira