Fréttir

true

Mælst til að leikskólabörn verði heima fram að páskum

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að vegna sóttvarnaraðgerða yfirvalda vegna Covid-19, mæltist bæjarfélagið til þess að þeir foreldrar leikskólabarna sem ættu þess nokkurn kost, héldu börnum sínum heima og kæmu ekki með þau í leikskólana meðan hertar samkomutakmarkanir gilda fram að páskum. „Foreldrum verða endurgreidd leikskólagjöld sbr. framangreint hafi viðkomandi tilkynnt leikskólanum…Lesa meira

true

Vökvi úr riðusmituðum hræjum skvettist á þjóðveg í Borgarfirði

Í vikunni fór fram síðari hluti niðurskurðar á riðusmituðu fé á bænum Vatnshóli í Húnavatnssýslu. Í frétt Matvælastofnunar kemur fram að óhapp hafi orðið við flutning hræja úr fyrri niðurskurði á bænum þegar ekið var til brennslu í Kölku á Reykjanesi. „Matvælastofnun barst fyrr í þessari viku ábending um að vökvi hafi slest upp úr…Lesa meira

true

Styrkur til að bæta aðgengi að gosstöðvunum

Í ráðuneyti ferðamála hefur verið ákveðið að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggi allt að tíu milljónir króna til að bæta aðgengi fyrir þá sem vilja skoða jarðeldana í Geldingadölum á Reykjanesi. Útbúin hefur verið ætlun í samvinnu við Grindavíkurbæ um það sem til stendur að gera. Styrkurinn er veittur til Grindavíkurbæjar en sveitarfélagið munu halda utan um…Lesa meira

true

Slæm veðurspá síðdegis og í kvöld

Gert er ráð fyrir hvassviðri samhliða éljagangi eða hríð á stórum hluta landsins þegar líður á daginn og framundir morgun. Appelsínugul viðvörun er fyrir allt sunnan- og vestanvert landið vegna norðaustan hvassviðris og hríðarveðurs frá því um nónbil í dag og þar til í fyrramálið. Því er spáð að verulega hvessi síðdegis í dag og…Lesa meira

true

Bjarni sækist eftir 1. sæti í forvali VG í Norðvesturkjördæmi

„Ég gef kost á mér til að leiða framboðslista VG í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í 1. sæti og óska eftir stuðningi til þess í forvali hreyfingarinnar sem framundan er,“ segir í yfirlýsingu frá Bjarna Jónssyni fiskifræðingi og varaþingmanni í kjördæminu. „Ég tel mig hafa víðtæka reynslu og þekkingu á málefnum landsbyggðarinnar og vil gjarna…Lesa meira

true

Nýja deildin fær nafn eftir lýðræðislega kosningu barna í Uglukletti

Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi hefur frá opnun árið 2007 verið þriggja deilda leikskóli. Nú hefur orðið breyting þar á og bættist fjórða deildin við núna í mars þegar ný deild var opnuð. Börnum hefur fjölgað jafnt og þétt í sveitarfélaginu frá haustinu 2020, það mikið að leikskólinn þurfti að setja börn á biðlista. Til þess…Lesa meira

true

Fermingar í Borgarnesi á sunnudaginn

Í vikunni tóku gildi hertar sóttvarnaraðgerðir og samkomutakmarkanir. Samkvæmt nýjum reglum er gert ráð fyrir að hámarki 30 manns í athöfnum hjá trú- og lífsskoðunarfélögum. Í ljósi þessa verða fermingar á sunnudaginn, 28. mars, í Borgarnesi með breyttu sniði. Í staðinn fyrir eina fermingarguðsþjónustu verða þær tvær, hvor með fimm fermingarbörnum. Þá geta aðeins fjórir…Lesa meira

true

Í Flóahverfi á Akranesi verða vistvænir iðngarðar

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hefur falið bæjarstjóra ásamt skipulagsfulltrúa bæjarins að hafa samráð við nokkra aðila varðandi þróun og framtíðarhugmyndir um iðnaðarsvæðið Flóahverfi á Akranesi. Að sögn Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra hefur bærinn nýlega sett af stað vefinn www.300akranes.is sem ætlaður er til markaðssetningar á atvinnu- og íbúðarhúsnæði í bæjarfélaginu. Tilganginn með vefnum 300akranes.is segir…Lesa meira

true

Nýr fjarskiptasæstrengur til Írlands

Fjármögnun á nýjum fjarskiptasæstreng milli Íslands og Írlands hefur verið tryggð með aðkomu ríkisins. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að ráðgert sé að taka strenginn í notkun fyrir árslok 2022, en honum er ætlað að stórauka öryggi í fjarskiptasamböndum Íslands við Evrópu í samræmi við stefnumótun ríkisstjórnarinnar í fjarskiptum fram til ársins 2033. Strengurinn,…Lesa meira