Fréttir

true

Fengu viðurkenningar fyrir úrvalsmjólk hjá Auðhumlu

Hefð er fyrir því að halda deildarfundi Auðhumlu svf. í marsbyrjun ár hvert. Á síðastliðnu ári var þó beygt út af þeirri venju þar sem fundurinn var haldinn í júníbyrjun vegna Covid-19. Þann 18. mars sl. var deildarfundur Auðhumlu hér á svæðinu haldinn með rafrænu formi.  Svæðið var óvenju stórt sem lá undir fundinum, eða…Lesa meira

true

Barnamenningarhátíð á Akranesi í lok apríl

Unnið er að undirbúningi Barnamenningarhátíðar sem haldin verður á Akranesi nú á vordögum. Frumkvæði að hátíðinn er hjá Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur og Köru Sól Samúelsdóttur en þær eru verknámsnemar í Viðburðarstjórnun í Háskólanum á Hólum. Það er Akraneskaupstaður í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem standa fyrir barnamenningarhátíð fyrir börn og ungmenni á Akranesi…Lesa meira

true

Eldgosið á Fagradalsfjalli sést frá Akranesi

Eldgosið á Fagradalsfjalli sást ágætlega frá Akranesi í kvöld. Blaðamaður Skessuhorns tók meðfylgjandi mynd af gosinu af Langasandi. Gera má ráð fyrir að að minnsta kosti tæp 800 ár séu síðan síðast sást til eldgoss frá Akranesi þó gosmekkir frá öðrum eldgosum hafi sést áður, svo sem frá Heimaeyjargosinu og Heklugosinu árið 1947.Lesa meira

true

Sjósund á Akranesi í frönskum fréttum

Franska fréttastofan AFP birti í síðustu viku athyglisvert myndband á Youtube sem fjallar um sjósund á Norðurlöndum en AFP er sögð elsta fréttastofa í heimi, stofnuð árið 1835. Í lýsingu sem fylgir myndbandinu segir, í lauslegri þýðingu blaðamanns: „Á vetri sem einkennist af Covid-19 faraldrinunum leita áhugamenn um vetrarsund víða á Norðurlöndum huggunar í áhugamálinu…Lesa meira

true

Gunnar Örn Jónsson er nýr lögreglustjóri á Vesturlandi

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, í embætti lögreglustjórans á Vesturlandi frá 7. apríl næstkomandi. Gunnar Örn var frá árinu 2015 yfirmaður ákærusviðs við embætti lögreglustjórans á Suðurlandi og staðgengill lögreglustjóra, þar til að hann tók við embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra árið 2017. Hann útskrifaðist með embættispróf…Lesa meira

true

Komu áhöfn á lekum báti til bjargar

Klukkan 12:53 í dag var björgunarskipið Björg í Rifi kallað út á hæsta forgangi til aðstoðar við smábát eftir að áhöfnin varð vör við leka um borð. Báturinn var þá staddur rétt utan við höfnina í Rifi. Átta mínútum síðar var Björgin komin á staðinn mönnuð sjö sjálfboðaliðum frá björgunarsveitum frá Snæfellsnesi. Vel gekk að…Lesa meira

true

Landa salti í höfnum á Snæfellsnesi

Saltskipið Wilson Cork kom til hafnar í Ólafsvík síðastliðinn föstudag og lóðsaði björgunarbáturinn Björg það til hafnar. Það voru starfsmenn Ragnars og Ásgeirs sem sáu um uppskipunina en alls var skipað upp 1200 tonnum í Ólafsvík. Fóru 500 tonn í KG fiskverkun í Rifi, 200 tonn í Valafell í Ólafsvík og 500 tonn voru sett…Lesa meira

true

Guðmundur mun leiða lista Viðreisnar

Guðmundur Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, mun leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar í haust. Í tilkynningu frá uppstillingarnefnd Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi kemur fram að nefndin er enn að störfum og verður heildar framboðslisti kynntur síðar. Guðmundur er með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum og BA próf í fjölmiðlafræði. Hann starfaði áður við fréttir og dagskrárgerð hjá…Lesa meira

true

Snævar Jón er nýr sóknarprestur í Dölum

Snævar Jón Andrjesson hefur verið ráðinn sóknarprestur í Dalaprestakalli en frá því er greint á vefsíðu Þjóðkirkjunnar. Snævar Jón er 36 ára, fæddur og uppalinn á Siglufirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2005 og BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2012. Þá útskrifaðist hann með mag.…Lesa meira