Fréttir

true

Víkingur Ólafsvík tapaði fyrir ÍBV

Á Ólafsvíkurvelli fór í gær fram leikur Víkings og ÍBV í fjórtándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Bæði lið hafa verið í basli í deildinni að undanförnu en bæði byrjuðu þau mótið vel. Leikurinn endaði með 1-0 sigri ÍBV. Fyrsta mark og eina mark leiksins kom eftir fimm mínútna leik. Derby Carrillo, markmaður ÍBV,…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu fyrir Fjölni

Á Fjölnisvelli í Grafarvogi fór fram leikur Fjölnis og ÍA í gær í fjórtándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Fjölnismenn hafa komið flestum á óvart á tímabilinu og eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Skagamenn hafa einnig komið mörgum á óvart en fyrir tímabilið spáðu margir Skagamönnum falli. Þeir hafa hins vegar spilað vel á undanförnu…Lesa meira

true

Makrílleiðangri Árna Friðrikssonar lokið

Á lokadegi júlí lauk mánaðarlöngum leiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar. Leiðangurinn hafði það megin markmið að meta magn og útbreiðslu makríls umhverfis Ísland. Verkefnið er hluti af sameiginlegum rannsóknum Íslendinga, Norðmanna, Færeyinga og Grænlendinga á dreifingu og magni helstu uppsjávartegunda í Norðaustur-Atlantshafi ásamt athugunum á magni átu og umhverfisþáttum. Makríl var að finna úti fyrir Austurlandi,…Lesa meira

true

Bleikjan tók í hverju kasti

Veiðin í Hraunsfirði á Snæfellsnesi hefur verið dyntótt í vor og sumar. Menn hafa verið að gera þokkalega veiði, en fiskurinn getur verið tregur að taka, bæði laxinn og bleikjan. En það hafa komið dagar sem fiskurinn gefur sig og þá er fjör. „Við vorum þarna fyrir nokkrum dögum og fengum 16 flottar bleikjur. Þær…Lesa meira

true

Strandveiðin hleypur lífi í bæjarfélögin

Mikill fjöldi strandveiðibáta er gerður út frá Snæfellsnesi í sumar og myndast oft skemmtileg stemning í höfnunum þegar bátarnir koma að landi.  Ferðamenn hafa komið að spjalla við trillukarlana og sýnt veiðunum mikla athygli og hafa þeir fylgst með löndun og skoðað aflann. Aflabrögð jafnt sem tíðarfar hefur verið mjög gott í sumar og eru menn…Lesa meira

true

Bandarískur framherji í Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Flenard Whitfield um að leika með liðinu í Domino’s deild karla á vetri komanda. Flenard er 26 ára gamall Bandaríkjamaður, rúmir tveir metrar á hæð, eitt hundrað kíló að þyngd og leikur stöðu framherja. Hann kemur frá Detroit í Michigan-fylki og lék með Western Michigan háskólanum á námsferli sínum þar…Lesa meira

true

Hlynur Bæringsson í landsliðshóp Íslands

Í ágúst og september mun íslenska karlalandsliðið í körfubolta leika í undankeppni fyrir Evrópumótið sem fram fer á næsta ári. Íslendingar lentu í riðli með Belgíu, Sviss og Kýpur í undankeppninni en hópurinn sem mun leika leikina sex í undankeppninni var tilkynntur á dögunum. Það eru sextán körfuboltamenn sem munu taka þátt í verkefninu og…Lesa meira

true

Nýr bæklingur um Einkunnir

Á dögunum var gefinn út nýr bæklingur um fólkvanginn Einkunnir í Borgarfirði. Í honum er að finna upplýsingar um tilurð fólkvangsins og einkenni, skipulag og nýtingu. Kort af svæðinu ásamt gönguleiðakorti er að finna á bakhlið. Bæklinginn er hægt að nálgast í ráðhúsi Borgarbyggðar og á upplýsingamiðstöðvum.  Lesa meira

true

Lok strandveiða á svæðum A, B og C

Á vef Fiskistofu er greint frá því að von sé á auglýsingu í stjórnartíðindum um lok strandveiða á svæðum A, B og C. Samkvæmt þeirri auglýsingu verður síðasti dagur strandveiða á svæðum A og C þriðjudagurinn 9. ágúst næstkomandi. Bann við strandveiðum á þeim svæðum tekur því gildi frá og með miðvikudeginum 10. ágúst. Þá…Lesa meira

true

Lilja Rafney vill leiða lista VG áfram

Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður hefur gefið kost á sér til að leiða áfram lista Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi í forvali VG fyrir Alþingiskosningar í haust. „Þau sjö ár sem ég hef setið á Alþingi hafa verið miklir og lærdómsríkir umbrotatímar í lífi þjóðarinnar. Sú reynsla sem ég hef hlotið á þessum tíma hefur nýst mér vel…Lesa meira