
Lögreglan á Vesturlandi hefur fengið bráðabirgðaleyfi frá sveitarfélaginu Borgarbyggð til að stunda skotæfingar og skotpróf á Ölduhrygg við Snæfellsnesveg. Samkvæmt viðbúnaðarskipulagi lögreglu gerir ríkislögreglustjóri kröfu um að lögreglumenn fái reglulega þjálfun í skotfimi og standist árleg skotvopnapróf. Aðstaða til æfinga lögreglu hefur á liðnum árum farið fram í sal Skotfélags Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi.…Lesa meira








