Fréttir

true

Langur biðtími eftir símaviðtölum við lækna í Borgarbyggð

Mikið álag hefur verið á Heilbirgðisstofnun Vesturlands undanfarið. Biðtími íbúa í Borgarbyggð eftir viðtölum eða símatímum hefur verið langur, en Skessuhorni hafa borist ítrekaðar ábendingar um að fólk hafi þurft að bíða í mánuð eftir að fá símatíma hjá lækni. Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, segir þennan langa biðtíma vissulega of langan og skiljanlega…Lesa meira

true

“Mér fannst kallarnir á gráu búningunum flottari”

Borgnesingurinn Hlynur Lind Leifsson er safnari með stóru S-i. Hann safnar munum sem tengjast hernaði Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni. Hlynur býr nú í Hafnarfirði með konu sinni, Erlu Sigurðardóttur, og sonum þeirra þremur; Hinriki Val, Víkingi Ara og Degi Hrafni. Hlynur er fæddur 1976 og uppalin í Borgarnesi. Hann lauk grunnskóla þar og lærði síðan…Lesa meira

true

Kjalarnes og Holtavörðuheiði lokuð

Hálka, snjóþekja og hvassviðri er á fjallvegum og víðar um vestanvert landið. Hálkublettir og mjög blint er á Svínadal í Dölum. Ófært er yfir Holtavörðuheiði. Veginum um Kjalarnes var lokað klukkan 12:15 í dag, um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps sem þar varð. Ökumönnum er bent á hjáleið um Mosfellsheiði, Kjósarskarð og Hvalfjörð, en þar er…Lesa meira

true

Íslendinga þyrstir í að skipta um umhverfi

Mörg hótel í Borgarfirði eru nú að opna að nýju eftir hlé frá í haust. Skessuhorn hafði samband við hótelstjóra fjögurra stórra hótela í héraðinu og spurði um stöðuna. Fram kemur í máli þeirra flestra að landsmenn þyrsti orðið í að breyta til, komast í smá frí í annað umhverfi. Ástæðan er ekki síst sú…Lesa meira

true

Skóflustunga að fyrstu húsbyggingum við Fjóluklett í Borgarnesi

Á morgun, fimmtudag, verður tekin fyrsta skóflustungan að byggingu húsa við nýja götu í Bjargslandi í Borgarnesi. Gatan heitir Sóleyjarklettur og er ofan við höfuðstöðvar kaupfélagsins við Egilsholt, liggur samhliða Stöðulsholti. Borgarverk hefur unnið við gatnagerð og lagnir á svæðinu frá því á síðasta ári. Verkefnið er samstarf þriggja öflugra fyrirtækja í Borgarnesi og er…Lesa meira

true

Jarðvegsframkvæmdir hafnar við stærstu íbúðablokkina á Akranesi

Á mánudaginn hófust framkvæmdir við nýtt fjölbýlishús sem rísa mun við Asparskóga 18 á Akranesi. Um er að ræða 40 íbúða hús og er byggingaraðili Barium ehf. sem byggir húsið fyrir Ferrum Fasteignafélag. Hönnuður hússins er Runólfur Þ Sigurðsson hjá Al-Hönnun ehf. Að sögn Engilberts Runólfssonar, verkefnastjóra Barium, er byggingartími hússins áætlaður um 16 til…Lesa meira

true

Veturinn er ekki alveg búinn

Eftir mjög gott tíðarfar undanfarnar vikur og mánuði hefur vetur konungur aftur minnt hressilega á sig. Gul viðvörun Veðurstofunnar er í gildi fyrir Vesturland til miðnættis í kvöld. Í viðvörun Veðurstofunnar segir m.a.: “Hvassviðri eða stormur og jafnvel staðbundið rok og hríð á Snæfellsnesi, snjókoma eða skafrenningur. Snarpar vindhviður við fjöll. Varasamt fyrir bíla sem…Lesa meira

true

Formannsframbjóðandi í VR auglýsir á rússneskri fréttasíðu

Markaðsfólk samtímans notar úthugsaðar, og stundum ágengar, leiðir til að ná augum almennings. Tækni sem byggir m.a. á algórithma og persónugreinanlegum upplýsingum fólks er notuð til að leita það uppi á vefsíðum og skiptir þá engu hvar þessar síður eru, svo lengi sem þær selja aðgang að auglýsingaplássum þeirra. Guðmundur Ólafsson hagfræðingur er íslenskur karlmaður…Lesa meira

true

Telja líkur á fleiri hlaupum úr Hafrafellslóni í Langjökli

Veðurstofa Íslands hefur gefið út skýrslu um jökulhlaupið sem varð úr Hafrafellslóni í vestanverðum Langjökli 17. ágúst 2020. Lón þetta hefur verið að myndast frá síðustu aldamótum vegna hörfunar jökulsins. Hlaupið úr lóninu leitaði sér fyrst farvegs í Svartá undir Hafrafelli, við vesturjaðar Langjökuls og þaðan út í Hvítá. Íbúar í uppsveitum Borgarfjarðar urðu varir…Lesa meira

true

Hryllingsmyndahátíð Frostbiter á Akranesi um helgina

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin á Akranesi um helgina. Hátíðin hefst klukkan 18:00 á föstudaginn og verða allir viðburðir hátíðarinnar haldnir í Gamla frystihúsinu við Bárugötu 8-10. Á hátíðinni verður fjölbreytt úrval af hryllilegum kvikmyndum, bæði íslenskum og erlendum. Opnunarmynd hátíðarinnar verður myndin Walkers sem er heimildarmynd um íslenskar draugasögur frá árinu 1540-1830. Vegna heimsfaraldursins verður…Lesa meira