Fréttir

true

Samræmt könnunarpróf mistókst í framkvæmd og var öllum frestað

Samræmt könnunarpróf í íslensku var lagt fyrir nemendur níunda bekkja grunnskóla landsins í gær, mánudag. Líkt og gerst hefur áður komu upp alvarleg tæknileg vandamál í prófakerfinu. Vandinn lýsti sér þannig að margir nemendur áttu erfitt með að komast inn í prófin eða duttu út úr kerfinu áður en þeir höfðu lokið próftöku. Hluti nemenda…Lesa meira

true

Sótt um fjóra milljarða í stofnframlög fyrir „hagkvæmt“ leiguhúsnæði

Mikil eftirspurn er eftir fjárstuðningi ríkisins til reksturs hagkvæmra leiguíbúða, svokallaðra Almennra íbúða. Umsóknarfrestur rann út 22. febrúar og bárust umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á 472 Almennum íbúðum fyrir alls fjóra milljarða króna til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem veitir stofnframlögin. Til úthlutunar að þessu sinni eru allt að 3,4 milljarðar og…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Skagastúlkum

Kvennalið ÍA gerði 2:2 jafntefli gegn Gróttu á útivelli í gær í Lengjubikarnum í fótbolta. Unnur Ýr Haraldsdóttir kom Skagastúlkum yfir strax á 7. mínútu. Grótta jafnaði um miðjan hálfleikinn en rétt fyrir lok hálfleiksins náði Róberta Lilja Ísólfsdóttir forystunni að nýju fyrir Skagastúlkur, en í upphafi síðari hálfleiks jafnaði Grótta og þar við sat.…Lesa meira

true

Góð aflabrögð á Breiðafirði

Skipverjar á netabátnum Bárði SH hafa mokfiskað að undanförnu, með um eða yfir 63 tonn í róðri og það aðeins í 65 net. „Við höfum haldið okkur rétt fyrir utan Rif,“ sagði Höskuldur Árnason skipsverji á Bárði SH þegar fréttaritari Skessuhorns heyrði í honum hljóðið síðastliðinn laugardag. Að sögn Hafrúnar Ævarsdóttur hafnarvarðar hefur verið ágæt…Lesa meira

true

Héldu hlutaveltu til styrktar Krabbameinsfélaginu

Þessar duglegu stúlkur tóku sig til og héldu hlutaveltu fyrir utan Kjörbúðina í Grundarfirði síðasta sunnudag. Þær tóku sig til og gengu í hús til að safna hinum ýmsu hlutum sem þær freistuðu svo að koma í not aftur í samfélaginu og safna fyrir góðu málefni í leiðinni. Allur ágóði af hlutaveltunni rennur til Krabbameinsfélagsins.Lesa meira

true

Þegar allir hötuðu hatara sýnd í Bíóhöllinni

Heimildamyndin A Song Called Hate verður sýnd í Bíóhöllinni á Akranesi fimmtudaginn 11. mars kl. 20:00.  Myndina segir frá Eurovisiongjörningi Hatara og því sem gerðist á bak við tjöldin í Ísrael og Palestínu. Hljómsveitin Hatari hafði starfað í jaðarsenu íslenska menningarlífs frá árinu 2016 og var lítt þekkt. Það breyttist eftirminnilega árið 2019 þegar meðlimir…Lesa meira

true

Vararafstöðvar sanna rækilega gildi sitt

Nýverið greindum við frá því í frétt hér í Skessuhorni að ríkið afhenti Landsbjörgu nokkrar vararafstöðvar sem verða til taks í öllum landshlutum til að bregðast við aðstæðum, svo sem rafmagnsleysi. Slíkum stöðvum hefur nú verið komið til geymslu og notkunar, ef með þarf, í Ólafsvík, Borgarnesi og á Akranesi. Síðastliðinn föstudag varð rafmagnslaust í…Lesa meira

true

Auglýsa starf dýralæknis í Dölum og á Ströndum

Matvælastofnun hefur auglýst eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu í Dölum og á Ströndum. Í boði er samningur um stuðningsgreiðslur á þjónustusvæðinu. Markmiðið er að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af skornum skammti,…Lesa meira

true

Fyrsti doktorsneminn á sviði dýralækninga við íslenska háskóla

Helga Gunnarsdóttir, dýralæknir hesta, hóf nýverið doktorsnám í hestavísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Helga úrskrifaðist frá Dýralæknaskólanum í Hannover í Þýskalandi árið 2002 og lauk þriggja ára sérfræðinámi í skurðlækningum stórra dýra frá Háskólanum í Ghent í Belgíu árið 2012. Helga hefur alls um 20 ára starfsreynslu við hestalækningar, bæði hér heima og erlendis. Verkefni hennar…Lesa meira

true

Skallagrímur lagði Hrunamenn

Skallagrímur sigraði Hrunamenn, 86-68, í 1. deild karla í körfubolta í leik sem spilaður var í Fjósinu á föstudaginn. Skallagrímur setti tóninn strax í fyrsta leikhluta og var fimm stigum yfir þegar leikhlutanum lauk, 21-16. Í öðrum leikhluta héldu heimamenn áfram að auka forskotið og þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik var staðan 42-33…Lesa meira