Fréttir

true

Jafntefli hjá Kára í Lengjubikarleik

Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi gerði 1:1 jafntefli gegn Augnabliki úr Kópavogi í leik sem fram fór í Akraneshöllinni í gær. Káramenn voru hársbreidd frá sigri í leiknum því Augnablik jafnaði leikinn á 89. mínútu. Það var Andri Júlíusson sem kom Káramönnum yfir á 30. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Á lokamínútu fyrri hálfleiks fékk Augnablik…Lesa meira

true

Íslandspóstur gerður upp með hagnaði

Aðalfundur opinbera hlutafélagsins Íslandspósts var haldinn í dag. Hagnaður ársins nam 104 milljónum króna en til samanburðar var tap ársins 2019 511 milljónir króna. „Árangur sem þessi er alls ekki sjálfgefinn, endurskipulagning og niðurgreiðsla langtímalána hefur létt umtalsvert á félaginu og okkur tókst með samstilltu átaki stjórnar og starfsfólks að bregðast við tekjuminnkun vegna minni…Lesa meira

true

Ný forysta og viðurkenningar á sambandsþingi UMSB

Í gærkveldi var 99. sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi. Í upphafi þings voru veittir styrkir úr afreksmannasjóði UMSB. Öflugir íþróttamenn fengu styrki úr sjóðnum að þessu sinni það voru þau Alexandrea Guðnýjardóttir kraftlyftingakona, Birgitta Dröfn Björnsdóttir dansari, Bjarni Guðmann Jónsson körfuknattleiksmaður, Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir körfuboltakona. Í fyrsta…Lesa meira

true

Níu nýir umfram burtflutta á Vesturlandi

Á tímabilinu frá 1. desember 2020 og til 1. mars síðastliðins fjölgaði íbúum á Vesturlandi um níu, sem jafngildir fjölgun um 0,1%. Íbúar eru nú 16.714 í tíu sveitarfélögum. Á fyrrgreindu tímabili fjölgaði íbúum á Akranesi um 32, eða 0,4%, í Hvalfjarðarsveit fjölgaði um 13 íbúa eða 2%, í Snæfellsbæ fjölgaði um 3 íbúa eða…Lesa meira

true

Stefnt að upplifunargarði í anda Latabæjar í Borgarnesi

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var tekin fyrir umsókn Upplifunargarðs Borgarnesi ehf. um allt að 2000 fermetra lóð í Borgarnesi fyrir starfsemi sem byggð verður á hugmyndafræði Latabæjar, eða Lazy Town. Byggðarráð tók jákvætt í erindið og bókaði að um mjög áhugavert verkefni væri að ræða og lofaði stuðningi við framgang þess. Byggðarráð fól…Lesa meira

true

Mjólkursamsalan greiðir tæpan hálfan milljarð króna í sekt

Hæstirétturéttur hefur kveðið upp dóm þess efnis að Mjólkursamsalan hafi gróflega brotið samkeppnislög með því að mismuna keppinautum sínum á markaði. Samstarfsaðilum MS var seld hrámjólk á mun lægra verði en keppinautunum. Það voru forsvarsmenn Mjólku sem höfðuðu málið fyrir níu árum, eða árið 2012. Með dómi Hæstaréttar er MS nú gert að greiða 480…Lesa meira

true

Heimildamynd gerð um bikarleik Reynis á Hellissandi

Bikarkeppni KSÍ hefst í byrjun apríl og eru flest lið komin á fullt að undirbúa sig fyrir keppnina sem og tímabilið. Að þessu sinni sendir Reynir Hellissandi lið til þátttöku í bikarkeppninni en Reynir dróst gegn Aftureldingu sem spilar í 1. deildinni í sumar. Heimildamynd verður gerð um þátttöku liðsins í bikarkeppninni. Það er heimamaðurinn…Lesa meira

true

Sjálfkrafa settur í fíkniefnapróf eftir ógætilegan akstur

Ökumaður nokkur var ósáttur við að komast ekki leiðar sinnar framhjá slysstað þegar lögregla hafði lokað fyrir umferð framhjá vettvangi nýverið. Ökumaðurinnók framúr röð bíla þar sem ökumenn þeirra biðu þolinmóðir. Var hann stöðvaður af lögreglu og látinn gangast undir fíkniefnapróf en það er yfirleitt gert þegar ökumenn sýna óvenjulega hegðun. Ökumaðurinn stóðst prófið.Lesa meira

true

„Líður vel í Molde og er bjartsýnn á framhaldið“

Knattspyrnumaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson, sem nýlega gekk til liðs við Molde í þriðja sinn, var í byrjunarliði liðsins þegar Molde vann frækinn sigur gegn þýska úrvalsdeildarliðinu Hoffenheim í síðustu viku. Molde tryggði með þeim úrslitum liðinu sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppninnar. Þóttu þessi úrslit þau óvæntustu í kepninni í ár. Molde sigraði í leiknum…Lesa meira

true

Tilkynnt um tjón á 300 bílum og húsum

Íbúar í nágrenni sementssílóanna við Akraneshöfn hafa á samfélagsmiðlum lýst yfir áhyggjum af áhrifum sementslosunar yfir byggðina sem varð aðfararnótt 5. janúar síðastliðins. Áhyggjur þeirra snúa einkum að ástandi fasteigna þeirra, bíla, áhrifa á lífríkið og ekki síst á heilsu fólks í ljósi þess hve smákornótt sement fauk út í umhverfið. Í kjölfar óhappsins fékk…Lesa meira