Fréttir

true

Samráðsfundir í gangi um ferðamál á Vesturlandi

Þessa dagana er starfsfólk Markaðsstofu Vesturlands á faraldsfæti og heldur opna kynningarfundi á nokkrum stöðum í landshlutanum. Á dagskrá er samtal og samstarf í ferðamálum á Vesturlandi, Áfangastaðaáætlun Vesturlands kynnt og og áhersluverkefni ferðamála 2021-2023. Í dag eru fundir í Breiðabliki, Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi. Á morgun, föstudaginn 5. mars, verður fundað í Breið, nýsköpunarsetri…Lesa meira

true

Rætt við hestakonuna og áhugaljósmyndarann Brynju Gná

Brynja Gná Heiðarsdóttir er 18 ára Grundfirðingur sem býr nú skammt utan við Borgarnes. Hún er fædd og uppalin í Grundarfirði og segir tenginguna þangað enn mjög sterka, en hún flutti í Borgarnes haustið 2018 til að hefja nám við Menntaskóla Borgarfjarðar og stefnir á að útskrifast af félagsfræðibraut nú í vor. Hestamennskan er henni…Lesa meira

true

Klakahrun úr Búlandshöfða

Eitt af verkefnum starfsmanna Vegargerðarinnar er eftirlit á vegum og skráning á því hvernig færðin er. Í morgun var Sigurjón Hilmarson á vakt á Snæfellsnesi og byrjaði hann daginn á því að fara uppá Fróðárheiði. Þar hreinsaði hann krapa af veginum efst á heiðinni og ætlaði að halda áfram sunnanvert nesið. Einhverra hluta vegna hætti…Lesa meira

true

Toppliðið of stór biti fyrir Snæfell

Topplið Vals var of stór biti fyrir Snæfell þegar liðin mættust í Stykkishólmi í Domino‘s deild kvenna í gær. Bæði lið mættu sterk til leiks og Snæfell náði að halda í við gestina í fyrsta leikhluta, sem lauk með fimm stiga forystu gestanna, 22-27. Leikurinn var hraður og þó gestirnir hafi fljótlega náð yfirhöndinni í…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skallagrímskvenna í Fjósinu

Skallagrímskonur unnu örugglega; 80-48, þegar þær fengu Breiðablik í heimsókn í Domino‘s deild kvenna í gær. Skallagrímskonur komu sterkar til leiks og voru komnar sjö stigum yfir fyrir lok í fyrsta leikhluta, 17-10. Lítið gekk upp hjá gestunum og heimakonur héldu áfram að skilja sig frá þeim. Þegar sex mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta…Lesa meira

true

Byrjað á næsta grunni í Grundarfirði

Það er í nógu að snúast hjá verktakafyrirtækinu Stafnafelli en starfsmenn þess voru ekki fyrr búnir að moka grunn fyrir hús á Ölkelduvegi 23 þegar þeir voru byrjaðir að moka næsta grunn á Fellabrekku 5 í Grundarfirði. Þar mun rísa einbýlishús á næstu misserum með þessu glæsilega útsýni. Það er ánægjuleg þróun að sjá ný…Lesa meira

true

Lífhvolfssvæði á Snæfellsnesi – hvað er það?

Um miðja síðustu viku var undirritað samkomulag um að skoða hvort og hver gæti verið ávinningur af því að Snæfellsnes yrði „Man and Biosphere” svæði. Um er að ræða áætlun á vegum UNESCO en „Man and Biosphere“ er meðal mjög þekktra „vörumerkja“ sem standa fyrir einstæða náttúru og menningu svæða. Fimmtíu ára reynsla liggur fyrir…Lesa meira

true

Ráðinn forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst

Dr. Stefan Wendt hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Stefan er með meistarapróf í viðskiptafræði frá háskólanum í Bamberg í Þýskalandi og lauk doktorsprófum frá sama skóla árin 2010 og 2017. Hann starfaði við rannsóknir og kennslu við háskólann í Bamberg frá 2005-2015 en hefur síðan starfað við Háskólann í Reykjavík. Hann er…Lesa meira

true

Prjónaskapurinn hjálpaði henni í endurhæfingunni

„Handverkið liggur dálítið í móðurættinni minni. Móðir mín og systur hennar höfðu og hafa það í sér að vera liðtækar við margskonar handverk; prjóna og saumaskap og vinna úr leir svo eitthvað sé nefnt. Við systurnar erum allar liðtækar í þessu. Ég í prjónaskapnum, Dóra Dís í bútasaumi og Anna svona eiginlega í hvoru tveggja,“…Lesa meira

true

Talið líklegt að gæti gosið við Keili á Reykjanesi

Skjálftaórói hefur verið vaxandi eftir klukkan 14:20 í dag á Reykjanesi og telja vísindamenn líklegt að gos gæti hafist á svæðinu milli Keilis og Fagrasdalsfjalls á næstu klukkutímum. Gos hefur ekki verið staðfest en lágskýjað er á svæðinu og takmarkað skyggni þar. Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu og samhæfingarstöð virkjuð í Skógarhlíð í Reykjavík. Þá hafa…Lesa meira