Fréttir

true

Landsvirkjun og Norðurál birta orkusamninga

Norðurál og Landsvirkjun hafa aflétt trúnaði af raforkusamningum fyrirtækjanna. „Vonast er til að birtingin styðji við og auki upplýsta umræðu um orkumál á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem trúnaði er aflétt af hálfu Landsvirkjunar. Norðurál tekur nú annað skref sitt í opinberun langtímasamninga, en nýverið birti fyrirtækið raforkusamning sinn við Orkuveitu Reykjavíkur, í…Lesa meira

true

Fjölmenni við stofnun Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs

Stofnfundur Ferðamálafélags Borgafjarðarhéraðs var haldinn á Hótel B-59 í Borgarnesi í gærkveldi. Fjölmenni mætti á stofnfundinn, eða á annað hundrað manns. Vegna samkomutakmarkana varð því að þrískipta fundarýminu. Fólk sem skráir sig í félagið á þessu ári verður sömuleiðis stofnfélagar, en það er hægt að gera með því að senda tölvupóst á netfangið ffb@ffb.is Allar…Lesa meira

true

AA samtökin flutt í Landsbankahúsið

Að Suðurgötu 108 á Akranesi stendur hús sem í daglegu tali er kallað AA húsið. Húsið er í eigu Akraneskaupstaðar og hefur verið í sölumeðferð undanfarna mánuði. Húsið sem hýst hefur ýmis félagasamtök í gegnum tíðina er óselt. AA samtökin hafa haft starfsemi sína í húsinu ásamt Alanon. Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi, hefur jafnframt…Lesa meira

true

Samstarf um óhagnaðardrifið íbúðarhúsnæði í Borgarnesi

Borgarbyggð og byggingarfyrirtækið Hoffell ehf. undirrituðu á síðasta ári viljayfirlýsingu vegna samstarfs um óhagnaðardrifið íbúðarhúsnæði. Byggðarráð og sveitarstjórn lýstu formlega yfir vilja til samstarfs í apríl síðastliðnum og skuldbundu sig til þess að kaupa eina íbúð af átta. Forsaga málsins er að Hoffell ehf. hyggst setja á stofn óhagnaðardrifið leigufélag sem byggir og leigir út…Lesa meira

true

Fyrsta loðnan á Akranes í þrjú ár

Undir miðnætti í gærkvöldi kom Venus NS-150, eitt af uppsjávarveiðiskipum Brims hf, í Akraneshöfn með fyrsta loðnufarminn sem þangað berst í þrjú ár. Aflinn var 520 tonn sem fékkst út á Breiðafirði. Dæling úr skipinu hófst strax um miðnætti og er nú langt komin. Hrognavinnsla hófst í kjölfarið. Gunnar Hermannsson er sem fyrr vinnslustjóri hjá…Lesa meira

true

Sverrir Þór er Akranesmeistari í pílukasti

Akranesmeistaramóti Pílufélags Akraness lauk síðastliðinn fimmtudag þegar úrslitaviðureignin fór fram í pílusalnum í kjallara íþróttahússins við Vesturgötu. Þar áttust við í æsispennandi leik þeir Sverrir Þór Guðmundsson og Trausti Jónsson. Spilaðir voru sjö leggir og réðust úrslitin í þeim síðasta sem Sverrir Þór vann með góðu útskoti. Pílufélagið á Akranesi er ungt en hefur vaxið…Lesa meira

true

Söfnunarátak Rótarýklúbbs Borgarness til kaupa á stafrænum þjálfunarbúnaði

Slökkvilið Borgarbyggðar og Neisti, starfsmannafélag slökkviliðsins, eru að freista þess að festa kaup á stafrænum búnaði til æfinga og þjálfunar slökkviliðsmanna og fengu nýverið styrk frá Uppbyggingasjóði Vesturlands að upphæð ein milljón króna til þessa verkefnis. Búnaðurinn kostar 5,5-6,0 m.kr og er fjármögnun umfram fyrrnefndan styrk enn óljós. Því hefur Rótaryklúbbur Borgarness ákveðið að standa…Lesa meira

true

Rekinn eftir að hafa brugðið fæti fyrir leikmann annars liðs

Szymon Eugieniusz Nabakowski, þjálfari yngri flokka hjá Skallagrími í körfu, brá fæti fyrir leikmann ÍR þegar liðið heimsótti Borgarnes í síðustu viku. Þetta kemur fram í frétt á Vísi. Atvikaðist þetta þannig að ÍR-ingar áttu góða sókn gegn Skallagrími og skoruðu þriggja stiga körfu. Brást þjálfari Skallagríms þá við með því að bregða fæti fyrir…Lesa meira

true

Stofnfundur Ferðamálafélags Borgarfjarðarhéraðs í kvöld

Í kvöld klukkan 20 er á dagskrá stofnfundur Ferðamálafélags Borgarfjarðarhéraðs. Fer hann fram á Hótel B-59 í Borgarnesi. Hægt verður að gerast stofnfélagi út þetta ár, en þó er vitað um mikinn áhuga fyrir félaginu og margir sem boðað hafa komu sína á fundinn. Í undirbúningshópi að stofnun félagsins eru þau Gísli Einarsson, Jónína Pálsdóttir,…Lesa meira

true

Níu þúsund verða bólusettir í þessari viku

Um 8.900 einstaklingar verða bólusettir á landsvísu gegn Covid-19 í þessari viku, þ.e. dagana 1. – 7. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu sóttvarnalæknis sem birtir áætlun um bólusetningar hverrar viku á vef embættis landlæknis. Eins og fram kemur í tilkynningunni verða einstaklingar í aldurshópnum 80 ára og eldri bólusettir með 4.600 skömmtum af bóluefni…Lesa meira