Fréttir

true

Níu þúsund verða bólusettir í þessari viku

Um 8.900 einstaklingar verða bólusettir á landsvísu gegn Covid-19 í þessari viku, þ.e. dagana 1. – 7. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu sóttvarnalæknis sem birtir áætlun um bólusetningar hverrar viku á vef embættis landlæknis. Eins og fram kemur í tilkynningunni verða einstaklingar í aldurshópnum 80 ára og eldri bólusettir með 4.600 skömmtum af bóluefni…Lesa meira

true

Marsrall Hafró er hafið

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum hófst í dag og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu; togararnir Breki VE og Gullver NS ásamt rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Togað verður á tæplega 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið. Verkefnið, sem einnig er nefnt marsrall eða togararall, hefur verið framkvæmt…Lesa meira

true

Mars úthlutanir Mæðrastyrksnefndar

Í mars verða tvær úthlutanir hjá Mæðrastyrksnefnd Akraness. Þær verða miðvikudaginn 10. mars og miðvikudaginn 24. mars (páskaúthlutun). „Við verðum í HB Granda húsinu við Bárugötu 8-10 báða dagana frá klukkan 13-17. Umsækjendur geta hringt í síma 859-3000 eða í síma 859-3200, en einnig má senda á netfangið maedrastyrkurakranes@gmail.com Tekið er á móti umsóknum miðvikudaginn…Lesa meira

true

Tap hjá Víkingi í Lengjubikarleik

Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Íslandsmeistum Vals 0:3 í Lengjubikarnum í gær. Leikurinn fór fram á Hlíðarenda og skoruðu þeir Kaj Leo i Bratalstovu, Sigurður Egill Lárusson og Patrick Pedersen mörk Valsmanna. Valsmenn eru efstir í sínum riðli með fullt hús stiga en Víkingar neðstir án stiga. Næsti leikur Víkings er gegn Grindavík suður með sjó,…Lesa meira

true

Samþykkja að fara í samrekstur skóla í Stykkishólmi

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar síðastliðinn fimmtudag voru samþykktar samhljóða skipulagsbreytingar á skólastarfi í bæjarfélaginu. Um er að ræða breytingar sem felast í því að fara í samrekstur á grunnskóla og tónlistarskóla í bænum frá og með næsta skólaári, 2021-2022. „Markmið skipulagsbreytinganna er fyrst og fremst að auka mátt tónlistar í sveitarfélaginu með því að auka…Lesa meira

true

Svekkjandi tap hjá Skallagrímskonum

Skallagrímur varð að sætta sig við naumt tap í spennuleik gegn Keflvíkingum í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gær; 67-71. Liðin mættust í Borgarnesi og bæði mættu sterk til leiks. Eftir jafnan fyrsta leikhluta voru heimakonur fjórum stigum yfir, 19-15. Skallagrímskonur héldu áfram á sömu braut í öðrum leikhluta og leikurinn var í þeirra…Lesa meira

true

Góður sigur Borgnesinga í Hveragerði

Skallagrímur vann Hamar með tveimur stigum þegar liðin mættust í Hveragerði í 1. deild karla í körfubolta á föstudaginn. Heimamenn voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik en Skallagrímsmenn hleyptu þeim ekki lengt frá sér. Þegar gengið var til klefa í hálfleik var staðan 52-46 fyrir Hamarsmönnum. Lítið markvert gerðist í þriðja leikhluta, heimamenn héldu áfram…Lesa meira

true

Eldislaxinn næststærsta útflutningstegundin

Það er gömul saga og ný að þorskur í hafinu við Ísland er verðmætasta fisktegundin sem Íslendingar veiða, vinna og selja. Hann ber í raun höfuð og herðar yfir aðrar fisktegundir. Nokkuð mismunandi er hvaða tegundir hafa komið á eftir þorskinum, sé litið á einstök ár, en í heildina hefur loðnan skilað næstmestum útflutningsverðmætum af…Lesa meira

true

Mottumars er hafinn

Átaki Krabbameinsfélagsins, Mottumars, var formlega hrundið af stað síðastliðinn föstudag. Átakið snýst um, eins og landsmenn þekkja, krabbamein í körlum. Það voru fulltrúar Landhelgisgæslunnar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem þáðu þá skeggsnyrtingu frá Herramönnum. Fulltrúar þeirra tóku sig vægast sagt glæsilega út að snyrtingunni lokinni, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.Lesa meira

true

Keppt í fjórgangi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum

Síðastliðinn föstudag fór fram keppni í fjórgangi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Keppt var í Faxaborg í Borgarnesi, að þessu sinni án áhorfenda í höllinni, en streymt var frá mótinu. Sigurvegari í A úrslitum varð Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Feng frá Auðsholtshjáleigu 2. Í liðakeppni stóð Skáney/ Fagurlund efst. Eftirfarandi skipa efstu sætin í einstaklingskeppninni að…Lesa meira