Fréttir

true

Góður sigur hjá Skallagrími

Skallagrímur úr Borgarnesi gerði góða ferð á Bessastaðavöll á Álftanesi þegar þeir sigruðu Álftanes 4:2 í C-deild Lengjubikarsins í fótbolta á laugardaginn í sínum fyrsta leik í keppninni. Skallagrímur lenti undir í leiknum en tvö mörk frá Sigurjóni Ara Guðmundssyni og eitt frá Óttari Bergmanni Kristinssyni kom gestunum í 3:1. Álftnesingar minnkuðu muninn en Arnar…Lesa meira

true

Varað við dimmum éljum á fjallvegum

Vegagerðin varar við mjög dimmum éljum og hvassviðri á Holtavörðuheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Vindur gæti slegið í 25 m/s í hryðjunum með mjög takmörkuðu skyggni, en bjartara á milli. Lítið eitt minni vindur eftir kl. 15 í dag.Lesa meira

true

Skagakonur byrjuðu vel í Lengjubikarnum

Kvennalið ÍA í knattspyrnu lék sinn fyrsta leik í B deild Lengjubikarsins á föstudagskvöldið þegar liðið mætti stöllum sínum úr Grindavík. Leiknum, sem fram fór í Akraneshöllinni, lauk með 3:1 sigri Skagakvenna. Heimaliðið skoraði öll mörk sín í fyrri hálfleik og leiddi því 3:0 í hálfleik með mörkum þeirra Lilju Bjargar Ólafsdóttur, Evu Maríu Jónsdóttur…Lesa meira

true

VLFA á samningafundum með ELKEM Ísland

Verkalýðsfélag Akraness, VLFA á nú í samningaviðræðum við ELKEM Ísland á Grundartanga um nýjan kjarasamning til handa starfsmönnum fyrirtækisins. Í samtali við Vihjálm Birgisson, formann VLFA ganga viðræður ágætlega en síðasti fundur aðila var í dag, föstudag. „Þetta þokast en auðvitað tekur þetta alltaf tíma. Við semjum eftir ákveðinni aðferðafræði og krafa starfsmanna er að…Lesa meira

true

Þjóðahátíð Vesturlands er á Youtube að þessu sinni

Félag nýrra Íslendinga er með Þjóðahátíð Vesturlands á rafrænu formi í ár, en undanfarin ár hefur verið komið saman á völdum stað á Vesturlandi og blásið til matar- og danshátíðar. Hátíðin nú var vegna samkomutakmarkana haldin í gegnum Youtube rás Society of New Icelanders. Þar deilir fólk af erlendum uppruna seríu myndbanda þar sem sýnt…Lesa meira

true

Telur óráðlegt að fela stofnun í Reykjavík yfirráð yfir landi

Guðmundur Ingi Waage í Borgarnesi sendi Borgarbyggð erindi 20. febrúar síðastliðinn. Þar fer hann fram á að íbúakosning yrði framkvæmd til að kanna hug bæjarbúa um fyrirhugaða friðlýsingu Borgarvogs í Borgarnesi. Telur Guðmundur friðun vogsins mjög umdeilanlega og hæpið að fela Umhverfisstofnun yfirráð yfir svæðinu. Þá sér hann ekki ástæðu til að friðlýsa Borgarvog vegna…Lesa meira

true

Tekjufallsstyrkir nálgast átta milljarða frá upphafi kóvid

Um miðja þessa viku höfðu 1.400 rekstraraðilar hér á landi fengið um 7,8 milljarða króna greidda í tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Tekjufallsstyrkir nýtast rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmið ríkisstjórnarinnar að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en…Lesa meira

true

Lagt til á ársþingi KSÍ að fjölga leikjum í úrvalsdeild í fótbolta

Á morgun mun ársþing Knattspyrnusambands Íslands taka til umfjöllunar og afgreiðslu fjórar tillögur sem snúa að breytingum á lögum KSÍ. Hver um sig munu þessar tillögur, verði þær samþykktar, leiða af sér breytingar á fyrirkomulagi keppni í efstu deild karla. Ein tillagan gerir einnig ráð fyrir breytingu á keppni í 1. deild karla. Knattspyrnufélag ÍA…Lesa meira

true

Janus Bragi gerður að heiðursfélaga Golfklúbbsins Leynis

Í gær var Janus Braga Sigurbjörnsson gerður að heiðursfélaga Golfkúbbsins Leynis á Akranesi. Þessi höfðingi verður níræður síðar á árinu. Af þessu tilefni heimsóttu Pétur Ottesen formaður Leynis og Rakel Óskarsdóttir framkvæmdastjóri hjónin Janus Braga og eiginkonu hana Katrínu Georgsdóttur, og færðu þeim blóm. Janus Bragi bætist nú í hóp þeirra heiðursfélaga sem bætt hafa…Lesa meira

true

Færanlegar kennslustofur verða keyptar

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að ganga til samninga við Stólpa – Gáma um kaup á færanlegum kennslustofum fyrir Kleppjárnsreykjadeild Grunnskóla Borgarbjarðar. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns skömmu fyrir jól voru rakaskemmdir staðfestar í gömlu skólabyggingunni og var þá tekin ákvörðun tekin um að nýta ekki hluta hennar. Ákvörðun um…Lesa meira