Fréttir

true

Brotist inn og stolið verkfærum

Í nýliðinni viku varð þess vart að brotist hafði verið inn í sumarhús austan við Stóra-Ás í Hálsasveit. Unnar höfðu verið skemmdir á aðaldyrum bústaðarins en engu virðist hafa verið stolið. Þegar athugað var með fleiri bústaði kom hins vegar í ljós að í brotist hafði verið inn í annan bústað, miklar skemmdir unnar og…Lesa meira

true

Bók um rannsóknaskipið Pourquoi pas?

Rannsóknaskipið Pourquoi pas? fórst eins og kunnugt er við Straumfjörð á Mýrum 16. september árið 1936. Með skipinu fórst franski vísindamaðurinn og landkönnuðurinn Jean-Baptiste Charcot ásamt nærri allri sinni áhöfn en alls fórust 40 manns í slysinu og aðeins einn skipverji komst lífs af. Nú hefur verið gefin út bók um fornleifarannsókn á flaki skipsins…Lesa meira

true

Börnin á Akraseli gerðu eigin búninga

Á leikskólanum Akraseli á Akranesi var öskudagurinn í síðustu viku tekinn með trompi. Öll börnin í eldri kjarnanum útbjuggu sína eigin búninga. “Ögrunin var mikil og hugmyndirnar stórar. Það voru búin til fiðrildi, drekar, ljón, prinsessur, Ninjur, ofurhetjur og ýmislegt fleiri. Þegar öskudagurinn sjálfur rann upp voru börnin mjög spennt að fá að skarta sínu…Lesa meira

true

Breski sendiherrann kom í kurteisisheimsókn í Borgarbyggð

Michael Nevin sendiherra Bretlands hér á landi, ásamt föruneyti, sótti Borgarbyggð heim síðastliðinn mánudag. Sendiherrann fundaði með sveitarstjórn Borgarbyggðar, fulltrúum fyrirtækja í héraðinu, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og fleirum. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með sendiherranum á Kaffi Kyrrð í Borgarnesi og ræddi stuttlega við hann um tilgang heimsóknarinnar. Sendiherrann, Michael, sagðist í fyrsta lagi vera afskaplega…Lesa meira

true

Flutti heim og kennir söng í Stykkishólmi

Sylvía Rún Guðnýjardóttir flutti aftur heim til Grundarfjarðar síðastliðið sumar og kennir nú söng við Tónlistarskólann í Stykkishólmi og stefnir á að bjóða upp á námskeið í Grundarfirði. Sylvía er fædd og uppalin í Grundarfirði en flutti þaðan til Reykjavíkur þar sem hún hefur búið undanfarin ár. Sylvía hefur alltaf verið syngjandi en fór að…Lesa meira

true

Rýmkun á skólastarfi – háskólar geta hafið staðnám að nýju

Tilslakanir í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tók gildi í dag gera háskólum kleift að hefja staðnám að nýju. Reglugerðin gildir til og með 30. apríl nk. Mestu breytingarnar felast í afnámi tveggja metra reglunnar í öllu skólastarfi og hækkun hámarksfjölda nemenda í framhalds- og háskólum í 150 frá og með næstu mánaðamótum. Helstu breytingar í…Lesa meira

true

Slökkviliðsmenn á Akranesi bólusettir

Í morgun mætti starfsfólk Heibrigðisstofnunar Vesturlands til Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar á Kalmansvöllum 2 og bólusetti liðsmenn slökkviliðsins vegna Covid-19. Þetta var fyrri skammturinn af bóluefninu sem liðið fær til að ná ónæmi gegn veirunni. Á meðfylgjandi mynd er verið að bólusetja Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóra. Eins og við var að búast bar hann sig…Lesa meira

true

Kaup Baader staðfest á meirihluta hlutafjár í Skaganum 3X

Nýverið var gengið endanlega frá kaupum þýska fyrirtækisins Baader á meirihluta hlutafjár í Skaganum 3X sem m.a. hefur starfsstöðvar sínar á Akranesi og Ísafirði. Upphaflega var greint frá kaupunum 29. október síðastliðinn. „Með kaupunum hefst náið samstarf fyrirtækjanna við framleiðslu og markaðssetningu tækja til matvælavinnslu. Þar verður byggt á langri og heimsþekktri reynslu Baader ásamt…Lesa meira

true

Slökkt á dælum Veitna í Grábrókarhrauni

Slökkt hefur verið á dælum Veitna í Grábrókarhrauni í Norðurárdal vegna jarðskjálftanna sem gengu yfir suðvesturhornið í morgun. „Vatnsbólið þar er viðkvæmt fyrir skjálftum en vatnið getur gruggast við þá,“ segir á heimasíðu Veitna. Af þessu sökum gæti orðið kaldavatnslaust eða lítill þrýstingur á Bifröst, Varmalandi, Munaðarnesi og í sumarhúsahverfum milli Grábrókar og Borgarness næstu…Lesa meira

true

Ríkið vill kaupa hlut orkufyrirtækja í Landsneti

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, hafa fyrir hönd ríkissjóðs undirritað viljayfirlýsingu við orkufyrirtækin Landsvirkjun, RARIK ohf., Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða, sem eigendur alls hlutafjár í Landsneti hf., um að ganga til viðræðna um kaup ríkisins á hlutum félaganna í Landsneti hf. „Með viljayfirlýsingunni lýsa allir…Lesa meira