Fréttir

true

Gerðust bændur á jörð frændsystkinanna

Umtalsverð nýliðun er að eiga sér stað í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Ungt fólk er að koma sér fyrir á jörðum, byggja sér hús eða taka við búi. Ættliðaskipti eru nauðsynleg ef viðgangur á að verða í sveitum landsins. Á Snartarstöðum í Lundarreykjadal urðu nýlega ábúendaskipti þegar Guðrún María Björnsdóttir og Jóhann Páll Þorkelsson tóku við…Lesa meira

true

Snæfellsbær keppir í Útsvari í kvöld

Í kvöld, miðvikudaginn 23. mars, hefst á ný keppni í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV. Venju samkvæmt var gert hlé á keppninni vegna Gettu betur. Aðeins ein viðureign er eftir í 16 liða úrslitum og þar eigast við Snæfellsbær og Rangárþing ytra. Lið Snæfellsbæjar skipa þeir Sigfús Almarsson, Örvar Marteinsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson. Sem…Lesa meira

true

Stjórnendur fyrirtækja spá fjölgun starfa og aukinni fjárfestingu

Í nýjasta tölublaði af Glefsum, rafrænu riti sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi gefa út, er sagt frá könnun þar sem mældar voru væntingar stjórnenda fyrirtækja í landshlutanum um rekstrarhorfur. Í fréttabréfinu segir Vífill Karlsson hagfræðingur m.a: „Bjartsýni fyrirtækja á Vesturlandi færist áfram í aukana á milli ára þegar horft er til svara við spurningum sem…Lesa meira

true

Þurfa að loka hóteli tímabundið vegna ónýts vegar

„Það er mjög alvarleg staða komin upp hjá okkur. Nú er svo komið að Hvítarbakkavegur númer 514 er ófær fyrir almenna umferð og við sjáum okkur ekki fært annað en loka hótelinu meðan þetta ástand varir,“ segir Ólafur Gunnarsson sem rekur Icaland guesthouse Hvítá á Hvítárbakka í Borgarfirði. Hann segir að á síðasta ári hafi…Lesa meira

true

Veitingastaðurinn La Colina brátt opnaður í Borgarnesi

Undanfarnar tvær vikur hafa Borgnesingar heyrt hamarshögg berast frá Hrafnakletti 1b, þar sem veitingastaðurinn Vinakaffi var áður til húsa. „Við byrjuðum að vinna að breytingunum fyrir tveimur vikum og stefnum á að opna veitingastaðinn La Colina í byrjun maí,“ segir Jorge Ricardo sem stendur að rekstrinum ásamt eiginkonu sinni Alicia Guerrero. „Við hefðum gjarnan viljað…Lesa meira

true

Danssýning á Akranesi í kvöld

Tvö ung og efnileg danspör frá Akranesi munu taka þátt í alþjóðlegri danskeppni í Blackpool í Englandi í lok mánaðarins. Danspörin efnilegu eru Almar Kári Ásgeirsson og Demi van den Berg annars vegar og Tristan Sölvi Jóhannsson og Rósa Kristín Hafsteinsdóttir hins vegar. Í tilefni af fyrirhugaðri keppnisferð þeirra hafa þau ákveðið að boða til…Lesa meira

true

Fúsi Fljótsdælingur hefur reynt ýmislegt um ævina

Vigfús Friðriksson, betur þekktur sem Fúsi Fljótsdælingur, er orðinn mörgum Borgfirðingum og nærsveitamönnum góðkunnur. Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem sölumaður í Kaupfélagi Borgfirðinga og lætur vel af þeim vinnustað. Hann býr nú á Bifröst ásamt eiginkonu sinni, Guðveigu Eyglóardóttur hótelstýru. Hún er Borgnesingur en Fúsi er, eins og viðurnefnið gefur til kynna, Fljótsdælingur…Lesa meira

true

Umhverfisskipulag getur stuðlað að bættri lýðheilsu

Anna Kristín Guðmundsdóttir nemur umhverfisskipulag við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Fékk hún í vetur það verkefni að hanna vistvæna götumynd á Akranesi. Var það liður í námskeiðinu Umhverfisskipulag og lýðheilsa. Verkefnið hófst sem hópverkefni þar sem greint var allt frá umferð til ráðandi lita á svæðinu sem til umfjöllunar er. Að því loknu skiluðu nemendur…Lesa meira

true

KB mótaröðinni lokið þetta árið

Síðasta mótið í KB mótaröðinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg um liðna helgi. Mótið gekk vel fyrir sig í alla staði og var árangur keppenda góður, að sögn mótshaldara. Það var LIT liðið (lið Lögfræðistofu Inga Tryggvasonar) sem bar sigur úr býtum í liðakeppninni en skammt á hæla þess kom lið Líflands, Berserkir urðu…Lesa meira

true

Leikarinn veiddi stærsta þorsk sem vitað er um á sjóstangveiðimóti

Sjóstangaveiðifélagið Skipaskagi á Akranesi stóð fyrir innanfélagsmóti í sjóstangveiði síðastliðinn laugardag í frábæru veðri. Var þetta í 22. skipti sem mótið er haldið og tóku 23 einstaklingar þátt á sex bátum, þar af sex nýliðar. Jóhannes Simonsen formaður Skipaskaga var aflahæstur karla með 384,55 kg og Ágústa S Þórðardóttir var aflahæst kvenna með 104,1 kg.…Lesa meira