Fréttir

true

Ekið of greitt í gegnum Borgarnes

Að sögn lögreglu hefur mikið verið um hraðakstur í Borgarnesi undanfarna daga. Þar sem þjóðvegurinn liggur í gegnum bæinn virðast ökumenn ekki gæta sín nægilega. Þarna er mikið um gangandi vegfarendur og að sögn lögreglu hefur verið lögð áhersla á hraðamælingar á umræddum kafla.Lesa meira

true

Gelkerti fannst eftir sinubruna

Sinubruni varð við rætur Akrafjalls á föstudag í liðinni viku, eins og greint var frá í Skessuhorni sama dag. Slökkviliðsmenn voru í nokkra klukkutíma að ráða niðurlögum eldsins. Ekkert tjón varð á öðru en sinu vegna brunans. Við skoðun á vettvangi fundu slökkviliðsmenn svokallað gelkerti en það er ekki í fyrsta skipti sem slíkt finnst…Lesa meira

true

Þegar breski herinn hernam Akranes

Hernám Íslands er það tímabil kallað frá því þegar landið var hernumið af Bretum vorið 1940 og fram að því því þegar bandarískir hermenn yfirgáfu landið 1947, tveimur árum eftir lok stríðsins. Ekki kom til átaka vegna hernámsins enda voru Íslendingar hliðhollir bandamönnum og tóku þeim almennt vel. Þegar Bretar hernámu Ísland aðfararnótt 10. maí…Lesa meira

true

Uppstilling við röðun á lista Viðreisnar í NV kjördæmi

Landshlutaráð Viðreisnar í Norðvesturkjördæmis ákvað á fundi sínum í vikunni að nota uppstillingu við röðun á framboðslista fyrir kosningar í haust. Uppstillinganefnd hefur þegar verið skipuð og er vinna hennar að hefjast, samkvæmt tilkynningu frá flokknum. „Hvert landshlutaráð fyrir sig tekur ákvörðun um hvaða aðferð er beitt við skipan framboðslista, í samræmi við samþykktir Viðreisnar.…Lesa meira

true

Öðruvísi öskudagur að þessu sinni

Sóttvarnayfirvöld hafa gefið út leiðbeiningar varðandi heimsóknir barna í fyrirtæki á öskudaginn sem er í næstu viku. Þar er hvatt til að hátíðarhöld verði einkum haldin á heimavelli; í skólum, frístundaheimilum eða félagsmiðstöðvum. Ef hefð er fyrir því að ganga á milli húsa eða fyrirtækja er mælt með að foreldrafélög tækju upp á sína arma…Lesa meira

true

Auka samvinna í öldrunarstarfsemi á Vesturlandi

Í Velferðarstefnu Vesturlands sem kom út fyrir ári síðan voru málefni eldri borgara í brennidepli. Þar voru sett fram ýmis markmið sem eiga að stuðla að aukinni vellíðan eldri borgara og bæta þjónustu við þennan ört vaxandi hóp, m.a. með því að styrkja samstarf og samvinnu þeirra aðila sem koma að öldrunarþjónustu. Ljóst er að…Lesa meira

true

Vilja að bótaréttur slökkviliðsmanna sé viðurkenndur

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur sent inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, sem fjalla m.a. um atvinnusjúkdóma og miskabætur. Á Íslandi eru starfandi um þúsund slökkviliðsmenn og af þeim eru rúmlega 400 í fullu starfi og sinna þá flestir einnig sjúkraflutningum. Þeir einstaklingar sem sinna þessum störfum…Lesa meira

true

Streymisfundur um tækifæri sem eru að verða til í atvinnulífinu

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir opnum streymisfundi á Teams miðvikudaginn 17. febrúar kl. 09:00. Þar mun Hafsteinn Helgason verkfræðingur og ráðgjafi hjá Eflu fara yfir ýmis tækifæri sem eru að verða til í atvinnulífinu. Hafsteinn hefur um árabil komið að ýmsum viðskiptaþróunarverkefnum fyrir hönd fyrirtækisins, en hann var sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá Eflu. Hann hefur…Lesa meira

true

Útgerðir á Vesturlandi greiða hálfan milljarð í veiðigjöld

Fiskistofa hefur birt upplýsingar um veiðigjöld sem íslenskar útgerðir greiða í ríkissjóð fyrir nýtingu auðlindarinnar fyrir árið 2020. Alls greiða útgerðir tæplega 4,8 milljarða króna í veiðigjöld fyrir árið 2020, greiddu 6,6 milljarða fyrir 2019 og 11,3 milljarða fyrir 2018. Af 4,8 milljörðum sem ríkissjóður innheimtir koma 505 milljónir króna frá útgerðum á Vesturlandi. Í…Lesa meira

true

Breytingar á yfirstjórn Norðuráls og móðurfélags þess

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, hefur verið ráðinn til að stýra álverum Century Aluminum í Evrópu og Norður Ameríku. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að nýr starfstitill Gunnars verður „Executive Vice President, Global Operations“ og mun hann bera ábyrgð á rekstri álvera Century Aluminum um allan heim. Century Aluminum á og rekur, auk Norðuráls á…Lesa meira